Pítsasendill þjófkenndur og myndbirtur án nokkurra sannanna

Birt var mynd af pít­sa­sendli Domino‘s í hópnum Vest­ur­bær­inn á Facebook og hann sagður hegða sér grun­sam­lega í sam­hengi við hjóla­þjófnað. Domino‘s standa með starfs­manni sínum og segja ekk­ert benda til sektar hans.

Pítsasendill þjófkenndur og myndbirtur án nokkurra sannanna
Vændur um þjófnað Pít­sa­send­ill Domino's var mynd­birtur og vændur um þjófnað í Facebook-hópnum Vest­ur­bær­inn í dag, án þess að nokkrar sann­anir lægju þar að baki.

Fyrr í dag var birt mynd af starfs­manni Domino‘s pítsa í Facebook hópnum Vest­ur­bær­inn og hann vændur um grundam­lega hegðun í sam­hengi við stuld á reið­hjólum. Sá sem birti mynd­ina segir að það hafi hann gert að beiðni manns að nafni Bjart­mars Leósonar, en sá var í morgun í við­tali í Frétta­blað­inu þar sem fjallað var um sjálf­skip­aða bar­áttu hans við að finna stolin reið­hjól. Mikil umræða hefur orðið síð­ustu vikur um tíða reið­hjóla­þjófn­aði í Vesturbæ.

„2 til­felli í Vesturbæ þar sem pizzasendill mætir og hagar sér grun­sam­lega. Sniglast kringum húsin og dag­inn eftir eru hjól horfin,“ segir við mynd­ina og er þar um að ræða skila­boð frá Bjart­mari þessum. Engar sann­anir eru settar fram um að umræddur pít­sa­send­ill eigi hlut að máli varð­andi hvarf hjól­anna.

Berglind Jóns­dóttir, mark­aðs­full­trúi Domino‘s hefur gert athuga­semd við færsl­una þar sem hún segir að ekk­ert bendi til að pít­sa­send­ill­inn, sem sé traustur starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins, teng­ist hjóla­stuldi á nokkurn hátt. Starfs­mað­ur­inn sé nú að leit réttar síns vegna máls­ins.

„Við hjá Domino's skoð­uðum málið strax enda lítum við það sér­stak­lega alvar­legum augum þegar birtar eru myndir af starfs­fólki okkar og það sakað um þjófnað. 

Send­ill­inn sem um ræðir og sýndur er á mynd­inni er traustur starfs­maður okkar sem skilj­an­lega er ekki sama um að vera mynd­birtur og sak­aður um þjófnað. Hann er nú að leita réttar síns vegna máls­ins.

Við tökum svona ábend­ingum að sjálf­sögðu alvar­lega en í þessu til­tekna máli er ekk­ert sem bendir til þess að þessi send­ing og hjóla­stuld­ur­inn teng­ist á nokkurn hátt,“ segir í athuga­semd Berg­lindar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár