Á undanförnum áratugum hafa verið stundaðar rannsóknir og mælingar á hamingju fólks og því hvað talið er nauðsynlegt til að það geti verið hamingjusamt. Ég hef svo sem ekki sett mitt líf á þessa hamingjuvog erlendra vísindamanna, en tel mig samt hafa lært að hamingjan kemur ekki í pósti á morgnana. Því þarf maður að finna hamingjutilfinninguna innra með sér og efla hana daglega, kannski oft á dag til að geta verið hamingjusamur.
Fyrir meira en tuttugu og fimm árum síðan fór ég meðvitað að tileinka mér jákvæðara hugarfar og viðhorf til lífsins. Það umbreytti lífi mínu þá og ef við hugsum hamingjustigið eins og skala, hefur mér tekist að hækka skalann mjög mikið frá því sem þá var. Til að öðlast meiri hamingju hef ég lagt mig fram um að tileinka mér alltaf þetta þrennt:
- Að beina athygli minni að því jákvæða.
- Að þakka fyrir ALLT í lífi mínu.
- Að brosa við lífinu (því þá brosir það oftar við mér).
Með þessu hefur mér tekist að finna hamingju í svo mörgu í kringum mig. Ég vakna hamingjusöm á morgnana og þakklát fyrir að vera heilbrigð, eiga mitt eigið heimili, geta séð og heyrt og vera í starfi sem gerir mig hamingjusama. Ég viðurkenni alveg að hamingjan hækkar töluvert mikið í góðu veðri, því sól og ylur fyllir á einhvern óskiljanlegan hátt hjarta mitt af enn meiri hamingju.
Ég er líka svo yfirmáta hamingjusöm með að eiga tvo yndislega syni og ekki skemmir að sjá þá hamingjusama í sínum hjónaböndum. Það er alveg dásamlegt að finna hvernig hamingja annarra eykur á hamingju mína. Ekki er hamingjan síðri yfir barnabörnunum og mér sýnist það nú ekki bara eiga við um mig, því ég sé ekki betur en flestir afar og ömmur brosi þessu innilega hamingjubrosi þegar þeir halda á barnabörnunum sínum.
Það felst líka mikil hamingja í því að eiga góða vini og fá að njóta samvista með þeim. Sterk vinabönd standast yfirleitt tímans tönn og það er mikil hamingja.
Eiginlega get ég ekki fjallað um hamingju, án þess að fjalla um fornu merkinguna á orðinu hamingja. Þá var talað um hamingju sem fylgju, að einhver hefði sterka hamingju, því hann hafði öfluga vernd með sér eða einhvern sem gerði vart við sig áður en viðkomandi birtist í eigin persónu. En hver sem túlkun orðsins er þá felst mesta hamingjan að mínu mati í því að njóta augnabliksins.
Hamingjan í hinu hversdagslega
- Sjá nýtt laufblað myndast á blóminu mínu
- Hitta óvænt góðan vin/vinkonu
- Sjá hamingjusamt fólk á förnum vegi
- Komast heil heim eftir langt ferðalag
- Fara í heita sturtu heima eftir að hafa verið erlendis
- Finna skemmtilega gjöf handa einhverjum sem mér þykir vænt um
- Fara á leikvöllinn með barnabarninu
- Vera spurð af barnabarninu “hvað ég ætli að verða þegar ég verð stór”
- Fá útrás fyrir sköpunarþörf mína í því sem ég geri
- Vakna og sjá að það er sól úti
- Fylgjast með komu farfuglanna á vorin
- Sjá litinn á laufum trjánna breytast á haustin
- Dansa á trampólíninu mínu við Happy lagið hans Pharrell Williams
Athugasemdir