Sjálfstæðismenn fengnir til að stýra fréttamiðli Eyjamanna

Sterk­ustu útgerð­ar­fé­lögin í Vest­manna­eyjum, Vinnslu­stöðin og Ísfé­lagið, hafa aukið hlut sinn í Eyja­fréttum og ráðið sjálf­stæð­is­mann og eig­in­mann odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins rit­stjóra.

Sjálfstæðismenn fengnir til að stýra fréttamiðli Eyjamanna
Vest­manna­eyjar Frétta­mið­ill bæj­ar­búa er í eigu sterk­ustu fyr­ir­tækj­anna og stýrt af sjálf­stæð­is­mönnum. Mynd: Shutterstock

Tilkynnt hefur verið um nýjan rit­stjóra hjá Eyja­fréttum, stærsta frétta­miðli Vest­manna­eyja. 

Rit­stjór­inn, Sindri Ólafsson,  er stjórn­ar­maður í sjálf­stæð­is­fé­lagi Vest­manna­eyja, fyrr­ver­andi for­maður ungra sjálf­stæð­is­manna í Eyjum og eig­in­maður odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn, Hildar Sól­veigar Sig­urð­ar­dóttur.

Formaður nýrrar stjórnar útgáfu­fé­lags­ins, sem ræður rit­stjór­ann, er vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Stjórn félags­ins segir í til­kynn­ingu að nýr rit­stjóri eigi ekki að „gjalda fjöl­skyldu­tengsla“ og er boðuð aukin prentút­gáfa Eyja­frétta vegna kom­andi rík­is­styrkja til fjöl­miðla. 

Þetta ger­ist í kjöl­far þess að Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum og Vinnslu­stöðin stækka við hlutafé sitt í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Eyjasýn. Sömu félög eiga stóran hlut í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Búast við ríkisstyrkjum

Guðbjörg Matth­í­as­dóttirEigandi Ísfélags Vest­manna­eyja er stór hlut­hafi í Morg­un­blað­inu og Eyja­fréttum í Vest­manna­eyjum.

Útgáfu­fé­lag Eyja­frétta, Eyjasýn, hefur verið rekið með um fimm millj­óna króna tapi á ári síð­ast­liðin tvö ár.

Óupp­færður hlut­haf­alisti er birtur á vef Fjöl­miðla­nefndar, en hann gefur ekki rétta mynd af núver­andi eign­ar­haldi. Stærstu hlut­hafar eru Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum og Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum.

Af árs­reikn­ingi útgáfu­fé­lags Eyja­frétta, Eyjasýn ehf, sést að Ísfé­lagið hefur aukið hlut sinn úr 15% í 24% og Vinnslu­stöðin úr 13,5% í 21,6% á milli ára.

Þá hefur verið boðað að útgáfu­dögum prent­blaðs Eyja­frétta verði fjölgað og komi blaðið út á tveggja vikna fresti í stað einu sinni á mán­uði. Grund­völl­ur­inn fyrir því, þrátt fyrir tap­rekstur, er boð­aðir rík­is­styrkir til fjöl­miðla, eins og segir í yfir­lýs­ingu stjórnar Eyja­sýnar:

„Slíkur stuðn­ingur myndi styrkja stoðir Eyja­sýnar líkt og ann­arra útgáfu­fé­laga í svip­aðri stöðu. Ekki síst með þetta í huga ákváðu eig­endur Eyja­sýnar að tryggja félag­inu fjár­muni til að marka útgáf­unni breyttan far­veg og gefa áfram út Eyja­fréttir á 43 ára gam­alli kenni­tölu!“

Stjórnin er skipuð þremur aðilum, og hafa tveir þeirra verið við­loð­andi starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum, en sá þriðji starfað að kynn­ing­ar­málum fyrir Vinnslu­stöð­ina. Formaður stjórn­ar­innar er vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Margrét Rós Ing­ólfs­dóttir. Með henni í bæj­ar­stjórn er Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, eig­in­kona nýs rit­stjóra, Sindra Ólafs­sonar.

Búast við fagmennsku af hálfu ritstjórans

Í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar er sér­stak­lega rætt að nýr rit­stjóri eigi ekki að gjalda fyrir fjöl­skyldu­tengsl sín inn í póli­tík.

Sindri ÓlafssonNýr rit­stjóri Eyja­frétta er nátengdur Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Bæj­ar­málapóli­tíkin í Eyjum er á köflum býsna hvöss og ein­hver kann nú að velta fyrir sér hvernig fjöl­mið­ill með rit­stjóra, fjöl­skyldu­tengdan bæj­ar­stjórn­inni, geti fjallað af hlut­lægni um mál á þeim vett­vangi? Eðlilegt að spurt sé og þeirri spurn­ing­unni veltum við eðli­lega fyrir okkur í stjórn­inni og við nýjan rit­stjóra sömu­leiðis. Sindri treystir sér vel til að taka fag­mann­lega á hlut­unum og við treystum honum full­kom­lega. Hann hefur þekk­ingu og áhuga sem við sækj­umst eftir og á ekki að gjalda fjöl­skyldu­tengsl­anna.“

„Hann hefur þekk­ingu og áhuga sem við sækj­umst eftir og á ekki að gjalda fjöl­skyldu­tengsl­anna.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti óvænt meiri­hluta sinn í Vest­manna­eyjum í síð­ustu kosn­ingum og fékk minnsta fylgi frá árinu 1986, eða 45,4 pró­sent atkvæða. Í kjöl­farið mynd­uðu  Eyja­list­inn og flokk­ur­inn Fyrir Heimaey meiri­hluta.

Ekki ljóst hvort hann víki úr stjórn

Nýr rit­stjóri er sem fyrr segir stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­fé­lagi Vest­manna­eyja. Í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu í febr­úar síð­ast­liðnum, sem nýráð­inn rit­stjóri und­ir­rit­aði ásamt fjórum stjórn­ar­mönnum, var Sjálf­stæð­is­flokknum hrósað og flokk­ur­inn hvattur til að „halda áfram á braut góðra verka“.

„Það er ánægju­legt að fylgj­ast með og verða vitni að því hvernig hin góðu verk og ákvarð­anir Sjálf­stæð­is­manna síð­ustu kjör­tíma­bila verða að veru­leika ... Aðal­fundur Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins hvetur bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að halda áfram á braut góðra verka. Það er mik­il­vægt að sá mikli kraftur sem í gras­rót flokks­ins býr og drífur áfram flokks­starfið nái að skila sér í bættum hag bæj­ar­búa hér eftir sem áður fyrr,“ sagði meðal ann­ars í frétta­til­kynn­ing­unni. Ekki hefur komið fram hvort nýráð­inn rit­stjóri Eyja­frétta muni sitja áfram í stjórn Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins.

Meðal fyrstu frétta í nýrri rit­stjórn var við­tal við vin Sindra, Vilhjálm Árnason, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um stöðu inn­an­lands­flugs, en Vil­hjálmur hefur óskað eftir fundi í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis vegna máls­ins.

„Blaðið er í öfl­ugum höndum,“ sagði Vil­hjálmur á Facebook-vegg Sindra í gær um ráðn­ing­una.

Eiga einnig í Morgunblaðinu

Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum  á einnig stóran hlut í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, Árvakri, eða um 13,4%. Auk þess á stjórn­ar­maður í Ísfé­lag­inu, Sig­ur­björn Magn­ús­son, 12,4% í Morg­un­blað­inu í gegnum félag sitt. Þá er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, einn helsti eig­andi Ísfé­lag­ins, eig­andi að 16,5% hlut í Árvakri. Þannig eiga Ísfé­lagið og tengdir aðilar minnst 42,3 pró­sent í félag­inu, en meðal ann­arra eig­enda eru Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, sem á rúm 20%, og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga.

Nýir eig­endur Morg­un­blaðs­ins árið 2009 skip­uðu Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rit­stjóra ásamt Haraldi Johann­es­sen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár