Nöfn þeirra sem létust í flugslysinu

Fólkið sem lést voru hjón ásamt syni sínum. Annar sonur hjón­anna og tengda­dóttir liggja þungt haldin á sjúkra­húsi.

Þrír lét­ust og tveir voru fluttir alvar­lega slas­aðir með þyrlu land­helg­is­gæsl­unnar á sjúkra­hús eftir að einka­flug­vél skall til jarðar við Múlakot í Fljóts­hlíð um 20:30 síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld. Til­kynn­ing barst um flug­slys við flug­völl laust upp úr 20:30 umrætt kvöld og við­bragð­steymi Rauða kross Íslands kallað út til að veita vitnum að atvik­inu sál­rænan stuðn­ing. Eldur varð laus í flug­vél­inni og fjöl­mennt lið lög­reglu, slökkvi­liðs og sjúkra­flutn­inga­manna fóru á stað­inn. Rannsókn á til­drögum slyss­ins er nú í gangi hjá lög­reglu.

Þau sem lét­ust voru hjónin Ægir Ib Wessman, fyrrum yfir­flug­stjóri hjá WOW air, fæddur árið 1963 og Ellen Dahl Wessman sjúkra­þjálf­ari, fædd árið 1964. Sömu­leiðis lést sonur þeirra Jón Emil Wessmann fæddur árið 1998 og því aðeins tutt­ugu og eins árs gam­all. Öll voru þau úrskurðuð látin á vett­vangi.

Annar sonur hjón­anna og tengda­dóttir liggja nú þungt haldin á Land­spít­al­anum en líðan þeirra er sögð stöðug sam­kvæmt til­kynn­ingu frá lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár