Klám, sóðaskapur og annað vinsælt skemmtiefni

Fyr­ir­tækið sem rekur klám­síð­una Pornhub er risa­vaxið fyr­ir­bæri sem teygir anga sína um allan heim og veltir millj­örðum. Í krafti auð­æfa og sam­fé­lags­breyt­inga hefur það gjör­breytt ásýnd klám­iðn­að­ar­ins á skömmum tíma og getið sér gott orð fyrir fram­lög til góð­gerð­ar­mála en ekki eru allir sam­mála um ágæti þeirrar þró­unar eða hvað hún kann að kosta.

Fyrstu klám­mynd­irnar voru senni­lega ein­hvers konar útskorin líkneski en elstu minjar um slíka fram­leiðslu eru frá árdögum mann­kyns í vöggu sið­menn­ing­ar­innar fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Það er auð­vitað erfitt að vita í hvaða til­gangi menn fram­leiddu þessar graf­ísku myndir af kyn­lífi, í ein­hverjum til­vikum var um að ræða helga muni og frjó­sem­is­tákn, en senni­lega gekk fólki fleira en eitt til frá upp­hafi. Flestir kann­ast til dæmis við Kama Sutra sem á upp­runa sinn í helgi­ritum hindúa en er um leið gríð­ar­lega eró­tísk.

Eftir því sem grein­ar­höf­undur kemst næst eru elstu heim­ildir um klám á Íslandi að finna í Bjarnar sögu Hít­dæla­kappa. Björn þessi var frændi Egils Skalla­gríms­sonar en í sög­unni segir frá Þórði nokkrum sem varð fyrir því óláni að ein­hver fann hommaklámið hans. Varð það kveikjan að tölu­verðum ill­deilum.

Svo segir í sög­unni: „Þess er nú við getið að hlutur sá fannst í hafn­ar­marki Þórðar er þvígit vin­veitt­legra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár