Sagði einhver lárpera?

Veit­inga­stað­ur­inn The Avocado Show í Amster­dam sló í gegn á sam­fé­lags­miðlum og langar biðraðir af svöngum og for­vitnum ferða­mönnum mynd­uð­ust fyrir framan hann - áður en hann var opn­aður.

Sagði einhver lárpera?
Hittu naglann á höf­uðið Um leið og Ron Simpson og Julien Zaal höfðu gefið það út að þeir ætl­uðu að opna veit­inga­stað þar sem þeirra upp­á­halds ofur­á­vöxtur, avókadó, yrði í for­grunni varð stað­ur­inn gríð­ar­vin­sæll. Áður en búið var að opna dyrnar fyrir gestum höfðu fjöl­miðlar í sex­tíu löndum fjallað um upp­á­tækið. Mynd: Avocado Garden

Því hefur verið fleygt að vin­sældir lárper­unnar meðal breskra stúd­enta geti haft slæm áhrif á fram­tíð þeirra. Þó ekki af heilsu­fars­á­stæðum, enda er þetta ágæta aldin stút­fullt af holl­ustu, heldur að sú breyt­ing sem orðið hafi á matar­æði þeirra muni steypa þeim í skuldir og gera þeim erf­ið­ara með að koma undir sig fót­unum að námi loknu. Enda er ristað brauð með lárperu nokkuð dýr­ara en hið sívin­sæla stúd­enta­fæði, baunir á rist­uðu brauði. Þó hér sé lík­leg­ast nokkuð djúpt í árinni tekið breytir það því ekki að vin­sældir lárper­unnar hafa auk­ist til muna í flestum Evr­ópu­löndum og víðar und­an­farið. Holland er meðal stærstu inn­flutn­ings­landa lárper­unnar og í Amster­dam búa tveir eld­heitir aðdá­endur hennar sem dýrka lárperu svo mjög að veit­inga­staður þeirra, The Avocado Show, býður ein­göngu upp á rétti úr eða með lárperu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár