Miðflokkurinn mælist næst stærstur

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur flokka. Fremur litlar breyt­ingar á fylgi milli kann­ana en Vinstri græn og Píratar missa þó mark­tækt fylgi.

Miðflokkurinn mælist næst stærstur
Mið­flokk­ur­inn sækir á Um 15 pró­sent kjós­enda styðja nú Mið­flokk­inn, sam­kvæmt nýrri könnun. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn mælist með næst mest fylgi flokka í nýrri könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist með 14,8 pró­sent stuðn­ing en mæld­ist síð­ast, 16. sept­em­ber, með 12 pró­senta stuðn­ing. Er um mark­tæka breyt­ingu að ræða milli kann­ana.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn með mest fylgi flokka, 19,8 pró­sent en mæld­ist síð­ast með 18,3 pró­sent. Sam­fylk­ingin er þriðji stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn, nýtur nú fylgis 14,1 pró­sents þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni en síð­ast sögð­ust 14,8 pró­sent styðja flokk­inn. Viðreisn styðja nú 11 pró­sent en síð­ast voru það 10,2 pró­sent. Breyt­ingar á fylgi þess­ara flokka allra milli kann­ana eru innan vik­marka.

Vinstri græn mæl­ast nú með 10,3 pró­senta fylgi en mæld­ust síð­ast með 12,8 pró­senta fylgi. Er fylg­is­breyt­ingin í til­viki flokks­ins mark­tæk. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 10,1 pró­senta aðspurðra en naut síð­asta stuðn­ings 11,8 pró­senta og er breyt­ing á fylgi við flokk­inn milli kann­ana mark­tæk, þó tæp­lega sé. 8,8 pró­sent aðspurðra segj­ast nú styðja Pírata, sem er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár