Kínverskum fjárfestingum í Bandaríkjunum fækkar um 88 prósent á tveimur árum

Fækkun fjár­festinganna hefur áhrif á sprota­fyrirtæki og fasteigna­markaðinn í Banda­ríkjunum. Bretland, Kanada, Japan og Þýskaland fjárfesta meira í Banda­ríkjunum en Kína.

Kínverskum fjár­festingum í Banda­ríkjunum hefur fækkað um 90 prósent frá því að Trump tók við sem forseti Banda­ríkjanna. Fjár­festingunum hefur fækkað vegna strangari skilyrða í Banda­ríkjunum gagnvart kínverskum fjár­festingum ásamt því að kínversk stjórn­völd hafa takmarkað eyðslu erlendis. Þetta kemur fram í frétt The New York Times.

Kína og Banda­ríkin hafa í rúmlega eitt ár átt í viðskipta­stríði þar sem strangari skilyrðum og tollum er komið á beggja vegna. Nú er viðskipta­stríðið byrjað að hafa veruleg áhrif á beinar fjár­festingar í Banda­ríkjunum. Samkvæmt fréttinni hefur fækkun kínverskra fjár­festinga til að mynda áhrif á sprota­fyrirtæki í Kísil­dalnum og fasteigna­markaðinn í Manhattan. Kínverskir fjár­festar eru þó enn stærstu erlendu kaupendur bandarískra fasteigna.

Bein erlend fjár­festing frá Kína í Banda­ríkjunum fór úr 46,5 milljörðum dollara árið 2016 í 5,4 milljarða dollara árið 2018 sem er 88 prósenta minnkun. Fækkun kínverskra fjár­festinga munu þó líklega ekki setja hagkerfi Banda­ríkjanna út af sporinu þar sem þær eru enn einungis hluti heildar­fjár­festinga. Bretland, Kanada, Japan og Þýskaland fjárfesta til að mynda meira í Banda­ríkjunum en Kína.

Einangrunarhyggja hægir á heimshagkerfinu

Ein­angr­un­ar­hyggja í við­skiptum og auk­inn efna­hags­legur óstöð­ug­leiki hægðu á hag­kerfi heims­ins árið 2018. Vöru­við­skipta­vöxtur var 3 pró­sent 2018 sam­an­borið við 4,6 pró­sent árið 2017. Búist er við að sú þróun haldi áfram árið 2019, þar sem áætl­aður vöru­við­skipta­vöxtur er 2,6 pró­sent. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (e. WTO).

Á meðan Banda­ríkin halda sinni ein­angr­un­ar­stefnu til streitu er búist við enn frek­ari við­skipta­hindr­unum á Vest­ur­löndum þegar Bretar segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár