Steinbrúin

Sagan Stein­brúin er ein af 24 sögum sem birt­ast í bók­inni 2052 - Svip­myndir úr fram­tíð­inni. Sögurnar eiga það allar sam­eig­in­legt að ger­ast á Íslandi árið 2052 og hafa það hlut­verk að varpa ljósi á hvert Ísland getur þró­ast á næstu 30 árum og hvaða afleið­ingar ákvarð­anir sem við tökum í dag geta haft til lengri tíma. Sumar sög­urnar lýsa heldur nöt­ur­legri fram­tíð­ar­sýn og er ætlað að vera okkur víti til varn­aðar, á meðan aðrar lýsa bjart­sýni og jákvæðni og er ætlað að vera okkur inn­blástur og hvatn­ing til góðra verka.

Steinbrúin

Sum­arnóttin er björt, hlý og þögul. Hátt grasið svignar undan fótum þeirra tveggja og ein­hvers staðar, aðeins ofar í hlíð­inni, heyr­ist í lækj­ar­sprænu. Borgin liggur í firð­inum fyrir aftan þau en á þessum fal­legu dögum virð­ist hún ekki sofna, yfir henni liggur þessi ynd­is­lega ró. Eins og hún sé á pásu. Við botn­inn á firð­inum lá hafið, grátt, súrt og líf­laust. Gunn­hildur lítur af borg­inni á Jón Gabríel sem er að laga fest­ingu á stórum bak­poka sem hann ber, eins og hann sitji ekki vel á bak­inu.

„Þau segja að við séum heppin.“

„Heppin? Hvernig þá?“ spyr Gunn­hildur.

Þau höfðu bæði ætlað að klæða sig í svart til að fel­ast en það er reyndar til lít­ils að ætla að sveipa sig nótt­inni þegar bjart er allan sól­ar­hring­inn. En í stað­inn er Gunn­hildur bara í galla­buxum og göngu­skóm. Klædd fyrir stefnu­mót sem felur í sér fjall­göngu og eitt­hvað aðeins dul­ar­fullt og mögu­lega hættu­legt. Jón Gabríel sagði henni engin smá­at­riði. Gunn­hildur var auk þess ekki viss hvað henni fannst um hann eða hvort þetta væri ekki eitt­hvað allt annað en stefnu­mót í hans augum. Það heill­aði hana hvað hann var alltaf alvöru­gef­inn og öðru­vísi en það gerði það líka að verkum að hún vissi ekki alveg hvers eðlis þessi för þeirra var. Auk þess lað­ast hún ekki að honum, þannig.

„Við erum svo fá og kvót­inn tók svo lítið mið af íbúa­fjölda land­anna. Við vorum langt undir öllum við­miðum og þurftum ekki að breyta neinu. Lífið hélt bara áfram eins og ekk­ert hefði í skorist. Eða, þú veist …“ Kvóti. Orð sem eitt sinn snérist um fisk en snérist nú um útblástur. Hann horfir út á kyrr­látt hafið. „Þannig.“

„Hefurðu farið hérna yfir áður?“ spurði Gunn­hildur.

Göngu­skórnir pössuðu henni vel en galla­bux­urnar voru aðeins of þröngar og jakk­inn var aðeins of stór. Eitthvað af pabba hennar sem hann not­aði ekki.

„Já. Þetta er frá­bær göngu­leið, synd að hún sé ekki meira notuð. En það kemur sér reyndar vel fyrir okkur að hún sé ekki vin­sæl, það tekur því ekki að vera með örygg­is­ráð­staf­anir fyrir ein­hverju sem ger­ist kannski einu sinni á tveggja ára fresti og það þá óvart.“

„Nei, ég meina, rat­arðu alveg?“

Jón Gabríel stopp­aði og leit til baka á Gunn­hildi. „Rata ég? Það er ekk­ert að rata.“

Hann leit upp hlíð­ina og benti. „Upp, beint yfir heið­ina, niður.“

„Nei, já. Ég veit það. Ég meina, veistu hvar þetta er? Þetta er ekki í Maps er það nokkuð?“

„Nei. Fárán­legt. Fyrsta og eina skiptið sem rík­is­stjórnin not­aði vald sitt til að afmá eitt­hvað úr Maps. Hvað, eins og við séum Kína?“

Hún lað­að­ist að þessu í fari hans. Aðeins þessu, ann­ars væru þau mögu­lega eitt­hvað annað en bara vinir. En þessi hár­beitta vit­neskja hans var ekki bara eitt­hvað sem var hægt að lesa á net­inu og muna, hann tengdi hlut­ina saman og sá eitt­hvað meira úr þeim. Í partýi fannst honum allir vera óáhuga­verðir og sagði síðan eitt­hvað um hvað Japanir væru að kaupa mikið af gull­birgðum, hvort við hefðum í alvöru engar áhyggjur af því. Sem eng­inn gerði, auð­vitað. Hvað var ung­lingum í partýi á Akureyri ekki sama um gull­birgðir Japana? Hann var klár. Beittur hnífur í leit að ein­hverju til að stinga.

„Hvað gerum við ef við, þú veist, stígum í gjótu og

ökkla­brotnum?“ spurði hún.

Jón Gabríel svar­aði henni ekki.

„Og af hverju mátti ég ekki taka sím­ann minn með?“

Henni leið eins og fávita um leið og hún spurði. Auðvitað var Google að fylgj­ast með ferðum allra sem eiga síma. Rík­is­stjórnin fengi aðvörun ef hreyf­ingar þegna stingju skyndi­lega í stúf eða eitt­hvað. Hún mundi ekki alveg hvað það var sem Jón Gabríel hafði sagt í partý­inu síð­ustu helgi.

Þau höfðu talað aðeins um Norður Kóreu og um allt flótta­fólkið í Norður Afríku. Þetta hafði verið furðu­legt kvöld; hann var eins og drukkn­andi maður og þessi litla athygli hennar eins og súr­efni. Loksins ein­hver sem heyrði það sem hann var að segja.

„Minn er nú reyndar í bílnum hans Gústa.“

„Ha?“ Gunn­hildur hafði verið að rifja kvöldið upp.

Kvöldið þar sem hann stakk upp á að þau færu saman í göngu og hún heyrði ekki alveg hvað hann hafði sagt.

„Síminn minn, í bílnum hans Gústa. Ef ein­hver fer að skoða eitt­hvað er eins og ég hafi verið með honum á rúnt­inum.“

Þau gengu áfram í þögn í svolitla stund. Aðeins ofar stóð kind með tvö lömb og horfði á þau. Stein­hissa, eins og í hvert skipti öll þessi hund­rað ár sem kind sá fólk. Alltaf var mann­fólkið eitt­hvað að þvæl­ast. Gunn­hildur hugs­aði að kannski væru þau síð­asta frjálsa fólkið í heimi. Í flestum stór­borgum sveif net dróna yfir hausa­mót­unum á öllum og skann­aði og skann­aði, í leit að glæpa­mönnum, skuld­urum, flótta­mönnum og öðru „óæski­legu fólki“. Stundum var eins og Ísland væri hall­æris­lega lítið; það tók því aldrei að setja upp neitt af þeirri stærð­argráðu og gert var erlendis.

„Vann pabbi þinn ekki á tog­ara?“ spurði Gunn­hildur. Þau voru nú komin vel upp hlíð­ina og borgin lá og svaf hinum megin í firð­inum. Hún sá eftir að hafa ekki farið í almenni­legar buxur en það var lítið við því að gera núna. Snjólaus fjöllin stóðu vörð fyrir aftan þau, virt­ust halda hinum raun­veru­lega heimi frá. Henni fannst hún vera í leik­riti.

„Jú. Hann var vél­stjóri.“

„Okei. Hvað er hann þá að gera núna? Eftir, þú veist.“

„Hann er heima soldið mikið bara. Fer stundum með túrista­bát­unum, ef vél­arnar í þeim eru eitt­hvað lélegar. Eða í eldri bátum sem eru ekki raf­drifnir.“

„Voruð þið þá oft með fisk í mat­inn?“ spurði hún og fannst spurn­ingin strax heimsku­leg. Vissi ekki alveg hvernig hún átti að tala við hann.

„Já. Kannski tvisvar, þrisvar í viku. Þegar pabbi nennti að elda.“

„Ég hugsa stundum að maður hefði kannski átt að borða oftar fisk. Áður en, þú veist.“ Hún leit í átt að haf­inu. Fannst eins og hún ætti að skamm­ast sín fyrir hönd mann­kyns en fannst um leið eins og þetta væri ekki henni að kenna. Þau bjuggu nú í heimi sem var eins og eft­ir­köst bílslyss. En þeirra kyn­slóð hafði aldrei fengið að keyra og nú var bíll­inn ónýtur. „En ...“ hélt hún áfram, „hefði ég ekki bara flýtt vanda­mál­inu með því að borða meiri fisk?“

„Nei,“ svar­aði Jón Gabríel án þess að snúa sér að henni. „Ofveiðar voru ekk­ert vanda­mál. Sjórinn er bara orð­inn alltof hlýr og súr. Fisk­ur­inn er bara … far­inn.“

Gunn­hildur horfði til baka, niður í átt að Akureyri. Í smá­stund fannst henni eins og hún væri að sjá borg­ina í fyrsta skipti. Henni fannst þetta ekki heim­ili sitt, ekki stað­ur­inn þar sem hún hafði fæðst og alist upp. Hún velti því fyrir sér hver and­stæðan við heim­þrá væri en skyndi­lega var hún haldin þrá, ekki bara til að vera ann­ars staðar heldur til að vera alls staðar ann­ars staðar. Að búa sam­stundis í New York, Shanghai, Melbourne og Delhi. Að vera ekki ein mann­eskja heldur allar hinar, að end­ur­taka síð­ustu átján ár í lík­ama allra hinna sem fædd­ust 2034, sjá allt sem þau sáu og upp­lifa allt sem þau upp­lifðu.

Henni fannst hún svo lítil og ómerki­leg að hún varð að líta undan, leit upp hlíð­ina á bakið á Jóni Gabríel, á kind­urnar og kvöld­birt­una og hún klökkn­aði. Skyndi­lega hel­tekin af þeirri hug­mynd eða þeirri vit­neskju að heim­ur­inn væri í alvöru að far­ast eins og svo margir töl­uðu um.

„Jón ...“ byrj­aði hún en hljóðið fest­ist í háls­inum. Hún ræskti sig. „Jón Gabríel?“

„Já?“

„Hvering heldur þú að heim­ur­inn verði eftir fimm­tíu ár?“

„Fimmtíu ár?“

„Já.“

Það kom eitt­hvað fát á hann. Eins og hann vissi eitt­hvað sem hún ekki vissi. Eins og hann þekkti fram­tíð­ina og skamm­að­ist sín fyrir hana. Hann hélt áfram göng­unni upp hlíð­ina. „Það veit ég ekki,“ svar­aði hann. Henni fannst eins og hann segði síðan „Skiptir ekki máli,“ en hún var ekki viss.

Undir fótum þeirra var gömul og yfir­vaxin slóð sem þau fylgdu. Hún hlykkj­að­ist upp fjallið eins og risa­snákur úr möl hefði haft ham­skipti þarna í hlíð­inni og grasið væri nú að reyna að ná til sín. Eina hljóðið var í möl­inni undir göngu­skónum og and­ar­drætti þeirra sem nú var far­inn að þyngj­ast aðeins.

„Við erum að verða komin upp,“ sagði Jón Gabríel síðan. Hann stopp­aði og leysti af sér bak­pok­ann og lagði niður. Hann los­aði festar og leysti bönd sem lok­uðu honum. Úr bak­pok­anum dró hann síðan tvær grímur. Þær voru úr plasti sem var á lit­inn eins og vatn í glasi sem áður hafði verið drukkin mjólk úr. Svört efn­is­þynna var yfir aug­unum. „Hérna,“ sagði hann og rétti Gunn­hildi aðra.

„Til … til hvers er þetta?“

„Það kemur að því að drónar fljúgi yfir. Það er örugg­lega langt í það sko, en ég vil ekki að þú þekk­ist. Að við þekkj­umst.“

„Hvaða lykt er þetta?“ spurði Gunn­hildur. Gríman olli henni minna hug­ar­angri en lyktin sem slapp úr bak­pok­anum.

„Lykt?“

„Já.“

Lyktin var kunnu­leg. Einhver iðn­að­ar­lykt sem hún kom ekki fyrir sig.

„Það veit ég ekki,“ sagði hann, frekar flótta­legur. „Alla vega.“

Henni fannst að hún ætti að snúa við. Hún hristi af sér hroll og setti á sig grímuna. Ef þetta var stefnu­mót væri það strax það furðu­legsta sem hún hefði farið á.

„Það er ansi flott stein­brú hérna uppi á heið­inni. Reist fyrir tvö hund­ruð árum eða eitt­hvað. Alveg ótrú­legt í raun­inni.“

„Brú?“ spurði Gunn­hildur. „Uppi á fjalli?“

„Heiði,“ leið­rétti Jón Gabríel.

„Já, heiði. En brú? Alvöru brú? Af hverju er brú hérna?“

Jón Gabríel leit á hana. Hann var búinn að setja upp grímuna og hún sá ekki svip­brigði. Nú var eins og hann væri úr gleri, hálf­gagnsæ, svip­laus postu­líns­brúða.

„Þetta var einu sinni besta leiðin til að koma vörum á milli staða. Upp þessa leið, yfir heið­ina, yfir brúna og niður hinum megin.“

„Áður en göngin komu, mein­arðu?“ spurði Gunn­hildur.

„Nei, göngin eru bara þrjá­tíu ára, ég er að meina fyrir tvö hund­ruð árum.“

Þetta furðu­lega lag hans á að láta hana virka svo vit­lausa. Pirrandi og heill­andi bæði í senn.

Eftir um klukku­tíma göngu í við­bót komu þau að stein­brúnni. Hún var í raun­inni meira eins og lágreistur stein­veggur eða stífla. Öðru megin hafði safn­ast saman vatn úr læknum og mynd­aði lítið stöðu­vatn, hinum megin rann læk­ur­inn áfram niður hlíð­ina. Brúin sjálf var frekar breið, þau gátu auð­veld­lega gengið yfir hana hlið við hlið. Gunn­hildur mundi ekki eftir að hafa séð annað eins. Hún var bara búin til úr hlöðnum steinum. Eina hljóðið sem heyrð­ist var lágt gut­lið í læknum.

„Jón Gabríel,“ sagði hún en vissi ekki hvað hún gæti sagt meira. Þetta var ótrú­legur staður. Ósjálfrátt leit­aði höndin að sím­anum til að taka mynd, í raun einu við­brögðin sem hún þekkti við ein­hverju af þessu tagi en nú var það ekki í boði. Hún gat ekki tekið mynd og deilt í von um að aðrir segðu henni hvernig hún ætti að upp­lifa þessa stund.

„Þessi brú ...“ og eitt­hvað innra með henni breytt­ist. Til­finn­ingar að finna sér nýjan far­veg. Frétta­myndir af veggjum sem risu um heim allan; fólk að svelta og drep­ast úr hita á stöðum sem hún myndi aldrei heim­sækja; sjór­inn sem eitt sinn var upp­spretta lífs en lá nú ógn­andi grár og líf­laus um allan heim; upp­þotin í Kaíró, hungrið og stríðin í Suður-Ameríku og þessi gleymda stein­brú á Íslandi. Henni fannst hún vera að skilja eitt­hvað en var ekki viss hvað.

„… af hverju vissi ég ekki að þessi brú væri hérna?“

„Það veit það eng­inn,“ sagði Jón Gabríel. „Það veit eng­inn neitt lengur. Og það þýðir ekk­ert að segja fólki neitt heldur, það heyrir eng­inn neitt. Öllum finnst þeir hafa nóg bara að hugsa um sig og sína en skeyta ekki um aðra.“

Það var ein­hver skerpa í því hvernig hann tal­aði. Eins og hann væri búinn að brýna radd­böndin og ætl­aði að segja eitt­hvað beitt. Eins og það væri hættu­legt að hlusta á hann.

„Veistu hvað er mik­ill matur í geymslu í Banda­ríkj­unum? Veistu hvað er mik­ill matur í geymslu hér? Við gætum gefið tveimur millj­ónum að borða, auð­veld­lega. En við erum ekk­ert betri en hinir. Verri ef eitt­hvað er. Ofdekraða yngsta systkinið.“

Gunn­hildur vissi að þetta tengd­ist brúnni ekk­ert, það var eins og þetta væri æft hjá Jóni Gabríel. Eins og hann væri að segja eitt­hvað sem hann hafði sagt oft áður.

Gunn­hildur var um borð í lest sem hún gat ekki stoppað.

Hún leit á Jón Gabríel. Hann stóð með hendur beinar niður og kreppti hnef­ana og opn­aði, kreppti og opn­aði. Afmynd­aður af grímunni, klæddur í föl­brúnan jakka, svartar buxur og svarta klossa. Böndin á bak­pok­anum aflög­uðu jakk­ann þar sem hann hékk á bak­inu.

„Komdu, flýtum okkur,“ sagði Jón Gabríel.

Gunn­hildi lang­aði til að staldra við. Jón Gabríel, jafn­vel þó hann stæði kyrr, var ein­hvern veg­inn hættu­lega rólegur. Eins og hand­sprengja.

Hún vissi alveg hvað var hinum megin við heið­ina eða hafði heyrt nógu mikið til að geta gert sér hug­mynd um það hvert þau voru að fara. Jón Gabríel ætl­aði eflaust að gefa þeim mat og láta hand­taka sig eða eitt­hvað. Svona tákn­ræn hand­taka til þess eins og koma skila­boðum á fram­færi.

Þau gengu af stað. Gunn­hildi fannst hún vera að skilja eitt­hvað meira eftir þarna en bara stein­brúna en hún myndi átta sig betur á því, seinna. Gamla líf hennar lá nú þarna og gutl­aði með læknum. Hún hefði getað snúið við. En hún hélt áfram. Hennar ákvörðun.

„Þeir vissu þetta fyrir hund­rað árum,“ sagði Jón Gabríel. Þau gengu nú niður í móti. Það tók svo­lítið á lærin, Gunn­hildur var ekki vön að ganga svona, það var ekki þægi­legt að anda með grímuna og henni leið orðið eins og asna í þessum galla­buxum.

„Vissu hvað?“ spurði hún. Henni fannst orðin hljóma furðu­lega. Kramin undan grímunni.

„Lofts­lags­breyt­ing­arnar. Exxon og ein­hver olíu­fyr­ir­tæki vissu þetta fyrir hund­rað árum. Hundrað fokk­ing árum, og eng­inn gerði neitt.“

„Hundrað árum?“

„Já, eða þú veist. Nógu nálægt hund­rað árum til að skipta ekki alveg. Vissu þetta og héldu leyndu. Drápu plánet­una. Til að geta haldið áfram að selja bensín á bíla.“

„En,“ spurði hún þá, „vissi fólk þetta þá ekki líka?“

„Við erum öll svo fokk­ing vit­laust. Það vissu allir hvernig var í Norður Kóreu. Öll heims­byggðin horfði á Ísrael eyða Palest­ínu í slow-motion og eng­inn gerði rass­gat. Það gerir aldrei neinn neitt.“

Núna fyrst rann eitt­hvað upp fyrir Gunn­hildi. Henni fannst hún vera að falla, missa fót­anna. Eins og hug­myndin hefði fallið af himnum ofan á ógn­ar­hraða og skollið á henni. Hana svim­aði og hjartað ham­að­ist.

„Jón Gabríel?“

„Já?“

„Hvað ertu að fara að gera?“

Hann stopp­aði og snéri sér að henni. Súr­r­eal­ísk sýn. Jón Gabríel, klæddur eins og túristi, hálfn­aður niður fjall með risa­stóran bak­poka og hálf­gegn­sæja grímu fyrir vit­unum. Fyrir aftan hann lýsti sum­ar­sólin upp fag­ur­grænar hlíðar. Kyrrðin var algjör. Síðan heyrði hún í drón­unum.

„Ég á vin á næsta bæ,“ sagði Jón Gabríel. „Hann er til­bú­inn að senda út. Hérna.“ Hann kastaði til hennar síma. „Þú þarft bara að taka upp. Yfir­lýs­ingin ætti að vera farin út núna og þar kemur fram að þú vissir ekk­ert hvað ég var að fara að gera.“

„Hvað ertu að fara að gera?“

Jón Gabríel leit upp á drón­ana tvo sem svifu nú aðeins nokkrum metrum fyrir ofan þau. „Komdu. Flýtum okkur.“

Hann tók á rás niður hlíð­ina. Gunn­hildur leit upp á drón­ana. Annar fylgdi Jóni Gabríel eftir, hinn hékk í loft­inu fyrir ofan hana. Ef ekki væri fyrir hina algjöru þögn sem ríkir í íslenskri nátt­úru á sumrin, þess­ari tæru og ljúfu þögn, myndi hún eflaust ekk­ert heyra í honum. En þarna sveif hann á meðan litlir þyrlu­spað­arnir tættu í sig loftið. Hún hljóp af stað niður hlíð­ina.

Adrena­línið þaut um æðarnar eins og fljót að vori, blóðið var ískalt jök­ul­hlaup úr hjart­anu.

Hún hljóp. Gunn­hildur ótt­að­ist að hrasa og rúlla niður hlíð­ina en hún náði að halda fót­unum sem hún fann þó ekki fyrir lengur. Hún gæti allt eins hangið í bandi úr drón­anum sem fylgdi henni eftir, það var engu lík­ara en hún svifi niður.

„Jón Gabríel, hvað er þarna?“ kall­aði hún til hans. Hún vissi það samt alveg.

„Byrjaðu að taka upp,“ kall­aði hann til baka. „Kóðinn er einn …“ en hún heyrði ekki rest­ina. Orðin voru óskýr og hjartað ham­að­ist í eyr­unum.

„Segðu þetta aftur,“ kall­aði hún. Gunn­hildur stopp­aði og skoð­aði sím­ann sem hann hafði látið hana fá. Þetta var eins og hver annar sími, kannski aðeins þyngri. Hún sló létt á skjá­inn með fingri og hann hrökk við í hönd­unum á henni. Á skjánum birt­ist talna­borð.

„Nítján-átta-fjórir!“ kall­aði Jón Gabríel sem var nú kom­inn að girð­ingu. Hinum megin var stórt hús, sveita­bær en við bæinn voru óvenju margar hlöður. Drapp­lit­aðar hlöður, reyndar ansi stórar. Margar í röð. En í þeim voru ekki dýr, bara fólk sem komið var fram við eins og dýr. Hátt grind­verkið var tvö­falt, með gadda­vír á milli.

Hún sló kóð­ann inn og hljóp að Jóni Gabríel.

„Hvað er að ger­ast Jón? Hvaða bær er þetta og af hverju er gadda­vírs­girð­ing hérna?“ Hún spurði spurn­ingar sem hún vissi alveg svarið við, bara til að segja eitt­hvað. Gunn­hildi fannst eins og hún væri komin út í á, dregin áfram niður með straumnum í átt að ein­hverju sem hún vissi að myndi breyta lífi hennar. Samt ekki viss um að hún vildi kom­ast upp á bakk­ann.

„Taktu bara upp!“ svar­aði Jón Gabríel.

Gunn­hildur sá næstu mín­útu í gegnum skjá­inn á sím­anum. Stundum hélt hún að þetta hafi verið eitt­hvað plat, að hún hafi verið að horfa á upp­töku en ekki að taka upp sjálf. Jón Gabríel með girð­ing­una og bæinn fyrir aftan sig, hendur á böndum bak­pokans, fæturnir glenntir sundur. Pétur Pan með plast­grímu, reiður út í full­orðna fólkið sem dó og skildi næstu kyn­slóð eftir í skítnum.

„My name is Jón Gabríel Smith. Today is the eleventh of June 2052. I stand in front of a secret Icelandic camp for climate change refugees. The Icelandic Govern­ment hides these people in contradiction to international law and then sends them back to their deaths. The people of Iceland and the world needs to know about this.“

Í einni andrá sveifl­aði hann bak­pok­anum á jörð­ina og opn­aði. Nú svifu fimm drónar yfir þeim og Gunn­hildur sá verði koma hlaup­andi. Þeir voru samt of langt í burtu, virt­ust hreyfa sig eins og þeir væru í vatni upp að mitti.

Úr bak­pok­anum tók Jón Gabríel stóran rauðan plast­brúsa.

„Before I close my eyes, I plead to the pres­ident, and the people of Iceland, to take a mind of compassion to the people of the world, who are only fleeing the death of a climate made mad by greed. Ég loka nú augum mínum. Opnið þið ykkar.“

Jón Gabríel tók tapp­ann af brús­anum, leit á Gunn­hildi, lok­aði aug­unum og hellti ein­hverju yfir sig. Síðan tók hann kveikjara úr vas­anum og kveikti í. Brátt stóð grár reyk­ur­inn af Jóni Gabríel.

Gunn­hildur stóð graf­kyrr, þorði ekki að hreyfa sig. Sagði ekk­ert. Eins og hún myndi gera þennan hryll­ing raun­veru­legan með því að hreyfa sig eða tala, eins og á meðan hún horfði bara á í gegnum sím­ann væri þetta bara ein­hver brella. En brátt tók lyktin allan vafa af.

Gunn­hildur vissi ekki að hún væri að öskra fyrr en hún sá upp­tök­una sjálf, seinna. Jón Gabríel sagði ekki orð á meðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár