Siðanefnd vísar kæru Þórðar frá en telur „fréttaskýringu“ Sigurðar ekki vera fréttaskýringu

Siða­nefnd blaða­manna telur að efni sem Sigurður Már Jónsson blaða­maður kynnti sem frétta­skýr­ingu sé ekki frétta­skýr­ing og falli því utan gild­is­sviðs siða­reglna blaða­manna. „Kannski væri best að siða­nefndin, eða Blaða­manna­fé­lag Íslands, upp­lýsi bara um það um hvaða fjöl­miðla siða­regl­urnar eigi við og hverja ekki og sömu­leiðis hvaða blaða­menn séu til þess fallnir að ákveða sjálfir eðli skrifa sinna og hverjir ekki,“ segir Þórður Snær Júl­í­us­son í sam­tali við Stundina.

Siðanefnd vísar kæru Þórðar frá en telur „fréttaskýringu“ Sigurðar ekki vera fréttaskýringu
Siða­nefnd tekur ekki afstöðu Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands telur sig ekki geta fjallað efn­is­lega um kvörtun Þórðar Snæs sökum þess að siða­reglur félags­ins nái ekki til skrifa Sigurðar Más. Það er vegna þess að í efn­is­yf­ir­liti Þjóðmála hafi grein Sigurðar Más verið merkt sem „umfjöllun“ en ekki frétt eða frétta­skýr­ing.

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur vísað frá kæru Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, gegn Sigurði Má Jónssyni og Gísla Frey Val­dórs­syni og ætlar ekki að taka málið til efn­is­legrar með­ferðar. Tilefni kærunnar var umfjöllun Sigurðar Más um Kjarnann sem birt­ist í nýjasta hefti Þjóðmála sem Gísli Freyr rit­stýrir. Þórður hefur gagn­rýnt skrifin harð­lega og taldi siða­reglur blaða­manna ná til þeirra í ljósi þess að Sigurður Már hefur sjálfur lýst umfjöll­un­inni sem „frétta­skýr­ingu“. 

Í kæru sinni til­tók Þórður ýmis atriði sem farið var rang­lega með í grein­inni og greindi frá tölvu­pósts­sam­skiptum sínum við Sigurð Má þar sem Sigurður hefði „ekki sýnt vilja til að leið­rétta þær skýru stað­reynda­villur og ann­ars konar rang­færslur sem er að finna í frétta­skýr­ing­unni né beiðnum um að biðja fólk sem gerðar eru upp skoð­anir og hvatir í frétta­skýr­ing­unni afsök­unar“. 

Að mati siða­nefndar ná hins vegar siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands ekki til skrif­anna í ljósi þess að í efn­is­yf­ir­liti Þjóðmála er greinin merkt sem „umfjöllun“ en ekki frétt eða frétta­skýr­ing. „Telur siða­nefnd umrædda umfjöllun fremur bera per­sónu­legan keim með fram­setn­ingu höf­undar á skoð­unum sínum á miðl­inum fremur en rök­studda grein­ingu eða frétta­skýr­ingu,“ segir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

Einn nefndarmanna ósammála

Einn nefnd­ar­manna, Friðrik Þór Guð­munds­son, var ósam­mála meiri­hlut­anum um frá­vísun máls­ins og taldi að leggja ætti lýs­ingu Sigurðar Más sjálfs á skrifum sínum sem „frétta­skýr­ingu“ til grund­vallar og taka kæruna til efn­is­með­ferðar.

Athygli vekur að Jóhannes Tómasson er einn þeirra siða­nefnd­ar­manna sem standa að nið­ur­stöð­unni. Jóhannes var upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þegar Gísli Freyr Val­dórs­son, annar hinna kærðu, var aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra. Gísli fékk síðar refsi­dóm fyrir að leka afbök­uðum trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­endur til fjöl­miðla í leka­mál­inu svo­kall­aða en Jóhannes stýrði upp­lýs­inga­gjöf ráðu­neyt­is­ins og gaf út yfir­lýs­ingar fyrir hönd þess þegar málið stóð sem hæst.

Sigurður Már lýsir sjálfum sér sem blaða­manni og grein sinni í Þjóð­málum sem frétta­skýr­ingu.

Þórður Snær segir í sam­tali við Stundina að sér þyki úrskurð­ur­inn ill­skilj­an­legur. „Siða­nefnd neitar að taka efn­is­lega fyrir skrif sem höf­und­ur­inn sjálfur skil­greinir sem frétta­skýr­ingu, vegna þess að hún telur sig vita betur hvers eðlis efnið sé og skil­greinir það sem skoð­ana­grein. Þannig kemur siða­nefndin sér undan því að taka afstöðu til alls ell­efu ummæla höf­undar sem við teljum borð­leggj­andi að brjóti gegn 1. og 3. grein siða­reglna Blaða­manna­fé­lags Íslands, þar sem öll kærð ummæli eru ósann­indi, aðdrótt­anir, afbak­anir eða hug­ar­burður höf­undar,“ segir hann.

„Samkvæmt úrskurði siða­nefndar þá eru vænt­an­lega öll skrif í Þjóð­málum, sem er skráður fjöl­mið­ill hjá Fjöl­miðla­nefnd með birta rit­stjórn­ar­stefnu, þess eðlis að þau falli ekki undir siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands. Því má birta hvað sem er um hvern sem er á þeim vett­vangi. Kannski væri best að siða­nefndin, eða Blaða­manna­fé­lag Íslands, upp­lýsi bara um það um hvaða fjöl­miðla siða­regl­urnar eigi við og hverja ekki og sömu­leiðis hvaða blaða­menn séu til þess fallnir að ákveða sjálfir eðli skrifa sinna og hverjir ekki.“

Fleiri kæra skrif Sigurðar 

Þórður bendir á að þótt úrskurði siða­nefndar verði ekki áfrýjað sé ljóst að ansi margir ein­stak­lingar hafi orðið fyrir barð­inu á „þessum rætna atvinnurógi sem birt­ist um Kjarnann í Þjóð­málum í síð­asta mán­uði“. Þannig geti margir kært mál er varða grein Sigurðar Más til siða­nefndar.

Það hefur raunar Magnús Hall­dórs­son, annar starfs­maður Kjarnans, þegar gert. Að sögn Þórðar hefur sú kæra að geyma við­bót­ar­upp­lýs­ingar um rit­stýr­ingu á grein Sigurðar Más og nýjar upp­lýs­ingar um að fyrir hafi legið að greinin væri ekki skoð­ana­grein áður en hún var birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár