Fjarverandi Óttarr sagður á flótta undan umræðu um einkarekið heilbrigðiskerfi

Í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í dag sögðu þingmenn stjórnar­andstöðunnar Óttar Proppé forðast umræðuna um einka­rekstur í heilbrigðis­kerfinu. Svör hans væru loðin.

Heilbrigðisráðherra
Heil­brigð­is­ráð­herra Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýna Óttarr Proppé fyrir að gefa óljós svör um einka­væð­ingu heil­brigð­is­kerfis Íslands. Mynd: Af Facebook-síðu Bjartrar framtíðar

Þingmenn stjórnar­andstöðu gagnrýndu orð Óttars Proppé, heilbrigðis­ráðherra um einka­væðingu heilbrigðis­þjónustunnar í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í dag. Þingmenn segja svör Óttars um tilkomu einka­sjúkrahús Klíníkarinnar vera loðin og segja Óttar reyna að koma sér undan umræðunni.

Rætt var um ummæli Óttars á Alþingi þann 23. mars þegar rætt var um málefni Klíníkurinnar í óundirbúnum fyrirspurna­tíma, en þá sagði Óttarr: „Það er ekki ég sem veiti starfs­leyfi fyrir starfsemi eða stofum, aðstöðu sérfræðinga úti í bæ, það er embætti land­læknisins sem veitir starfs­leyfi fyrir stöðinni.“

Embætti land­læknis sendi út tilkynningu þann 19. apríl vegna misskilnings sem gætir í umræðu um heilbrigðis­þjónustu. Leið­réttir land­læknir bæði ummæli sem Óttarr Proppé lét falla á Alþingi og full­yrðingu sem birtist í frétt Morgun­blaðsins daginn eftir. Land­læknir telur að túlkun heilbrigðis­ráðuneytisins á heilbrigðis­lögum geri það að verkum að einka­rekstur og einka­væðing á sviði sérhæfðrar heilbrigðis­þjónustu og sjúkrahús­þjónustu geti haldið áfram að vaxa hér á landi. „Embætti land­læknis hefur ítrekað reynt að leiðrétta þann misskilning að embættið veiti leyfi til rekstrar heilbrigðis­þjónustu. Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu á land­læknir að staðfesta að fyrir­hugaður rekstur heilbrigðis­þjónustu uppfylli faglegar lágmarks­kröfur,“ sagði í tilkynningunni. 

„Hvar er hann nú?“

Óttarr Proppe var ekki viðstaddur þingfund og kröfðust þingmenn stjórnar­andstöðunnar svara. Sigurður Ingi Jóhannsson segir ráðherrann ekki skýra nægilega vel frá málum. „Hann hefur nú komið fram í fjöl­miðlum og sagt að þetta sé ekkert á hans valdi. Af hverju notaði hann ekki eitthvað af þessum fyrir­spurnum sínum til að upplýsa þingið um hver staðan væri í stað þess að leiða okkur á villigötur? Hér var einu sinni tónelskur þingmaður, oft í gulum fötum, sem talaði mikið um heiðar­leika í stjórn­málum, samstarf og samvinnu og minna fúsk. Hvar er hann nú?“

Birgitta Jóns­dóttir, þingmaður Pírata, segir svör Óttars loðin. „Ég vil taka undir þau orð sem hér hafa komið fram og jafnframt minna á að hæstvirtur ráðherra var nú í dauða­rokksveit þannig að tónelskan vakti oft kátínu, undran og óhug. En aftur á móti hefur það verið einkennandi fyrir þau orð sem komið hafa frá hæstvirtum heilbrigðis­ráðherra er að þau eru alltaf loðin, alltaf þannig að hæstvirtur ráðherra virðist ekki geta komið með afgerandi svör um mjög brýn mál,“ segir Birgitta og segir málið mjög alvarlegt.

Öll spjót að rokkbóndanum

„Nú standa öll spjót á rokk­bóndanum Óttari Proppé heilbrigðis­ráðherra. Hann verður að koma hingað suður, ég hlustaði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Svandís Svavars­dóttir, þingmaður Vinstri grænna, tekur undir og segir: „ Ég sé ekki betur en að ástandið sé þannig núna að hann sé á harðahlaupum undan fjöl­miðlum.“

Fleiri vitna í rokkferil Óttars Proppé. Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata, segir Óttar vera ósamkvæmur sjálfum sér þegar hann staðfesti þann 23. mars að ekki yrði farið út í einka­rekstur í heilbrigðis­kerfinu. „Nú sýnist mér og það er vont að upplifa það, ég vissi það ósköp vel að maðurinn væri í hljómsveit sem heitir HAM, en að hann gæti skipt svo auðveldlega um ham kemur mér því miður á óvart.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár