Brauðtertur eru kitsch og kitsch er cool

Í brauðtertu­fé­lag­inu Erlu og Erlu skipt­ast félags­menn á ráðum, myndum og upp­skriftum að hinni full­komnu brauðtertu. Mynd­irnar sem félags­menn deila með sér kalla fram vatn í munn­inn og vert er að skoða þær ekki, sé fólk mjög svangt. Majónes og brauð leika alla jafna lyk­il­hlut­verk í brauðtertu­gerð en fyll­ingar geta verið af ýmsu tagi.

Brauðtertur eru kitsch og kitsch er cool
Elska rækjur og rækju­salat Árni Jónsson og Axel Aage Schiöth sem eru miklir áhuga­menn um brauðtertur og stofn­uðu sitt eigið brauðtertu­fé­lag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­skipta­síðan Facebook getur verið til margra hluta nyt­sam­leg og nú hefur þar bæst í flór­una félag áhuga­fólks um brauðtertur sem ber heitið Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu. Síðan er vin­sæl en þar skipt­ist fólk á ráðum um hvernig gera skuli hina full­komnu brauðtertu, deilir upp­skriftum að sínum upp­á­halds­brauðtertum og setur inn myndir sem er vert að skoða ekki sé maður mjög svangur. Enda er þar að finna margar girni­legar brauðtertur sem kalla fram vatn í munn­inn. Fag­ur­lega skreyttar brauðtertur eru klass­ískur veislu­réttur en svo er líka hægt að búa sér bara til eina fljót­lega í kvöld­mat­inn nái brauðtertu­þörfin hámarki. Brauðtertur eru ekk­ert síðri dag­inn eftir og við gerð þeirra leikur jú majónes og brauð að eigin vali má segja aðal­hlut­verkið. Fyll­ingar eru af ýmsum toga. Brauðterta með laxi eða skinku er mjög hefð­bundin en klúbb­sam­loku-bauðterta öllu óhefð­bundn­ari og nýrri á mat­seðl­inum. 

Vinna ekki með upp­skriftirÞeir segja …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár