Gagnrýni á innrás Tyrkja jafngildir hryðjuverkum

Banda­lags­ríki Íslend­inga í Nató hótar að láta 3,6 millj­ónir hæl­is­leit­enda „flæða“ yfir Evrópu ef árás Tyrkja á Sýrland verður skil­greind sem inn­rás. Stjórn­ar­her Sýrlands, studdur af Írönum og Rússum, stefnir í átt að tyrk­neskum her­sveitum. Gagnrýni á inn­rás­ina hefur verið gerð refsi­verð og tyrk­neska lands­liðið í knatt­spyrnu tekur afstöðu með inn­rásinni.

Gagnrýni á innrás Tyrkja jafngildir hryðjuverkum
Tyrkir fagna marki Liðsmenn tyrk­neska lands­liðs­ins fögn­uðu marki gegn Albaníu á föstu­dag með her­manna­kveðju til stuðn­ings „písl­ar­vottum“ sem ráð­ast inn í Sýrland.

Gefið hefur verið út að blaða­mönnum í Tyrk­landi, sem flytja gagn­rýnar fréttir af inn­rás tyrk­neska hers­ins í Sýrland, verði refsað fyrir umfjall­anir sínar. Þetta kemur meðal ann­ars fram í yfir­lýs­ingu sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins í Istanbul, stærstu borg Tyrk­lands, þar sem fram kemur að ein­stak­lingar sem „ráð­ast á almanna­frið í Lýð­veld­inu Tyrk­landi, inn­an­lands­frið, sem­heldni eða öryggi“ með „hvers kyns áivr­ið­ingum í fréttum, skrifum eða ljós­vaka­miðlun eða sam­fé­lags­miðlum“ verði sak­sóttir sam­kvæmt hegn­ing­ar­lögum og lögum gegn hryðju­verkum.

Í nýj­ustu vend­ingum í inn­rásinni er greint frá því að stjórn­ar­her Sýrlands, sem studdur er af Írönum og Rússum, sækir nú í átt að tyrk­neska inn­rás­ar­hernum, eftir að kúrdískar her­sveitir náðu sáttum við stjórn­ar­her­inn.

Innrásin gengur undir heit­inu Frið­ar­vor í Tyrk­landi og hefur verið studd opin­ber­lega af tyrk­neska lands­lið­inu í knatt­spyrnu, sem mætir íslenska lands­lið­inu í næsta mán­uði. Franskir stjórn­mála­menn lýstu því yfir að Frakkar ættu að snið­ganga leik Frakk­lands og Tyrk­lands í dag, en utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands ákvað sjálfur að hætta við að sækja leik­inn.

Blaðamenn handteknir

Hakan Demir, rit­stjóri frétta­mið­ils­ins BirGün, var hand­tek­inn á heim­ili sínu í síð­ustu viku eftir að hafa birt tíst á Twitter um inn­rás­ina. Þá var Fatih Gökhan Diler, frétta­rit­stjóri vefrétta­mið­ils­ins Diken, hand­tek­inn á rit­stjórn­ar­skriftofu sinni sama dag, vegna fréttar þar sem vitnað var í tals­mann kúrdískra her­sveita, Lýð­ræð­isafla Sýrlands.

Erdogan Tyrk­lands­for­setiHefur gengið milli bols og höf­uðs á blaða­mönnum, dóm­urum og fleirum, eftir að valda­ránstil­raun var stöðvuð árið 2016.

Báðir voru látnir lausir, en rann­sókn stendur yfir. Þeim er meinað að fara úr landi. Evr­ópu­ráðið hefur sett atvikin á lista yfir ógn gegn lýð­ræð­inu.

Á þriðja hund­rað blaða­manna hafa verið hand­teknir frá árinu 2016, eftir að valda­ránstil­raun fór út um þúfur. Í fyrra voru 122 blaða­menn dæmdir í fang­elsi.

Evr­ópu­sam­bandið hefur ákveðið að hætta vopna­flutn­ingum til Tyrk­lands vegna inn­rás­ar­innar, sem átti sér stað eftir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ákvað án sam­ráðs við ráð­gjafa sína og þingið, að draga her­lið Banda­ríkj­anna frá landa­mærum Tyrk­lands og Sýrlands. Á sama tíma hótar Recep Erdogan Tyrk­lands­for­seti því að láta millj­ónir flótta­manna flæða yfir Evr­ópu­ríki ef þau skyldu lýsa inn­rásinni sem her­setu. Þá segir Erdogan að Evr­ópu­ríki taki afstöðu með hryðju­verkum.

Sameinuðu þjóðirnar uggandi

Yfir­lýstur til­gangur inn­rás­ar­innar er að skapa öruggt svæði innan landamæra Sýrlands við Tyrkland, þangað sem senda mætti sýr­lenska flótta­menn. 

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa gefið út að 160 þús­und manns hafi flúið heim­ili sín við inn­rás Tyrkja, auk þess sem fjöldi almennra borg­ara hafi týnt lífi. Þá lýsa bæði SÞ og Evr­ópu­sam­bandið yfir áhyggjum af þeim 12 þús­und liðs­mönnum sam­tak­anna sem kenna sig við Íslamska ríkið, sem eru í haldi Kúrda. Her­deildir Kúrda hafa verið í lyk­il­hlut­verki við að sigr­ast á Íslamska rík­inu, en Tyrkir skil­greina kúrdísku sveit­irnar sem hryðju­verka­sam­tök. Kúrdar voru áður studdar af Banda­ríkja­mönnum, þar til Trump for­seti ákvað eftir sím­tal við Erdogan að snúa við blað­inu. Nú hafa kúrdísku sveit­irnar hins vegar myndað banda­lag með sveitum Assads Sýr­lands­for­seta, sem studdur er af Íran og Rúss­landi. Hassan Rouhani, for­seti Írans, sagði í dag að rík­is­stjórn hans „sam­þykkti ekki aðferð­ina sem [Tyrkir] beita“ og bað Tyrki að láta af inn­rásinni. Erdogan sagð­ist hins vegar ekki ætla að bakka, „sama hvað hver segir“. 

Á sama tíma er Vladimir Putin Rúss­lands­for­seti í heim­sókn í Sádí-Arabíu, en ríkið á Arab­íu­skag­anum hefur lengi verið einn nán­asti banda­maður Banda­ríkj­anna á svæð­inu.

Lyk­il­fólk í banda­rísku full­trúa­deild­inni og öld­unga­deild­inni ráða nú ráðum sínum um mögu­legar refsi­að­gerðir gegn Tyrkjum, studdar af Demókrötum og Repúblikönum.

Myndband ViceErdogan hefur hótað Evr­ópu­sam­band­inu að senda 3,6 millj­ónir flótta­manna þangað, ef inn­rásin sem hann fyr­ir­skip­aði í Sýrland verður kölluð her­seta.

Rætt á Íslandi

Ísland er ásamt Tyrk­landi hluti af Norður-Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, en sam­starfið felur í sér að árás á eina þjóð Nató er árás á þær allar.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra svar­aði í dag fyr­ir­spurn Halldóru Mogensen, þing­manns Pírata, á Alþingi, þar sem hún velti því upp hvort Tyrkir gæti dregið Íslend­inga með sér í stríð. „Get­um við treyst á varn­ar­sam­starf með þjóðum eins og Banda­ríkj­un­um og Tyrk­landi? ... Er kom­inn tími til að end­ur­skoða veru okk­ar í NATO?“ spurði Halldóra.

„Er kom­inn tími til að end­ur­skoða veru okk­ar í NATO?“

Guð­laugur svar­aði því til að „fljótsvarað“ væri að Tyrka­land gæti ekki dregið Íslend­inga með sér í stríð. „Við mót­mæl­um harð­lega fram­ferði Tyrkja og sömu­leiðis for­dæm­um við brot sem verða á al­menn­um borg­ur­um,“ sagði hann.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri Nató, hefur hins vegar sagt að Tyrkland haldi áfram að vera mik­il­vægur aðili að varn­ar­banda­lag­inu.

Íslensk yfir­völd hafa átt í sam­skiptum við þau tyrk­nesku vegna hvarfs Hauks Hilm­ars­sonar, sem ferð­að­ist til Sýrlands og studdi kúrdískar sveitir til bar­áttu fyrir lýð­ræði. Haukur var sagður hafa týnt lífi í árás tyrk­neska hers­ins.

Vakið hefur athygli að liðs­menn tyrk­neska knatt­spyrnu­lands­liðs­ins lýstu allir sem einn yfir stuðn­ingi við inn­rás Tyrkja í Sýrland þegar þeir heilsuðu að her­mannasið bæði eftir að hafa skorað mark gegn Albaníu á föstu­dag og svo í bún­ins­klefa eftir leik­inn. 

Heilsað að her­mannasiðTyrk­neski lands­liðs­hóp­ur­inn og fylgd­ar­lið lýsa stuðn­ingi við her Tyrkja.

Íslenska lands­liðið í knatt­spyrnu mætir því tyrk­neska 14. nóv­em­ber næst­kom­andi í Tyrk­landi. Skemmst er þess að minn­ast að fjöldi Íslend­inga fékk ógn­andi skila­boð frá stuðn­ings­fólki tyrk­neska lands­liðs­ins eftir að liðið var látið und­ir­gang­ast örygg­is­leit á Kefla­vík­ur­flug­velli og belgískur grínisti beinti upp­þvotta­bursta að liðs­manni Tyrkja þegar hann var í við­tali við fjöl­miðla. Meðal ann­ars var fjöl­skyldu íslenskra íþrótta­f­rétta­manna hótað ofbeldi og nauðg­unum.

Auk þessa kvört­uðu tyrk­nesk yfir­völd form­lega við þau íslensku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár