Vinir Hauks efast um opinberu frásögnina

Varn­ar­sveitir Kúrda hafa gefið það út að Haukur Hilm­ars­son hafi farist í árás Tyrk­lands­hers þann 24. febr­úar 2018. Snorri Páll Jónsson hefur síð­ast­liðið ár reynt að kom­ast til botns í því hvað varð um besta vin hans. Hann á erfitt með að taka hina opin­beru sögu trú­an­lega enda stang­ast frá­sagnir félaga Hauks af vett­vangi á við hana að veru­legu leyti.

Vinir Hauks efast um opinberu frásögnina
Með grískum anar­kista­sam­tökum Haukur kom til Sýrlands á vegum grísku anar­kista­sam­tak­anna RUIS en hann lauk her­þjálfun hjá tyrk­neska marx­ista­flokknum, MLKP. Mynd: Facebook

Fyrir um ári síðan, eða þann 6. mars 2018, bár­ust fréttir þess efnis að Haukur Hilm­ars­son hefði fallið í árás Tyrk­lands­hers á Afrin-hérað í Norð­vestur-Sýrlandi, en þangað var Haukur kom­inn til að leggja Rojava-bylt­ingu sýr­lenskra Kúrda lið. Fyrstu fréttir af atburðum voru óljósar og sumar þver­sagna­kenndar. Þannig var Haukur ýmist sagður hafa farist í sprengju­árás, skotárás eða loft­árás Tyrk­lands­hers auk þess sem tveir sam­herjar hans, sem voru sagðir arab­ískir í mörgum fréttum en tyrk­neskir í öðrum frá­sögnum, áttu ýmist að hafa fallið með honum eða lifað árás­ina af. Þá virt­ust dag­setn­ingar og stað­setn­ingar atburð­ar­ins tölu­vert á reiki. Varn­ar­sveitir Kúrda, YPG, gáfu síðar út opin­bera yfir­lýs­ingu þar sem því var haldið fram að Haukur hefði lát­ist í sprengju­árás Tyrk­lands­hers á víg­lín­unni Badina-Dimilya þann 24. febr­úar 2018, og hafa þeir haldið þeirri dag­setn­ingu á lofti æ síðan.

Snorri Páll Jónsson og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi
GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­upp­gjörs í Sýrlandi

Banda­ríkja­stjórn sveik sína nán­ustu banda­menn gegn ISIS á dög­unum með því að gefa Tyrkjum skot­leyfi á varn­ar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrk­lands­for­seti er hins vegar kom­inn í stór­kost­leg vand­ræði og inn­rás hans er í upp­námi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu banda­lag við Rússa og sýr­lenska stjórn­ar­her­inn. Um leið og Banda­ríkja­her er að hverfa á brott frá land­inu virð­ist allt stefna í loka­upp­gjör í borg­ara­stríð­inu sem hefur geisað í átta ár.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár