Einangrunarhyggjan farin að bíta

Ein­angrun eða alþjóða­væð­ing. Hag­fræð­ing­ur­inn Jónas Atli Gunn­ars­son rýnir í stöð­una í alþjóða­bú­skapnum. Greinin birt­ist fyrst í Vís­bend­ingu.

Árið 1930 lögðu banda­rísku þing­menn­irnir Reed Smoot og Willis C. Hawley fram frum­varp sem átti að vernda inn­lenda fram­leiðslu gegn sam­keppni erlendis frá, í ljósi Krepp­unnar miklu sem þá herj­aði á heim­inn. Banda­ríkja­þing sam­þykkti frum­varpið, en í því fólst stór­hækkun inn­flutn­ings­tolla á yfir 20 þús­und erlendar vörur.

Í fyrstu virt­ust toll­arnir hafa til­ætluð áhrif, þar sem inn­lend fram­leiðsla jókst og laun hækk­uðu tíma­bundið. Hins vegar breytt­ist efna­hags­á­standið fljót­lega til hins verra þegar önnur ríki komu á fót vernd­ar­tollum á banda­rískum útflutn­ingi og leiddi til þess að bæði inn-og útflutn­ingur frá Banda­ríkj­unum helm­ing­uð­ust og fátækt jókst.

Í dag eru Smoot-Hawley toll­arnir svoköll­uðu skóla­bók­ar­dæmi um nei­kvæð áhrif ein­angr­un­ar­hyggju í efna­hags­málum, en flestir hag­fræð­ingar telja þá hafa leitt til þess að Kreppan mikla hafi orðið dýpri og lengri en fyrst var talið (1).

Viðvörunarbjöllur víða um heim

Nú, tæpri öld eftir frum­varp Smoot og Hawley og rúmum 7 ára­tugum af alþjóða­væð­ingu seinni­stríðs­ár­anna, hefur ein­angr­un­ar­hyggjan aftur sótt í sig veðrið í Banda­ríkj­unum á síð­ustu miss­erum. Áherslur Donald Trumps for­seta Banda­ríkj­anna á að vernda inn­lenda fram­leiðslu hafa leitt til við­skipta­stríðs milli Banda­ríkj­anna og Kína auk tolla­hækk­ana á vörur frá Indlandi, Rúss­landi, Evr­ópu­sama­band­inu, Mexíkó og Kanada. Ásamt því hefur Trump hótað frek­ari tolla­lagn­ingu á evr­ópskar og mexíkóskar vörur, fari löndin ekki eftir settum skil­yrðum Banda­ríkj­anna. Áður­nefnd ríki hafa öll svarað í sömu mynt á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum og hækkað tolla á banda­rískar vörur.

Á meðan Banda­ríkin halda sinni ein­angr­un­ar­stefnu til streitu er búist við enn frek­ari við­skipta­hindr­unum á Vest­ur­löndum þegar Bretar segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Líkur á útgöngu Breta án samn­ings hafa farið vax­andi, en með því myndu við­skipta­kjör ráð­ast af reglum frá Alþjóða­við­skipta­stofn­un­inni (WTO) og tollar hækka umtals­vert á inn-og útflutn­ingi frá Evr­ópu­löndum.

Raftæki, matur og málmar

Fjöldi fram­leiðslu­vara sem hafa orðið fyrir barð­inu á nýjum vernd­ar­tollum nemur þús­undum og inni­heldur allt frá hrá­vörum til full­búna neyslu­vara. Frá því í mars í fyrra hefur Banda­ríkja­stjórn nú fjórum sinnum staðið að tolla­hækk­unum á kín­verskum vörum, helst á raf­tækjum, hús­gögnum og bíla­hlutum, en einnig á efna­vörum og inn­fluttu græn­meti. Kín­verjar hafa svarað með tollum á banda­rískum bílum og flug­vélum, auk ýmissa land­bún­að­ar­vara. Þar að auki hafa Banda­ríkin kynnt almenna tolla á inn­fluttar þvotta­vélar, sól­ar­raf­hlöður, ál og stál, sem Evr­ópu­sam­bandið, Kanada og Mexíkó hafa svarað með tollum á áður­nefnda málma auk ýmissa mat­væla og Harley-Davidson mót­or­hjóla frá Banda­ríkj­unum.

Sömu­leiðis má vænta hærri tolla á inn­flutn­ing frá Evr­ópu­sam­band­inu til Bret­lands ef útgöngu­samn­ingur Breta úr sam­band­inu liggur ekki fyrir í haust. Samkvæmt BBC myndu tollar á land­bún­að­ar­vörur og bíla hækka umtals­vert, en hags­muna­sam­tök beggja atvinnu­greina þar í landi hafa varað við þeirri þróun.

Alþjóðavæðingunni ógnað

Afleið­ingar ein­angr­un­ar­hyggj­unnar eru nú þegar sjá­an­legar, en heims­hag­kerfið hefur hlotið tölu­verðan skaða af auknum tollum á und­an­förnum mán­uðum. Samkvæmt nýj­ustu efna­hags­spá OECD hefur vax­andi spenna í alþjóða­við­skiptum dregið úr heild­ar­eft­ir­spurn og fjár­fest­ingu og er ein af meg­in­á­stæðum þess að hag­vöxtur muni mæl­ast tölu­vert undir vænt­ingum í ár. Mynd 1 sýnir þá þróun, en sam­kvæmt henni hefur vöxtur í við­skiptum milli landa minnkað hratt á síð­ustu þremur árs­fjórð­ungum og var nán­ast eng­inn í vor.

OECD bætir við í spá sinni að umræddar við­skipta­hindr­anir gætu haft alvar­leg áhrif á hag­vöxt næstu ára, semji löndin ekki um nið­ur­fell­ingu tolla. Við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna við Kína gæti dregið tölu­vert úr heims­hag­vexti á næstu þremur árum, auk þess sem alþjóða­væð­ingu síð­ustu ára­tuga sé ógnað með frek­ari tollum, sam­kvæmt sam­tök­unum.

Grein­ing­ar­deild Bloomberg tekur undir þessar áhyggjur og metur það svo að heil 2,3 pró­sent af heims­fram­leiðslu séu í hættu vegna ein­angr­un­ar­stefnu Banda­ríkj­anna og útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Afleidd áhrif töluverð

Þessi áhrif eru víð­tæk og ná lengur en til ein­ungis þeirra landa sem ákveða að hækka tolla á inn­flutn­ings­vörum. Í alþjóða­væddum heimi ganga sömu vörur oft kaupum og sölum milli nokk­urra landa og því geta afleidd áhrif af lagn­ingu inn­flutn­ings­tolla verið tölu­verð. Mynd 2 sýnir verð­mæti útflutn­ings í nokkrum ríkjum sem er í hættu vegna yfir­vof­andi tolla­stríðs Banda­ríkj­anna og Kína. Á henni sést hvernig vörur sem fram­leiddar eru í Kína og seldar í Banda­ríkj­unum eru háð við­skipti við ýmis Asíuríki, en áhrif banda­rískra tolla á þessar vörur ná einnig til Tævan, Suður-Kóreu, Malasíu og Singapúr.

Álið í hættu

Einnig er hætta á að inn­flutn­ings­tollar til Banda­ríkj­anna og Kína, sem eru með stærstu við­skipta­svæðum heims­ins, dragi niður heims­mark­aðs­verð á ýmsum vörum vegna minni heild­ar­eft­ir­spurnar. Álf­ram­leiðslu­fyr­ir­tæki eru sér­stak­lega við­kvæm gagn­vart þessum áhrifum, en Banda­ríkin, Kína og Evr­ópu­sam­bandið hafa öll hækkað tolla sína á inn­fluttu áli tölu­vert, auk þess sem aðrir tollar á neyslu­vörur úr áli hafa einnig hækkað.

Samhliða hækkun tolla hefur heims­mark­aðs­verð á áli einnig lækkað um rúm 20 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Fram­kvæmda­stjóri Alcoa, Roy Harvey, hélt því fram að tolla­stríðið drægi álverðið niður og hafði áhyggjur af áliðn­að­inum á heims­vísu, verði toll­arnir ekki lækk­aðir.

Hagvöxtur hefði stóraukist

Þessi þróun hefur nei­kvæð áhrif á íslenskan álút­flutn­ing, sem nemur jafnan 5 til 6 pró­sentum af heild­ar­út­flutn­ingi lands­ins. Mynd 3 sýnir hvernig verð­mæti álút­flutn­ings hefði þró­ast ef heims­mark­aðs­verð á áli hefði hald­ist óbreytt frá því í júní í fyrra. Munurinn er tölu­verður, en undir óbreyttu verð­lagi hefði ál verið nær helm­ingi verð­mæt­ara á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Til að und­ir­strika hversu stóran þátt álverðið á í íslenskum efna­hag má benda á að hag­vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs hefði nær þre­fald­ast, úr 1,7 pró­sentum í 4,5 pró­sent, ef enn væri hægt að selja ál á sama verði og síð­asta sumar.

Vandamál fangans

Ein­angr­un­ar­hyggja í efna­hags­málum er þess eðlis að hún smitar út frá sér. Þótt vel­ferð flestra ríkja myndi aukast ef engra hind­r­ana á alþjóða­við­skiptum nyti við eru inn­flutn­ings­tollar oft gagn­legir, annað hvort sem tæki til að ná sér­tækum póli­tískum mark­miðum eða sem vog­ar­afl gegn tollum erlendis frá. Vegna þessa eru tollar á vörur sem ganga kaupum og sölum milli landa gjarnan hærri en æski­legt er og sveifl­ast eftir við­skipta­stefnu ann­arra ríkja.

Í leikja­fræði er þetta sam­band kallað vanda­mál fang­ans (e. Pri­soners‘ Dilemma) og leiðir til óhag­kvæmrar nið­ur­stöðu fyrir öll lönd vegna þess van­trausts sem ríkir á milli þeirra (2). Þegar Banda­ríkin ákváðu að hækka tolla á hinar ýmsu inn­flutn­ings­vörur var það hinum lönd­unum í hag að hækka tolla á sinn inn­flutn­ing líka. Þannig draga tolla­stríð veru­lega úr alþjóða­við­skiptum, sem leiðir til þess að allir tapa.

Hærra atvinnuleysi og meiri ójöfnuður

Afleið­ingar tolla­stríðs­ins gætu þó náð lengra en aðeins til veik­ari hag­vaxtar. Tollar veita ákveðnum fram­leiðslu­greinum skjól undan alþjóð­lega sam­keppni og gera þeim kleift að hagn­ast á því, á kostnað neyt­enda (3). Þannig leiðir álagn­ing inn­flutn­ings­tolla til stöðugrar aukn­ingar í ójöfn­uði í ríkum löndum. Til við­bótar, þar sem tollar draga úr heild­ar­eft­ir­spurn, gætu fyr­ir­tæki þurft að draga úr fram­leiðslu sinni og segja því upp hluta starfs­manna sinna, sem leiðir til auk­ins atvinnu­leysis (4).

Í þessu sam­hengi skiptir þó máli hversu lengi tolla­stríðið end­ist. Atvinnu­leysi og ójöfn­uður eru breytur sem taka til­tölu­lega hægum breyt­ingum og því mun áhrif inn­flutn­ings­tolla á þær ekki koma í ljós nema að við­skipta­hindr­an­irnar hald­ist í nokkur ár.

Hættuleg almenningi

Vernd­ar­tollar hljóma oft vel í eyrum stjórn­mála­manna þegar inn­lend fram­leiðsla er í hættu. Sagan sýnir þó hversu hættu­legir þeir geta orðið almenn­ingi ef þeim er haldið til streitu í langan tíma. Nú þegar hefur ein­angr­un­ar­hyggja Banda­ríkj­anna smitað út frá sér til fjölda landa og meðal ann­ars dregið úr hag­vexti á Íslandi, en búist er við meiri tollum ef Bretland segir sig úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings. Lang­tíma­á­hrif ein­angr­un­ar­hyggj­unnar eru þó mun verri en skamm­tíma­á­hrifin og því er mik­il­vægt að núver­andi inn­flutn­ings­tollar lækki fljótt áður en þeir auka ójöfnuð og atvinnu­leysi. Afleið­ingar Smoot-Hawley toll­anna ætti að vera öllum ein­angr­un­ar­sinnum víti til varn­aðar í þeim efnum.

Heim­ildir:

1. Where Is There Consensus Among American Economic Histor­i­ans? The Results of a Survey on Forty Propositions. Whaples, R. 1, 1995, The Journal of Economic History, 55(1), Vol. 55, pp. 139-154.

2. The Pri­soners' Dilemma Posed by Free Trade Agreements: Can Open Access Provisions Provide an Escape? Lewis, M.K. 2, Chicago : Chicago Journal of International Law, 2011, Vol. 11.

3. Does Tariff Liberalization Increase Wage Inequality? Some Empirical Evidence. Milanovic, B. and Squire, L. Cambridge, MA : National Bureau of Economic Research Working Paper, 2005, Vol. 11046.

4. Macroeconomic Consequences of Tariffs. Furceri, D., et al. Cambridge, MA : National Bureau of Economic Research Working Paper, 2018, Vol. 25402.

Greinin birt­ist fyrst í Vís­bend­ingu, 14. júní síð­ast­lið­inn. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Höfundur er hag­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár