Einkarekin heilsugæsla tekur starfsfólk frá þeirri opinberu

Loforð um að frek­ari einka­væð­ing í heilsu­gæsl­unni myndi skila íslenskum læknum heim hafa ekki stað­ist. Tvær nýjar einka­reknar stöðvar taka til starfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sumar og eru þær að mestu mann­aðar fyrr­ver­andi starfs­fólki opin­berra heilsu­gæslu­stöðva. Þá ákvað rík­is­stjórnin að leiða ekki í lög arð­greiðslu­bann af rekstri heilsu­gæslu­stöðva en gera það að samn­ings­skil­málum sem end­ur­skoð­aðir verða eftir rúm fjögur ár.

Óttarr og Kristján Þór
Óttarr og Kristján Þór Í tíð Óttars og Kristján Þórs hefur verið ráð­ist í miklar einka­væð­ing­ar­fram­kvæmdir í heil­brigð­is­kerf­inu.

Grund­vall­ar­breyt­ingar eru að eiga sér stað á rekstri heilsu­gæslu­stöðva á Íslandi. Þriðja einka­rekna heilsu­gæslu­stöðin var opnuð fyrir skömmu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og fljót­lega verður sú fjórða opnuð. Nýtt fjár­mögn­un­ar­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tók gildi 1. maí og stefnt er að inn­leiðslu þess á land­vísu. Í ávarpi sem Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra flutti fyrr í júní­mán­uði á nor­rænu þingi heim­il­is­lækna sagð­ist hann sann­færður um að opnun tveggja einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva í sumar væri mjög mik­il­vægur liður í rekstri heilsu­gæslu­stöðva og fyrir skil­virkni heil­brigð­is­þjón­ustu.

 

„Til að auka gæði þjón­ust­unnar erum við að kynna til leiks nýtt fjár­mögn­un­ar­kerfi sem við áætlum að auki skil­virkni þjón­ust­unnar og aðgengi að heilsu­gæsl­unni sem fyrsta við­komu­stað í heil­brigð­is­kerf­inu,“ sagði hann.

Framlög til einkareksturs stóraukin

Á und­an­förnum árum hefur einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu auk­ist jafnt og þétt. Þrátt fyrir að íslenskur almenn­ingur sé and­vígur einka­væð­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins hafa umsvif einka­að­ila í heil­brigð­is­þjón­ustu auk­ist og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár