Landverðir gæta þess að ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga séu virt. Fræðsla er stærsti hluti starfs landvarða og fer fræðslan víðs vegar fram. Í þjóðgörðum og á einstaka friðlýstum svæðum er að finna gestastofur þar sem ferðamenn geta leitað til landvarða um upplýsingar og aðstoð. Innan þjóðgarðanna, sérstaklega á hálendinu, hefur verið aukin áhersla á svokallaða vegalandvörslu, en þá stoppa landverðir umferð á vegum innan þjóðgarðsins, bjóða gesti velkomna og veita nauðsynlegar upplýsingar um aðstæður, veður, náttúrufar og staðhætti. Gestum er kynnt sú þjónusta sem er í boði á svæðinu eins og hvar gisti- og salernisaðstöðu megi finna. Slík upplýsingagjöf er brýn, stundum kemur það ferðamönnum til dæmis á óvart að nota beri skipulögð tjaldsvæði fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla. Þá nota landverðir tækifærið við upplýsingagjöf að hvetja ferðamenn til ábyrgrar umgengni um náttúruna. Útskýra þeir mikilvægi þess að njóta og upplifa án þess að taka með sér minjagripi eða skilja eftir sig ummerki, með því að fjarlægja til dæmis ekki steina eða plöntur og hlaða ekki vörður á ferð um friðlýst svæði og þjóðgarða.
Ferðamenn hafa tekið mjög vel í upplýsingagjöf af þessu tagi og oftar en ekki brenna á þeim margrar spurningar sem þeim gefst tækifæri til að bera undir landverði í vegalandvörslu. Ferðamenn eru oft fróðleiksþyrstir og taka því fagnandi þegar þeim gefst tækifæri til þess að staðsetja sig og átta sig á umhverfinu, á annan hátt en með eigin augum og með bók í hönd. Og það er einmitt þessi skilningur á umhverfinu og náttúrunni sem skilar sér í betri umgengni og stuðlar að náttúruvernd.
Í kjölfar kynningar landvarða nýta margir gestir sér fræðsluferðir á svæðinu, en ferðamönnum á eigin vegum stendur til boða að taka þátt í fræðsludagskrá landvarða. Landverðir bjóða víða í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum upp á svokallaða náttúrutúlkun í styttri sem lengri skipulögðum gönguferðum, barnastundum, sem og í óformlegu spjalli við gesti þar sem tækifæri gefst. Á sumrin eru til dæmis daglega gönguferðir í Öskju og á Holuhrauni, Hvannalindum, Ásbyrgi, Skaftafelli og Þingvöllum. Þá eru árlegar sérgöngur eins og Geimgangan úr Drekagili í Nautagil gríðarlega vel sóttar af bæði ferðamönnum og vísindamönnum sem starfa á svæðinu á hverju sumri.
Ferðamenn sem ferðast á eigin vegum um landið eru hvattir sérstaklega til að kynna sér fjölbreytta fræðsludagskrá landvarða. Náttúrutúlkun með landverði er fræðandi og skemmtileg fyrir innlenda jafnt sem erlenda ferðalanga, unga sem aldna, og dýpkar upplifun og skilning á umhverfinu. Og hver veit – kannski leynist næsti tunglfarinn í göngu með landverði.
Athugasemdir