Jafnréttisnefnd KÍ segir skrif Helgu Daggar grafa undan trausti til kennara

Jafn­réttis­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem skrifum Helgu Daggar Sverr­is­dóttur er mót­mælt. „Umræddur mál­flutn­ingur er illa rök­studdur og gengur í bága við skyldur skóla­kerf­is­ins við barna­vernd og þá frum­skyldu kenn­ara að vald­efla nem­endur, virða þá og vernda,“ segir í álykt­un­inni.

Jafnréttisnefnd KÍ segir skrif Helgu Daggar grafa undan trausti til kennara
Illa rök­studdur mál­flutn­ingur Skrif Helgu Daggar eru sögð illa rök­studd í ályktun jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands­ins.

Jafn­réttis­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem mál­flutn­ingi Helgu Daggar Sverr­is­dóttur, grunn­skóla­kenn­ara á Akureyri og full­trúa í vinn­um­hverf­is­nefnd sam­bands­ins, um falskar ásak­anir nem­enda á hendur kenn­urum er mót­mælt. „Nefndin telur mál­flutn­ing kenn­ar­ans vera þess vald­andi að grafa undan trausti nem­enda og for­ráða­fólks til kenn­ara og skóla­kerf­is­ins,“ segir meðal ann­ars í álykt­un­inni og þá er mál­flutn­ing­ur­inn sagður illa rök­studdur og ganga í bága við skyldur skóla­kerf­is­ins við barna­vernd.

Stundin flutti frétt í síð­asta tölu­blaði, 7. júní síð­ast­lið­inn, þar sem skrif Helgu Daggar um meintar lygar nem­enda upp á kenn­ara voru til umfjöll­unar.

Í greinum á vefrit­inu Kjarn­anum hefur Helga Dögg haldið því fram að nem­endur bæði beiti kenn­ara ofbeldi í umtals­verðum mæli og einnig að nem­endur ljúgi ofbeldi upp á kenn­ara sína, bæði lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu. Engar rök­semdir eru lagðar fram að baki þeim skrifum Helgu Daggar.

Fram­kvæmda­stjóri UNICEF gagn­rýndi skrifin og það gerðu einnig fleiri. Formaður Kenn­ara­sam­bands­ins, Ragnar Þór Pét­urs­son, sagði í sam­tali við Stundina von­ast til að Helga Dögg myndi leggja fram heim­ildir fyrir full­yrð­ingum sínum. Það hefur Helga Dögg ekki gert og þegar Stundin hafði sam­band við hana neit­aði hún að tjá sig um málið.

Ályktun jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands er eft­ir­far­andi:

Jafn­réttis­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands mót­mælir mál­flutn­ingi Helgu Daggar Sverr­is­dóttur grunn­skóla­kenn­ara í Kjarn­anum 31. maí síð­ast­lið­inn um falskar ásak­anir nem­enda um meint ofbeldi kenn­ara. Nefndin telur mál­flutn­ing kenn­ar­ans vera þess vald­andi að grafa undan trausti nem­enda og for­ráða­fólks til kenn­ara og skóla­kerf­is­ins. Umræddur mál­flutn­ingur er illa rök­studdur og gengur í bága við skyldur skóla­kerf­is­ins við barna­vernd og þá frum­skyldu kenn­ara að vald­efla nem­endur, virða þá og vernda. Nauð­syn­legt er að sam­fé­lagið í heild hjálp­ist að við að bjóða ungu fólki upp á góð upp­eld­is­skil­yrði þar sem hlúð er að sið­ferð­is­vit­und og virð­ingu. Ef upp koma alvar­leg mál er mik­il­vægt að verk­ferlar séu skýrir og allir, starfs­fólk skóla, for­ráða­fólk og nem­endur þekki hvernig beri að bregð­ast við.

F.h. jafn­réttis­nefndar,
Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir for­kona

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár