Menn voru eitthvað að hafa áhyggjur af því að Ólafur Ragnar Grímsson hefði líklega setið alveg nógu lengi, og jafnvel töluvert of lengi á forsetastóli á Íslandi.
En í ár hefur hann sem kunnugt er setið í 20 ár.
Nú er ljóst að Ólafur Ragnar verður ekki lengur á Bessastöðum, en miðað við ýmsa aðra þjóðarleiðtoga, þá eru þessi 20 ár svo sem ekki neitt.
Sá þjóðar- eða öllu heldur ríkisleiðtogi sem setið hefur lengt í Evrópu sat að völdum í næstum 82 ár.
Sá góði maður er því miður alls ekki nógu kunnur í veraldarsögunni, en þetta er Bernharður VII lávarður í Lippe.
Á fimmtándu öld samsanstóð Þýskaland - eins og gjarnan bæði fyrr og síðar - af fjölda sjálfstæðra smáríkja. Yfir flestöllum ríktu erfðakóngar eða furstar eða prinsar eða lávarðar. Sá titill er þýðing á þýska orðinu Landesherr, eða landsherra.
Eitt hinna sjálfstæðu smáríkja var Lippe. Það var vissulega ósköp smátt en var þó vandlega sjálfstætt og hafði verið síðan á 12tu öld.
Og íbúar voru þá nokkrir tugir þúsunda - að líkindum álíka margir og Íslendingar.
Lippe er í Norður-Þýskalandi, nálægt borginni Bielefeld og ekki allfjarri Hannover. Smáríkið var kennt við ána Lippe en á bökkum hennar er Tevtóborgarskógur sá þar sem Rómverjar biðu frægan ósigur í fyrirsát Germana árið 9 eftir Krist.
Í ágúst 1429 lést landsherrann eða lávarður Lippe-ríkis, en hann nefndist Símon V. Hann var þá ungur að árum, ekki orðinn þrítugur, og lét aðeins eftir sig einn son, Bernharð, sem var ekki alveg orðinn eins árs.
Bernharður var nú krýndur lávarður Lippe þrátt fyrir ungan aldur. Auðvitað tók hann ekki við stjórnartaumunum sjálfur en hann varð myndugur en fram að því réðu ríkisstjórar í hans nafni - fyrst föðurbróðir hans og síðan biskupinn í Köln sem hafði amtmann sinn í Lippe.
Eftir að Bernharður sjálfur tók við völdum í ríkinu sínu litla, þá kom á daginn að hann var ósmeykur við að láta að sér kveða.
Bernharður blandaði nú Lippe-ríki inn í þrotlausar deilur milli þýsku smáríkjanna og er öll sú saga flóknari en svo að ástæða sé til að rekja hana hér. En dugar að taka fram að Bernharður fékk brátt viðurnefnið „hinn herskái“ og þótti standa fyllilega undir því.
Þótt ekki væri her Lippe-ríkis fjölmennur brúkaði Bernharður hann af heilmikilli fimi og varð yfirleitt ofan á í herjum og átökum.
Og hann hélt völdum í ríkinu til dauðadags, en hann var 82ja ára þegar hann lést í apríl 1511.
Auk deilugirni sinnar og langlífis í starfi, þá er Bernharður VII lávarður í Lippe helst þekktur fyrir kvensemi sína. Hann átti hátt í tug barna með eiginkonu sinni, sem var þýsk prinsessa, en auk þess átti hann að minnsta kosti tólf börn með þremur opinberum hjákonum sínum.
Núna búa á svæðinu þar sem hið sjálfstæða Lippe-ríki var áður um 360.000 manns, sem sé heldur fleiri en Íslendingar.
Athugasemdir