Kynna sig sem nýtt símafyrirtæki en eru í helmingseigu Vodafone

101 Sam­band­ið, mark­aðs­sett sem „síma­fé­lag fram­tíð­ar­inn­ar“, er kynnt af með­lim­um Út­varps 101 sem „nýtt fyr­ir­tæki“. Um er að ræða sam­starfs­verk­efni Family 101 sf og Voda­fo­ne, í helm­ingseigu beggja að­ila.

Kynna sig sem nýtt símafyrirtæki en eru í helmingseigu Vodafone
101 Sambandið Þekktir listamenn standa bak við nýja vörumerkið.

Nýja símavörumerkið 101 Sambandið, sem markaðssett er með tónlistar- og leiklistarfólkinu sem stendur á bak við Útvarp 101 og hljómsveitir á borð við Sturla Atlas, verður rekið á kerfum Vodafone, sem er í eigu Sýnar. 101 Sambandið er ekki lögaðili, heldur eiga notendur viðskipti beint við Vodafone, þvert á orð þeirra sem kynna þjónustuna.

101 Sambandið var kynnt á blaðamannafundi í Hörpu í morgun. „Ég kynni til leiks sambandið, símafélag framtíðarinnar,“ sagði Unnsteinn Manuel Stefánsson söngvari við tækifærið. Hann er einn eigenda helmingshlutar á móti Sýn í 101 Productions, ásamt bróður sínum Loga Pedro, tónlistarmönnunum og bræðrunum Jóhanni Kristófer og Haraldi Ara Stefánssonum, Sigurbjarti Sturlu Atlasyni, Agli Ástráðssyni og Aroni Má Ólafssyni, einnig þekktum sem Aroni Mola.

Logi Pedro neitaði því aðspurður af notendum á Facebook og Twitter í dag að 101 Sambandið væri ný þjónustuleið Vodafone. „Þetta er ný farsímaþjónusta. Ekkert rebrand. Annað fyrirtæki.“

101 Productions, fyrirtækið sem rekur Útvarp 101, er hins vegar að hálfu leyti í eigu Sýnar, sem á Vodafone. Skilmálar á síðu 101 Sambandsins eru einnig skýrir um að Sambandið sé ekki lögaðili, heldur sé viðskiptasamband notenda við Sýn: „Sá lögaðili sem nefndur er Sambandið í skilmálum þessum er Vodafone / Sýn hf. Með samþykki eða staðfestingu þessara skilmála samþykkir áskrifandi jafnframt skilmála Vodafone fyrir fjarskiptaþjónustu eins og þeir eru hverju sinni, en skilmálar þeir eru aðgengilegir á vefsíðunni www.vodafone.is.“

Logi Pedro segir í athugasemd sem hann sendi Stundinni að alþekkt sé að fjarskiptafyrirtæki kaupi dreifingarþjónustu annars staðar frá. Svo sé í þessu tilfelli.

„101 Sambandið er samstarfsverkefni 101 Productions og Sýn hf. líkt og kemur skýrt fram á heimasíðu 101 Sambandsins.  

Allar vörur 101 Sambandsins eru þróaðar af 101 Productions, hinsvegar er tæknivinna og rekstur fjarskiptahluta í höndum Sýnar hf. Því liggur fyrir að Sýn er lögaðili á bakvið fjarskiptaþjónusta. 
Daglegur rekstur Sambandsins á sér stað í höfuðstöðvum 101 Productions, sem og er þjónustuver okkar rekið í höfuðstöðvum 101 Productions.
Ef ég hefði haft tækifæri á því að gera athugasemd við upprunalegu fréttina hefði ég sagt að við hjá 101 Productions erum afar stolt af samstarfi okkar við Sýn og af 101 Sambandinu. Tæknileg úrræði Sýnar gera okkur kleift að bjóða upp á frábæra vöru sem ætti að hrista vel uppi í íslenskum fjarskiptamarkaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
2
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­ald­ar: Græn­lend­ing­ar læra af mis­tök­um Ís­lend­inga

Græn­land vill að ferða­þjón­usta standi und­ir fjöru­tíu pró­sent­um af út­flutn­ings­tekj­um lands­ins ár­ið 2035. At­hygli al­þjóða­sam­fé­lags­ins hef­ur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ing­ar segja Banda­ríkja­for­seta hafa auk­ið áhuga á land­inu líkt og eld­gos­ið við „Eyja­fjalla­jök­ul“ gerði hér. Heim­ild­in rýndi í þró­un ferða­þjón­ust­unn­ar á Græn­landi sem hef­ur lært af ávinn­ing­um og mis­tök­um ná­granna­rík­is­ins Ís­lands.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár