Bjarni braut niður staðalmyndir með kökuskreytingum - Aðeins þriðjungur þingmanna flokks hans konur

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra ræddi köku­skreytingar­áhuga sinn og vildi brjóta niður staðal­myndir kynjanna sem fulltrúi Íslands í jafnréttis­átakinu He for She í New York. Aðeins þriðjungur þingmanna í flokki Bjarna eru konur og væri meirihluti þingmanna konur ef ekki væri fyrir Sjálfstæðis­flokkinn.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Sagðist ekki baka kök­una heldur skreyta hana. Mynd: Forsætisráðuneytið

„Það sem þið sjáið hér eru bleikar hendur,“ sagði Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra á fundi með stjórn­endum UN Women í New York í gær í tilefni af alþjóð­legum baráttu­degi kvenna. 

Bjarni er þar sem fulltrúi Íslands vegna þess að Ísland er eitt af tíu ríkjum þar sem hæst hlutfall karlmanna skrifaði nafn sitt undir yfir­lýsingu vegna jafnréttis­átaksins HeForShe. Hann er titlaður einn af málsvörum HeForShe, einn tíu þjóðar­leiðtoga.

Bjarni greindi frá því á fundinum í gær að hann væri með bleikar hendur vegna matar­litar sem hann hafði notað við að skreyta köku með merki He for She. „Þetta er ekki vegna þess að ég hafi fjarlægt naglalakk af höndunum á mér, þetta er vegna einhvers sem mér finnst gaman að gera, og ég gerði í gærkvöldi, sem var að baka köku. Þetta var úr matar­litnum fyrir sykur­massann.“ 

Í tilkynningu frá forsætis­ráðuneytinu kemur fram að Bjarni hefði afhent Elizabeth Phumzile, framkvæmda­stýru UN Women, kökuna sem hann skreytti, á fundinum.  

„Auk þess að ræða mikilvægi þess að brjóta niður staðalímyndir og að virkja karla í jafnréttis­baráttunni, lagði forsætis­ráðherra áherslu á launa­jafnrétti kynjanna og mikilvægi jafn­launa­staðalsins í þeim aðgerðum,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Jafnréttismál í ólestri í flokki Bjarna

Bjarni hefur verið gagn­rýndur á Íslandi fyrir að hafa ekki tekið afstöðu með jöfnu kynja­hlutfalli á Alþingi. Kynja­hlutföll þingmanna stjórnmála­framboða á Alþingi eru nokkuð jöfn, en í Sjálfstæðis­flokknum eru konur aðeins þriðjungur þingmanna. Þar sem konur eru 47,6 prósent þingmanna er ljóst að munurinn liggur í Sjálfstæðis­flokknum.

Allir flokkar fyrir utan Sjálfstæðis­flokkinn höfðu reglur eða viðmið um kynja­hlutföll á listunum sínum. Í kjölfar prófkjara Sjálfstæðis­flokksins sögðu þrír formenn Lands­sambands sjálfstæðis­kvenna, þáverandi og fyrr­verandi, sig úr flokknum. Í yfir­lýsingu frá Helgu Dögg Björgvins­dóttur, Jarþrúði Ásmunds­dóttur og Þórey Vilhjálms­dóttur kom fram að þær hefðu gefist upp á að breyta íhalds­sömum viðhorfum í flokknum. „Nú teljum við full­reynt að hreyfa við þeim íhalds­sömu skoð­unum og ­gildum sem ríkja um jafn­rétt­is­mál í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Ýmis­ skref hafa verið stigin sem ættu að leiða til auk­ins jafn­rétt­is kynj­anna á síð­ustu árum. Víð­tæk and­staða hefur þó ver­ið ­gegn því að ganga lengra í að breyta kerfi og ásýnd flokks­ins í þá veru að konur fáist til þátt­töku.“

Einn af þeim sem hafa gagnrýnt að Bjarni sé í forsvari fyrir Ísland í samhengi jafnréttis­átaksins er Sóley Tómasdóttir, fyrr­verandi borgar­fulltrúi Vinstri grænna. „Ok. Bjarni mun þá kannski segja frá því að ef ekki væri fyrir Sjálfstæðis­flokkinn, þá væru konur í meirihluta á Alþingi í fyrsta skipti. Að Sjálfstæðis­flokkurinn, einn flokka, hafi ekki gripið til neinna aðgerða til að leiðrétta stöðu kvenna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár