Aukalitningur á ekki að standa í vegi tækifæra

Leik­list­ar­nem­inn Berta Sig­ríð­ar­dóttir hefur hafið tökur á stutt­mynd­inni 3:21 sem fjallar um fóst­ur­systur hennar og vin­konu, Glódísi Erlu Ólafs­dóttur, sem er með Downs-heil­kenni. Til­gangur mynd­ar­innar er að benda á að ein­stak­lingar með Downs-heil­kenni eigi rétt á sömu tæki­færum og aðrir.

Aukalitningur á ekki að standa í vegi tækifæra
Tak­mörkuð tæki­færi Við útskrift Glódísar af starfs­braut Fjöl­braut­ar­skól­ans í Breið­holti biðu hennar fá tæki­færi, ólíkt því sem beið Bertu þegar hún útskrif­að­ist úr fram­halds­skóla.

Berta Sig­ríð­ar­dóttir er önnum kafin þessa dag­ana við að vinna loka­verk­efni sitt í leik­list við New York Film Academy, þaðan sem hún mun útskrif­ast með BA-gráðu næst­kom­andi vor. Loka­verk­efnið er í formi stutt­myndar sem Berta leikur í, leik­stýrir og er hand­rits­höf­undur að, allt í senn. Hug­mynd­ina hefur Berta þróað frá því hún var í grunn­skóla. Með stutt­mynd­inni vill Berta sýna fram á að fólk með Downs-heil­kenni eigi rétt á sömu tæki­færum til náms og lífs­gæða og annað fólk.                

Einstakur vinskapur

Leiðir Bertu og Glódísar lágu saman þegar þær voru þriggja ára gamlar. Berta var einka­barn til þriggja ára ald­urs og segir hún líf sitt hafa orðið rík­ara þegar móðir hennar ákvað að ger­ast stuðn­ings­móðir Glódísar. Upp frá því þró­að­ist með þeim fal­legur og djúpur vin­skapur.

„Við urðum strax afskap­lega nánar og þró­að­ist vin­áttan á þá leið að Glódís varð frá upp­hafi mín besta vin­kona og hefur vin­skapur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár