Einangrunarhyggja í viðskiptum og aukinn efnahagslegur óstöðugleiki hægðu á hagkerfi heimsins árið 2018. Vöruviðskiptavöxtur var 3 prósent 2018 samanborið við 4,6 prósent árið 2017. Búist er við að sú þróun haldi áfram árið 2019, þar sem áætlaður vöruviðskiptavöxtur er 2,6 prósent. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (e. WTO).
Samkvæmt skýrslunni reynir stofnunin nú að draga úr spennu í viðskiptum. Sem dæmi hafa Bandaríkin átt í harðvígum deilum við Kína, Kanada og Mexíkó. Árið 2018 var met slegið í fjölda mála sem sett voru fyrir deilumálakerfi stofnunarinnar.
Bandaríkin er það ríki sem flest mál hefur sett í ferli innan deilumálakerfi stofnunarinnar frá árinu 1995 til 2018, það eru alls 123 mál, auk þess sem þau eru það ríki sem flest mál hafa verið höfðað gegn innan þessa kerfis eða 152 talsins. Næst á eftir kemur Evrópusambandið með 99 mál og 85 mál höfðað gegn því.
Taka þarf á málum innan stofnunarinnar
Roberto Azevêdo, framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, sagði brýnt að taka á málum innan stofnunarinnar, starf innan hennar gæti ekki haldið áfram líkt og ekkert hefði í skorist.
Fyrir utan aukna spennu í viðskiptum milli ríkja og einangrunarhyggju þyrfti sérstaklega að taka á niðurgreiðslum ríkja á landbúnaðar- og sjávarútvegsvörum.
Sérstök umfjöllun var árið 2018 innan stofnunarinnar um áhyggjur af afleiðingum Brexit á tolla Evrópusambandsins. Alls lýstu tólf ríki yfir sérstökum áhyggjum af afleiðingum tollanna á Bretland.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir