Frumkvöðlar sem fylgdu eigin sannfæringu

Goð­sagna­kennda til­rauna­kennda raf­sveitin Tan­gerine Dream mun koma fram á hátíð­inni Extreme Chill nú í sept­em­ber. Þessi þýska sveit er án efa einn helsti áhrifa­valdur raf­rænnar og til­rauna­kenndar tón­listar í dag. Hljóm­sveitin hefur nú fangað nýja hlust­endur, meðal ann­ars með áhrifum sínum á tón­list­ina í Netflix-þátt­unum Stranger Things. Anna Margrét Björns­son spjall­aði við Biöncu Froese, sem er ekkja for­sprakk­ans Edgars Froese.

Frumkvöðlar sem fylgdu eigin sannfæringu

Tan­gerine Dream hefur und­an­farin fimm­tíu ár verið óþreyt­andi við að skapa sinn ein­staka og stóra hljóð­heim. Hljóm­sveitin var stofnuð árið 1967 af Edgar Froese í Þýska­landi og hefur síðan gefið út yfir 100 frum­samdar plötur, samið tón­list við fjölda kvik­mynda og tölvu­leikja og sjö sinnum verið til­nefnd til Grammy-verð­launa. Á miðjum átt­unda ára­tugnum á hátindi fer­ils síns var hún skipuð Edgar Froese, Christopher Franke og Peter Baumann.  Eftir and­lát Froeses árið 2015 hafa eft­ir­lif­andi með­limir sveit­ar­innar, Thorsten Quaesching, Ulrich Schnauss og Hoshiko Yamane, haldið merki sveit­ar­innar og stofn­anda á lofti í náinni sam­vinnu við lista­kon­una og ekkju Edgar Froeses, Biöncu. Platan Quantum Gates kom út 2017 og í kjöl­farið hafa fylgt tón­leikar á stöðum eins og Dek­man­tel, Flow Festival og Barbican Hall í London. 

Ekkja Froeses heldur bandinu lifandi 

Bianca FroeseEkkja Edgars Froese sem hefur unnið mjög náið með sveit­inni og haldið merkjum stofn­anda hennar á lofti.

„Sveitin í dag sam­anstendur af Thorsten Quaeschning, Hoshiko Yamane og Ulrich Schnauss,“ útskýrir Bianca Froese í sam­tali við Stundina en sveitin er um þessar mundir á tón­leika­ferða­lagi um Evrópu. „Thorsten, sem er á synt­hum og fleiri hljóð­færum býr í Berlín og vann með eig­in­manni mínum, Edgar Froese, í um það bil tólf ár þar til Edgar lést árið 2015 sem fékk mikið á mig. Edgar kenndi honum grunn­at­riði þess að sequenca – röðun hljóma og hljóm­svæða –  og hleypti honum inn í hljóð­heim Tan­gerine Dream. Hoshiko, sem er mennt­aður sem klass­ískur fiðlu­leik­ari í Japan, býr einnig í Berlín og gekk til liðs við Tan­gerine Dream árið 2011. Hann bætir alls konar mystískum fiðlu­tónum við tón­list­ina. Ulrich, sem spilar líka á syntha býr í London og átti far­sælan sól­ó­feril þar til hann gekk til liðs við sveit­ina árið 2014.  Sveitin í þessu formi spil­aði síð­ustu tón­leika sína með Edgar í Melbourne í Ástralíu í nóv­em­ber 2014. Þetta átti að vera byrjun nýs tíma­bils í sögu Tan­gerine Dream, eða það sem Edgar kall­aði Quantum Years, þar sem hann ætl­aði að taka út öll akústísk hljóð­færi og bæta við nýjum hljóðum og töfrum.“   

Dauði Froeses ekki endalok sveitarinnar

Hvernig heldur maður áfram með hljóm­sveit þegar for­sprakk­inn og eini sam­felldi með­limur hennar er lát­inn? „Í fullri hrein­skilni þá hugs­aði ég, þetta gengur ekki, Edgar er ómissandi. En svo hugs­aði ég, eiga þetta að vera enda­lok Tan­gerine Dream? Stuttu fyrir and­lát sitt var Edgar búinn að móta hug­mynd­ina sína um „Quantum Years“ þar sem hann var mjög upp­tek­inn af skammta­fræði og vildi miðla vís­inda­legri þekk­ingu á henni yfir í tón­list­ina. Mig lang­aði að þróa hug­mynd­ina hans áfram og reyna að láta hana verða að veru­leika. Ég var upp­full af þessum hugs­unum á þesssum sárs­auka­fulla tíma en það voru þrjú atriði sem sann­færðu mig. Færni þess­ara þriggja tón­list­ar­manna, kröftug sýn Edgars og minn eigin styrkur um að fylgja þessu verk­efni eftir. Þetta var ekki auð­velt ferli og margir aðdá­endur sveit­ar­innar voru efins um að hún gæti haldið áfram eftir að Edgar dó. En sem betur fer þá voru flestir þeirra mjög ánægðir og undr­andi með nýja sándið og tóku nýju hljóm­sveit­ar­skip­an­ina í sátt.“  

Platan Quantum Gate, sem kom út á fimm­tíu ára afmæli sveit­ar­innar, var til­nefnd til tvennra verð­launa á Prog Rock awards árið 2018. „Edgar byrj­aði sjálfur að semja fyrir þessa plötu árið 2014 og skildi eftir sig mikið af tón­list­ar­legum skissum sem núver­andi með­limir not­uðu sem grunn til að semja yfir,“  útskýrir Bianca. Hún segir að í dag séu það Thorsten og Ulrich sem sjái að mestu leyti um tón­smíð­arnar en að á tón­leikum sé oft spuni í lokin sem sé gerður af öllum þremur tón­list­ar­mönn­unum.  

Undir sterkum áhrifum frá Salvador Dali

Á gull­ald­ar­árum Tan­gerine Dream má oft sjá gamlar myndir frá tón­leikum þar sem  græjurnar voru eins og í höf­uð­stöðvum NASA, risa­stórir veggir af ana­lóg-tækjum.  En hvernig flytja þau tón­list­ina í dag? „Við notum auð­vitað far­tölvur en samt ekki bara far­tölvur eins og Kraftwerk eru að gera þetta. Digital tæki eru ekki jafn spenn­andi sjón­rænt eins og þessi gömlu Moog alt­ari frá átt­unda ára­tugnum en það er ennþá nóg eftir af áhuga­verðum græjum og synt­hum á sviði hjá Tan­gerine Dream. Edgar sagði alltaf að gæði tón­listar væri ekki bundin við hversu flottar græjur væru not­aðar til þess að fram­leiða hana.“  Spurð um mik­il­vægi Tan­gerine Dream fyrir heim til­rauna­kenndar tón­listar svarar hún að þeir hafi verið frum­kvöðl­arnir á þessu sviði. „Þeir voru frum­kvöðlar og lentu oft í því í byrjun fer­ils síns að fólk kastaði tómötum og eggjum í þá. En þeir fylgdu sinni sann­fær­ingu um nýtt tíma­bil í tón­list­ar­sög­unni, að brjót­ast úr hinum vana­bundna hljóð­heimi. Þeir höfðu kraft eft­ir­stríðskyn­slóð­ar­innar sem komust í gegnum alla erf­ið­leika. Þessi þraut­seigja, þetta töfr­andi tíma­bil í tón­list­ar­sög­unni, þróun tón­list­ar­innar og tón­list­ar­tækn­innar, þetta gerði hljóm­sveit­ina algjör­lega ein­staka. 

Edgar Froese var sjálfur undir miklum áhrifum frá súr­r­ea­list­anum Salvador Dali. Árið 1967 var Edgar og fyrstu sveit hans, The Ones, boðið að spila á tón­leikum Dalis í Cadaqués á Spáni. „Edgar var svo lán­samur að fá að ganga um með Dali í gegnum ólífu­garð­inn hans og ræða við hann um heim­speki, súr­r­eal­isma, listir og drauma. Dali hafði risa­stór áhrif á Edgar,“ segir Bianca. „Hann dáði hann, dáði verk hans og heim­speki og færði þessa aðdáun yfir í tón­list sína.“

Ný kynslóð hlustenda

Árið 2012 hafði tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Rockstar Games New York sam­band við Edgar og spurði hvort hann vildi semja tón­list fyrir stærsta tölvu­leik ver­aldar, Grand Theft Auto V. „Hann var fyrst ansi skept­ískur á þetta,“  segir Bianca. „Hann þoldi ekki ofbeldi í neinu formi, en hann sann­færð­ist vegna þess að honum fannst  þetta tæki­færi til að miðla tón­list Tan­gerine Dream til mun yngri hlust­enda. Og svo árið 2013 vann hann verð­laun fyrir bestu frum­sömdu tölvu­leikjatón­list­ina í American VGX Video Award.“  

Það má heyra áhrif Tan­gerine Dream glöggt í þátta­röð­inni vin­sælu á Netflix, Stranger Things, en tit­il­lagið er eins og beint út úr smiðju þeirra.  „Hljóm­sveitin Survive sem samdi tit­il­lagið við Stranger Things hefur alltaf sagt að Tan­gerine Dream sé þeirra stærsti áhrifa­valdur. Þegar þetta kom út datt Thorsten og Ulrich svo í hug að sprella aðeins með þetta, að gera ábreiðu af lagi Survive. Fyndið, ekki satt, að gera svala ábreiðu af lagi sem er  í raun ábreiða af lagi eftir hljóm­sveit­ina þína!“

Spurð um hvernig hún sjái tón­list í fram­tíð­inni svarar hún að þau Edgar hafi oft rætt um hvort það yrði hægt að finna upp tækni til að koma tón­list­ar­sköpun beint úr heil­anum með nýrri tækni og sleppa því að þurfa að pródúsera hana alla með tölvum. „Hugsaðu þér ef það væri hægt að umbreyta tón­sköpun í heil­anum yfir í ein­hvers konar bylgur og beina þeim  beint í eyru aðdá­enda bara með ein­hvers konar heila­bylgjum! Það væri alveg frá­bært! En það er í raun undra­vert hvað við mann­kyn erum ennþá hrifin af gömlum hljóð­færum og hljómum þeirra, gítar, trommum, flautu, fiðlu og píanó og svo fram­vegis. Ég held að þetta hljóti að hafa eitt­hvað að gera með hversu hæg þróun okkar er og líka að þrá okkar fyrir þessum hljómum muni aldrei taka enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár