Prófessorinn Robert D. Hare er einn af þeim sálfræðingum sem hvað mest hefur rannsakað siðblindu, og hegðun þeirra sem henni eru haldnir. Þróaði hann hinn svokallaða Hare Pshychopathy Checklist, gátlista yfir einkenni siðblindu, til þess að auðvelda greiningu. Er sá listi mjög áhugaverð lesning.
1. Tungulipurð og yfirborðskenndir persónutöfrar
Siðblindir eiga oft gott með að koma fyrir sig orði. Þeir geta verið þægilegir viðræðu og aðlaðandi. Oft segia þeir hróssögur af sjálfum sér eða koma vel fyrir við fyrstu sýn.
2. Stórmennskuhugmyndir um eigið ágæti
Siðblindir eru oft fullir aðdáunar á eigin ágæti og hafa ákaflega ýktar hugmyndir um það. Þeir eru sjálfselskir og telja sig nafla alheimsins.
Þetta finnst þeim gefa sér rétt til að haga lífi sínu eftir eigin höfði.
Þeir halda því oft fram að þeir stefni að ákveðnum markmiðum en hunsa aftur á móti kröfurnar sem þarf að uppfylla til að ná slíkum markmiðum. Oft vantar þá menntun eða skólagöngu til þess arna eða hafa forsögu sem kemur í veg fyrir líkt.
3. Skortur á eftirsjá eða sektarkennd
Siðblindir sýna ótrúlegt hirðuleysi um hvaða afleiðingar gjörðir þeirra hafa fyrir aðra, sama hversu niðurbrjótandi þær kunna að vera. Þeir geta verið alveg hreinskilnir um þetta, haldandi því rólega fram að þeir hafi enga sektartilfinningu, sé alveg sama um þann sársauka sem þeir ollu og að það sé engin ástæða til að láta þetta sig neinu máli skipta.
Skortur á eftirsjá eða sektarkennd tengist þeim stórmerkilega hæfileika að geta ævinlega réttlætt hegðun sína og hrist af sér persónulega ábyrgð á ýmsum verkum sem valda fjölskyldu, vinum og öðrum hrolli og vonbrigðum. Venjulega hafa siðblindir þægilegar afsakanir fyrir hegðun sinni á hraðbergi og stundum neita þeir einfaldlega að atburðir hafi átt sér stað.
4. Skortur á samhygð
Mörg þau einkenni sem siðblindir sýna eru nátengd djúpstæðum skorti á samhygð og vanmætti til að sjá aðra manneskju sem tilfinningaveru. Þeir geta ekki sett sig í annarra spor þótt þeir geti vitað hvernig öðrum líður. Þær upplýsingar eru þeim bara þurrar staðreyndir.
Þeim er algerlega sama um réttindi eða þjáningar hvort sem um er að ræða fjölskyldumeðlimi eða ókunnugra. Ef þeir tengjast fjölskylduböndum þá er það eingöngu vegna þess að þeir líta á fjölskyldumeðlimi sem eign.
5. Svikulir og stjórnsamir / drottnunargjarnir
Á valdi ímyndunaraflsins og baðaðir í eigin birtu virðast siðblindir ótrúlega ónæmir fyrir þeim möguleika - eða jafnvel staðreynd - að upp um þá komist. Þegar þeir eru staðnir að lygi eða sannleiknum flaggað framan í þá virðast þeir sjaldan verða hissa eða fara hjá sér - þeir breyta einfaldlega sögunni eða reyna að aðlaga eða skrumskæla staðreyndir svo þær falli að lyginni. Afleiðingin eru annars vegar alls konar staðhæfingar sem stangast á og hins vegar mjög ringlaður hlustandi.
6. Yfirborðskennt tilfinningalíf
Siðblindir virðast þjást af einhvers konar tilfinningafátækt sem setur umfangi og dýpt tilfinninga þeirra skorður. Stundum virðast þeir kaldir og fálátir en eiga til að sýna dramatískar tilfinnnaþrungna takta, sem reyndar standa stutt og rista grunnt. Athugult vitni að slíku fær á tilfinninguna að þeir séu bara að leika og atriðið sé heldur yfirborðskennt.
7. Hvatvísi
Siðblindir eru ólíklegir til að eyða miklum tíma í að hugleiða fyrirfram kosti og galla gerða sinna eða íhuga hugsanlegar afleiðingar þeirra.
„Ég gerði þetta vegna þess að ég var í stuði til þess“, er algengt svar. Hvatvís hegðun stafar oft af því markmiði sem er siðblindum efst í huga: Að ná samstundis fullnægju, ánægju eða létti.
En fjölskyldumeðlimir, ættingjar, vinnuveitendur og samverkamenn standa gjarna á gati og spyrja sig hvað hafi eiginlega komið fyrir; hætt er í vinnu, samböndum slitið, áætlunum breytt, hús rænd, fólk meitt, oft að því er virðist einungis af einhverjum duttlungum.
8. Léleg sjálfsstjórn
Auk þess að vera hvatvísir sýna siðblindir sterk viðbrögð við öllu því sem þeir telja móðgun eða hunsun. Flest okkar hafa öfluga innbyggða stjórn á eigin hegðun; jafnvel þótt okkur langi til að bregðast grimmilega við þá getum við venjulega stillt okkur. Í siðblindum er þessi innbyggða stjórn veik og minnsta ögrun nægir til að þeir missa hana.
Afleiðingin er sú að þráðurinn í siðblindum er stuttur, þeir eru fljótir að rjúka upp og hneigjast til að bregðast við vonbrigðum, mistökum, aga og gagnrýni með skyndilegu ofbeldi, hótunum eða að hella sér yfir viðkomandi. En þessi skapofsi, svo óskaplegur sem hann kann að vera, stendur stutt og fljótlega láta þeir eins og ekkert hafi í skorist.
Þótt siðblindir séu eins og þaninn þráður eru árásir þeirrar „kaldar“ því þá skortir skaphitann sem veldur því að venjulegt fólk missir stjórn á sér.
9. Spennufíkn
Siðblindir hafa sífellda og gífurlega mikla þörf fyrir spennu eða örvun - þeir þrá að lifa lífinu hratt eða vera í miðri hringiðu atburðanna. Í mörgum tilvikum er spennan fólgin í að brjóta reglur.
Hin hliðin á þessari spennufíkn er að þola illa fastar skorður eða einhæft líf. Siðblindum leiðist auðveldlega og þeir eru ekki líklegir til að taka þátt í neinu rólegu athæfi, sem er síendurtekið eða sem krefst mikillar einbeitingar um langa hríð.
10. Ábyrgðarleysi
Skyldur og skuldbindingar eru merkingarlaus fyrir siðblindingja. Fögur fyrirheit á borð við: „Ég mun aldrei aftur svíkja þig“ eru loforð út í loftið.
Sögur af hroðalegri óreiðu í fjármálum sýna að stofnað er til skulda án fyrirhyggju, afborganir lána hunsaðar, meðlag með börnum látið veg allrar veraldar. Frammistaða siðblindra í vinnu er ófyrirsegjanleg og oft fylgja margar fjarvistir, misnotkun á eigum fyrirtækisins, brot á reglum fyrirtækisins og almennt er þeim alls ekki treystandi. Þeir fylgja ekki formlegum reglum eða óformlegu samþykki í samskiptum við fólk, stofnanir eða stjórnendur.
11. Hegðunarvandi í æsku
Flestir siðblindir sýna alvarlega hegðunartruflanir frá bernsku. Þetta geta verið endurteknar lygar, svindl, þjófnaður, íkveikja, skróp, misnotkun vímuefna, skemmdarverk eða óvenju snemmkominn kynþroski. Vegna þess að oft má finna einhverja þessa þætti í börnum - sérstaklega börnum sem alast upp í ofbeldisfullu umhverfi eða í rofnum fjölskyldum þar sem einhvers konar misnotkun á sér stað - er mikilvægt að leggja áherslu á að saga siðblindra í þessum efnum er viðameiri og alvarlegri en flestra, jafnvel þótt hún sér borin saman við sögu systkina eða vina sem ólust upp við sambærilegt atlæti.
12. Andfélagsleg hegðun á fullorðinsaldri
Siðblindir líta á reglur og væntingar samfélagsins sem óþægilegar og ósanngjarnar hindranir gegn þeirra eigin hegðunarmáta. Þeir búa til sínar eigin reglur, bæði sem börn og sem fullorðnir.
Margar andfélagslegar gerðir siðblindra leiða til kæru og dóms. Jafnvel innan glæpamannasamfélagsins skera siðblindir sig úr, aðallega vegna þess að andfélagslegar og ólöglegar gerðir þeirra eru fjölbreyttari og tíðari en annarra glæpamanna. Siðblindir tengjast yfirleitt ekki neinni sérstakri tegund glæpa eða „sérhæfa“ sig í einni tegund heldur virðast til að prófa hvað sem er.
En ekki enda allir siðblindir í fangelsi. Margt sem þeir gera kemst ekki upp og er ekki kært eða er á gráu svæði laganna. Andfélagsleg hegðun þeirra getur falist í braski með verðlaus hlutabréf, vafasömum viðskiptaháttum, að beita konur og börn heimilisofbeldi o.s.fr. Margir siðblindir gera eitthvað af sér sem er ekki beinlínis ólöglegt heldur siðlaust, ósiðlegt eða skaðar aðra. Nefna má framhjáhald eða svik við maka.
Listinn er að mestu tekinn óbreyttur af síðu Hörpu Hreinsdóttur, Siðblinda eða geðvilla.
Athugasemdir