Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar er sagt frá því að meiri­hluti eft­ir­stand­andi óverð­tryggðra lána á föstum vöxtum munu koma til end­ur­skoð­unar á næstu miss­erum. Frá og með júlí og til og með ágúst á næsta ári munu vextir losna á óverð­tryggðum lánum fyrir sam­an­lagt 410 millj­arða króna. Það er rúm­lega þriðj­ungur af öllum óverð­tryggðum lánum til heim­ila lands­ins.

Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands tók ákvörðun um að halda meg­in­vöxtum bank­ans óbreyttum á síð­asta fundi í mars. Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun spáir áfram­hald­andi flótta yfir verð­tryggð lán á næstu miss­erum. Mynd: Golli

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- mann­virkja­stofn­unar er birt athygl­is­verð grein­ing stöðu hús­næð­is­lána­mark­aðs­ins og breyt­inga vænta megi á honum á næstu mán­uðum.

Heild­ar­út­lán til heim­ila lands­ins nema sam­tals um 2.604 millj­örðum króna, sam­kvæmt gögnum Seðla­bank­ans frá því í febr­úar. Þar af eru 1.390 millj­arðar í formi verð­tryggðra lána og restin, lán að and­virði 1.214 millj­örðum króna bera óverð­tryggða vexti.

Há verð­bólga verð­bólga og vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans hafa leitt af sér örar breyt­ingar á sam­setn­ingu útlána til heim­ila lands­ins. Áður en að Seðla­bank­inn hóf að hækka vexti voru meiri­hluti heim­ila lands­ins með óverð­tryggð lán, sem var í sögu­legu sam­hengi óvenju­leg staða.

Nú hafa flest heim­ili snúið aftur í verð­tryggð lán og gerir HMS ráð fyrir að sú þróun muni halda áfram á þessu ári og fram á það næsta. 

Vextir losna á lánum að andvirði 676 milljarða króna 

Í skýrslu HMS kemur fram að af þeim 1.214 millj­örðum króna af óverð­tryggðum heim­il­anna eru 538 millj­arðar á breyti­legum vöxtum. Greiðslu­byrði slíkra lána hefur hækkað sam­fellt frá miðju ári 2021 þegar vextir voru í lág­marki og eru með­al­vextir nú um 10,9 pró­sent sam­kvæmt Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands.

Enn sem komið eru um 676 millj­arðar króna af óverð­tryggðum lánum á föstum vöxtum. Samkvæmt gögnum Seðla­bank­ans voru vegnir með­al­vextir af slíkum lánum 4,5 pró­sent á fyrri hluta þessa árs. 

Í mán­að­ar­skýrslu HMS segir að frá og með júlí á þessu ári og til ágúst 2025 mun stór hluti þess­ara lána, um 410 millj­arðar króna, koma til end­ur­skoð­unar.

Á þessu rúma ári mun greiðslu­byrði þess­ara lána meira en tvö­fald­ast og telja skýrslu­höf­undar HMS að margir úr þessum hópi lán­tak­enda munu færa sig yfir í verð­tryggð lán. Að því gefnu að stýri­vextir hald­ist háir yfir tíma­bilið sem um ræðir. 

Óljóst er hvenær Seðla­bank­inn muni hefja að lækka vexti. Margir urðu fyrir von­brigðum með ákvörðun Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans í mars um að halda vöxtum óbreyttum. Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans kom fram að verð­bólga væri enn vel yfir vænt­ingum.

Þrátt fyrir að und­ir­ritun kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði hafi dregið úr óvissu, taldi nefndin að spennu í þjóð­ar­bú­inu og aðgerðir í rík­is­fjár­málum vera mikla óvissu­þætti. Þessir þættir gætu leitt til auk­innar eft­ir­spurnar og við­haldið verð­bólgu­þrýst­ingnum. Næsti fundur Pen­inga­stefnu­nefndar er dag­settur 8. maí. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár