Árið 896 dó páfinn í Róm, ítalskur preláti að nafni Formósus. Hann hafði setið á páfastóli í fimm ár og aflað sér margra óvina - enda var páfastóll þá fyrst og fremst veraldleg valdastofnun á Ítalíu. Ári seinna var kominn með páfahatt svarinn fjandmaður Formósusar heitins, Stefán VI nefndist sá. Svo heitur var hann í hatri sínu gegn Formósusi að hann lét grafa upp lík fyrirrennara síns og svo voru haldin réttarhöld yfir rotnandi kroppnum.
Segir sig næstum sjálft að Formósus var dæmdur sekur, enda kom hann litlum vörnum við, svona steindauður eins og hann var. Þrír fingur hægri handar - þeir sem Formósus hafði notað til að blessa með - voru hoggnir af og svo var líkinu kastað í ána Tíber.
Stefán varð ekki langlífur eftir þetta og eftir að hann dó var lík Formósusar grafið með viðhöfn að nýju - en einhver fylgismanna hans hafði fiskað líkið upp úr fljótinu á sínum tíma. Og lauk þannig einhverjum furðulegasta kaflanum í sögu Vatíkansins.
En svipaðar sögur má finna víðar - og meira að segja í sögu Bretaveldis.
Árið 1649 var Karl I kóngur hrakinn frá völdum af aðalsmönnum sem réðu breska þinginu. Þeir létu sér ekki nægja að reka Karl af valdastóli, heldur var hann leiddur á höggstokk og afhausaður.
Við völdum í landinu tók Oliver Cromwell, sem kallaði sig „Lord Protector“ sem þýða mætti sem „ríkisverndara“ eða eitthvað í þá áttina. Cromwell hafði verið einn af leiðtogum þingsins. Árið 1658 lést Cromwell hins vegar og eftir ýmislegt japl og laml og fuður varð úr að Bretar endurreistu konungsveldið.
Karl II, sonur hins fyrra Karls, varð þá konungur.
Konungssinnar voru enn gramir Cromwell og 1661 var lík hans - sem hafði verið jarðað með viðhöfn í Westminster Abbey - grafið upp og hálshöggvið þann 31. janúar en þann dag voru liðin rétt tólf ár frá því að Karl I var hálshöggvinn.
Síðan var höfuðlaust lík Cromwell hlekkjað með þykkum keðjum og hengt á aftökustað. Að lokum var skrokknum kastað í fjöldagröf.
Afhöggvið höfuð Cromwells var fest upp á stöng fyrir framan breska þingið og þar rotnaði höfuðið í rólegheitum í næstum aldarfjórðung eða til 1685 þegar höfuðkúpan með þeim litlu holdleifum sem eftir voru var tekið niður. Kúpan flakkaði svo milli fjölmargra eigenda næstu áratugi og aldir en árið 1960 var það grafið niður í kapellu einni í Cambridge.
Þannig fór fyrir ríkisverndaranum Cromwell - eða hvað?
Þrálátur orðrómur hefur nefnilega lengi verið á kreiki um að líkið sem var hálshöggvið og hengt hafi alls ekki verið lík Cromwells.
Sú saga hermir að þegar ákveðið hafði verið að endurreisa konungsveldið, skömmu eftir að Cromwell dó, þá hafi gamlir stuðningsmenn hans látið grafa upp líkið í Westminster Abbey - einmitt til þess að forða því undan hugsanlegri hefnd konungssinna.
Og það hafi hlotið kristilega greftran annars staðar.
En í staðinn hafi líki óþekkts manns verið komið fyrir í gröf Cromwells. Og það hafi svo verið afhausað hálfrotnandi og hengt upp hlekkjað og loks varpað í fjöldagröf.
Athugasemdir