Eins og undanfarin ár stefnir í metár hvað varðar fjölda ferðamanna á Íslandi sem nú koma til landsins allt árið um kring. Veturinn hefur verið mildur og hægt að ferðast um landið allt og sækja staði sem hingað til hafa ekki verið fjölsóttir ferðamannastaðir eða aðgengilegir að vetri til. Ferðamannafjöldinn og veðráttan skapa nýjar áskoranir í náttúruvernd, brýna þörf á að stýra og bæta aðgengi, og ekki síst auka fræðslu um allt land til að hvetja til ábyrgrar umgengni um landið.
Landverðir gæta þess að ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga séu virt. Fræðsla er stærsti hluti starfsins. Markmiðið með fræðslu er að auka skilning á náttúrunni með það fyrir augum að þekking leiði til virðingar og virðing til verndunar. Fræðslustarf landvarða er fjölbreytt en landverðir reyna að ná til allra gesta í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum landsins til að veita upplýsingar og hvetja til ábyrgrar umgengni um svæðin, en þeir eru eins og staðan er í dag of fáir og ná því miður ekki að sinna öllum gestum þessara svæða, hvað þá landinu öllu.
Endurheimt landslags eftir utanvegaakstur er eitt af störfum landvarða. Utanvegaakstur er ólöglegur á Íslandi vegna þess að hann hefur alvarleg áhrif á náttúruna. Utanvegaakstur gefur slæmt fordæmi en reynslan sýnir að þar sem spjöll (hjólför) eru utanvegar hvetur það til frekari utanvegaaksturs. Landverðir reyna að afmá för eftir utanvegaakstur og koma þannig í veg fyrir frekari spjöll á náttúrunni. En skaðinn er því miður skeður og getur tekið ár og áratugi fyrir jarðveg og gróður að jafna sig. Samkvæmt lögum sætir brotaaðili (sá sem ekur utanvegar) sektum, fangelsi allt að fjórum árum, og að ökutækið sé gert upptækt – eftir alvarleika brotsins. Í flestum tilfellum er utanvegaakstur vegna vanþekkingar á afleiðingunum og lögum landsins. Aukin fræðsla er því lykilatriði.
Í vetur kom upp alvarlegt atvik utanvegaaksturs í hlíðum Hverfjalls/fells í Mývatnssveit. Lögregla og landverðir fengu tilkynningu frá vitni um ljótan utanvegaakstur. Vitnið hafði tekið myndir og með útsjónarsemi margra aðila tókst að hafa upp á brotaaðilum og þeir sektaðir. Lögreglan á Norðurlandi eystra hvatti í kjölfarið til aukins eftirlits og umræðu alls samfélagsins um utanvegaakstur ef ekki ætti illa að fara í náttúru Íslands. Landverðir taka undir með lögreglu og hvetja til átaks allra ferðaþjónustuaðila, flugfélaga, bílaleiga, skipaflutninga, landeigenda, lögreglu og almennra borgara að efla fræðslu um náttúruverndarlög og afleiðingar utanvegaaksturs.
Vinnum saman að frekari fræðslu og hvetjum alla til ábyrgrar umgengni um náttúru Íslands – útrýmum þannig utanvegaakstri.
Athugasemdir