Kæri fáviti

Hug­leikur Dagsson er harð­orður en jafn­framt kær­leiks­ríkur í garð fávita í nýjum pistli sínum

Kæri fáviti
Ú Á ÚDLEMDINGA Mynd: Hugleikur Dagsson

Og bara svo þú fattir örugg­lega hvern ég er að kalla fávita þá er ég að tala við þig, þú sem ert í Þjóð­fylk­ing­unni, þú sem ert í Her­mönnum Óðins, þú sem mættir á Aust­ur­völl að mót­mæla brúnu fólki og gast ekki gubbað uppúr þér heillri brú til að rök­styðja þitt mál þegar fjöl­miðlar gáfu sig á tal við þig. Þú sem að felur þig bak­við gard­ínur og bölvar inn­flytj­endum. Þú ert lít­ill. Þú ert lít­ill og hræddur.

Afhverju ertu svona hræddur við útlend­inga? Afþví þau borða öðru­vísi mat og tala furðu­lega? Halló, við borðum aktu taktu og syngjum ó mig langar uppá þig. Við erum ekk­ert betri. Landa­mæri eru bara ein­hver strik sem löngu dauðir kallar drógu í sand­inn. Trú­ar­brögð eru bara ólík ævin­týri með sama boð­skap. Við erum öll sama fokkin apa­teg­undin á sömu fokkin mold­ar­kúl­unni. Hættum þessu rugli, byggjum geim­skip og finnum aðra apa til að leika við. Ég veit ég hljóma eins og ein­hver nýald­ar­hippi en það er betra en að vera fáviti.

Ég gæti þóst hissa á því að svona fávita­skapur tíðk­ist hér á landi en ég er það ekki. Því engin þjóð er betri en önnur. Allar þjóðir, lönd, menn­ing­ar­svæði og trú­ar­brögð geta fram­leitt fávita eins og þig. Fávitakapur hefur ekk­ert með landa­fræði/lit­ar­haft/trú­ar­brögð að gera en allt með ótta að gera. Ekki vera hræddur. Það er eng­inn að fara að sprengja okkur eða klæða okkur í burk­ini. Við erum bara Ísland. Öllum er sama um okkur. Afhverju ekki að hleypa öðrum að? Við getum ekki riðið frænd­fólki okkar for­ever.

Og hættu að fela þig bak­við tján­inga­frelsi. Bara vegna þess að þú mátt segja það sem þú ert að segja gerir þig ekk­ert að minni fávita. Fávitar elska tján­inga­frelsi. Ég meina kommon, þessi pist­ill er tján­ing­ar­frelsi. Þannig að ekki kommenta ein­hver öng­stræt­is­rök um að ég sé að banna þér að vera fáviti. Þú hefur jafn mik­inn rétt á að vera fáviti og hef rétt á að kalla þig fávita. Þannig virkar tján­ing­ar­frelsi. Fáviti.

Ég fatta núna að ég er ekki að hjálpa umræð­unni með svona aggressívum pistli. Að mæta hatri með heift er í raun frekar fávita­legt af mér. Ég skal hætta. En nennir þú þá líka að hætta? Það er ekki of seint. Húð­flúr­aðu pulsu við hlið­ina á SS tattú­inu þínu. Hlustaðu á pönk og hip hop. Horfðu á Star Trek og lærðu að Klin­gonar og Vúlkanir geta verið vinir. Í alvöru, þú ert örugg­lega fínn gaur. Komdu hérna. Knúsaðu mig.

Hulli

 

Pistill­inn birt­ist upp­haf­lega á Facebook síðu Hugleiks Dags­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár