Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

Siða­nefnd Alþingis telur að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, hafi brotið gegn siða­reglum fyrir alþing­is­menn þegar hún sagði í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018 að uppi væri rök­studdur grunur um að Ásmundur Frið­riks­son þing­maður hefði dregið sér fé. 

Þegar Þór­hildur Sunna lét ummælin falla lá fyrir að Ásmundur hafði fengið 4,6 millj­óna króna akst­urs­kostnað end­ur­greiddan frá Alþingi vegna 48 þús­und kíló­metra akst­urs á eigin bíl þrátt fyrir að reglur um þing­far­ar­kostnað kveði á um að þing­menn sem aka meira en 15 þús­und kíló­metra á ári skuli not­ast við bíla­leigu­bíl og siða­reglur leggi þá skyldu á herðar þing­mönnum að sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld sé „í full­komnu sam­ræmi“ við reglur um þing­far­ar­kostnað. Sjálfur hefur Ásmundur við­ur­kennt að hluti af end­ur­greiðsl­unum hafi „orkað tví­mælis“ og end­ur­greitt skrif­stofu Alþingis 178 þús­und krónur sem hann fékk vegna ferða um kjör­dæmi sitt með töku­fólki frá sjón­varps­stöð­inni ÍNN.

For­sætis­nefnd hafn­aði í fyrra beiðni Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um að end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar og fleiri þing­manna yrðu teknar til athug­unar. Var mál­inu ekki vísað til ráð­gef­andi siða­nefndar. 

Hins vegar ákvað for­sætis­nefnd þann 2. apríl síð­ast­lið­inn að vísa erindi Ásmundar Frið­riks­sonar sjálfs, sem kvart­aði undan ummælum Þór­hildar Sunnu og Björns Levís um akst­urs­greiðsl­urnar, til siða­nefndar Alþingis. Í bréfi sínu til siða­nefndar tók Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­for­seti sér­stak­lega fram að ekki stæði til að „fjalla um eða skera úr um sann­leiks­gildi“ þeirra ummæla sem Þór­hildur Sunna og Björn Leví hefðu við­haft um mál­efni Ásmundar.

Siða­nefndin skil­aði ráð­gef­andi áliti þann 9. maí síð­ast­lið­inn. Stundin hefur álitið undir höndum, en nið­ur­staða þess er sú að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur. Ummæli hennar í Silfrinu, um að uppi væri rök­studdur grunur um fjár­drátt, hafi verið til þess fallin að „kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess“. Slík ummæli hafi „óneit­an­lega nei­kvæð áhrif á traust almenn­ings til Alþingis“ og séu ekki í sam­ræmi við við­mið siða­reglna um að þing­menn skuli rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika og af virð­ingu fyrir Alþingi, stöðu þess og störfum.

„Í ljósi fram­an­greinds er það nið­ur­staða siða­nefndar að ummæli Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur frá 25. febr­úar 2018, virt í heild sinni, séu ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn,“ segir í nið­ur­stöð­unni. Hins vegar er Björn Leví ekki tal­inn hafa brotið gegn siða­reglum. 

Segja Þórhildi hafa verið með „æsing“ 

Formaður siða­nefndarJón Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gegndi for­mennsku í siða­nefnd­inni við með­ferð máls­ins. Hann stendur að álit­inu ásamt Margréti Völu Krist­jáns­dóttur og Róberti H. Har­alds­syni.

Fram kemur í álit­inu að notkun hug­taks­ins „rök­studdur grunur“ um akst­urs­greiðslur til Ásmundar Frið­riks­sonar „get[i] bent til þess að umræðan hafi að ein­hverju leyti ein­kennst af æsingi fremur en mál­efna­legum rökum“.

Líta verði til þess að Þór­hildur Sunna sé þing­maður og þar með hand­hafi lög­gjaf­ar­valds í umboði þjóð­ar­innar. 

„Þá hafa þing­menn, í krafti trún­að­ar­stöðu sinnar í sam­fé­lag­inu, aðgang að ýmsum gögnum og upp­lýs­ingum. Full­yrð­ing þing­manns um það að uppi sé rök­studdur grunur um að þing­maður hafi gerst sekur um refsi­vert brot gefur til kynna að hann búi yfir áþreif­an­legum upp­lýs­ingum þar að lút­andi.

Að mati siða­nefndar hafa slík ummæli af hálfu þing­manns annað vægi en af hálfu almenn­ings eða jafn­vel fjöl­miðla. Hér ber einnig að líta til þess að sem lýð­ræð­is­lega kjörnir full­trúar borg­ar­anna hafa þing­menn umboð kjós­end­anna til þess að fara með stjórn sam­eig­in­legra sjóða rík­is­ins. Ásakanir um refsi­verðan fjár­drátt þing­manns úr þeim sjóðum eru alvar­legar.“ 

Þór­hildur Sunna gagn­rýndi ráða­menn harð­lega í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018.

Kvörtunum undan Ásmundi, Sigmundi og Ágústi vísað frá

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir er fyrsti þing­mað­ur­inn sem ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis kemst að þeirri nið­ur­stöðu að hafi brotið siða­reglur alþing­is­manna. Enn liggur þó ekki fyrir end­an­leg nið­ur­staða af hálfu for­sætis­nefndar.

For­sætis­nefnd Alþingis vís­aði nýlega frá siða­reglu­máli sem sner­ist um full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í fjöl­miðlum um að mál­flutn­ingur á borð við þann sem var við­hafður á Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018 væri alsiða meðal þing­manna og að þing­menn flestra flokka segðu jafn­vel enn gróf­ari hluti en sagðir voru á Klaustri. Töldu sér­stakir vara­for­setar Alþingis „ekki unnt að full­yrða“ að um brot á siða­regl­unum hefði verið að ræða en ákváðu að loka mál­inu og vísa því ekki til siða­nefndar.

Nú á mánu­dag vís­aði svo for­sætis­nefnd frá siða­reglu­máli er varð­aði meinta kyn­ferð­is­lega áreitni Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, og taldi ekki þörf á því að láta siða­nefnd meta hvort kyn­ferð­is­leg áreitni fæli í sér brot á siða­reglum alþing­is­manna.

Hið sama var uppi á ten­ingnum í fyrra þegar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fór fram á að skoðað yrði hvort end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­sonar og ann­arra þing­manna sam­rýmd­ust siða­reglum.

Lá þá fyrir að nokkrir þing­menn höfðu keyrt miklu fleiri kíló­metra á eigin bif­reið heldur en þágild­andi reglur um þing­far­ar­kostnað gerðu ráð fyrir, en sam­kvæmt 14. gr. siða­reglna ber þing­mönnum að „sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál“. 

FÍB hafði reiknað út að kostn­að­ur­inn af því að reka reka bíl eins og Ásmundar miðað við þann kíló­metra­fjölda sem hann hafði gefið upp væri nær 2 millj­ónum heldur en 4,6 millj­ónum auk þess sem sér­fræð­ingur í refsirétti hafði tjáð sig um það í Frétta­blað­inu að röng skrán­ing í akst­urs­dag­bók gæti falið í sér fjár­svik. „Það er uppi rök­studdur grunur um að Ásmundur hafi látið skatt­greið­endur greiða fyrir mun meiri keyrslu en þeim er ætlað að standa kostnað af fyrir þing­menn,“ sagði Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, í leið­ara um málið þann 19. febr­úar 2018, nokkrum dögum áður en Þór­hildur Sunna setti fram sams konar full­yrð­ingar í Silfrinu. „Raunar er það meira en grun­ur. Ásmundur gekkst nefni­lega við því í síð­ustu viku að nota bif­reið sína í próf­kjörs­bar­áttu sinni.“

Sagði Birni Leví hafa verið hótað

For­sætis­nefnd taldi að Ásmundur hefði ekki þurft að fylgja regl­unni um bíla­leigu­bíla vegna þess að skrif­stofa Alþingis hefði enn verið að „inn­leiða breyttar reglur“ á þessum tíma. Fyrir vikið væri ekki ástæða til að skoða hvort brot á siða­regl­unum hefði verið framið eða vísa mál­inu til siða­nefndar.

Þingmenn Pírata gagn­rýndu þessa máls­með­ferð harð­lega í umræðum á Alþingi 26. nóv­em­ber 2018. Þór­hildur Sunna sagði að Birni Leví hefði verið hótað því að hann yrði sjálfur lát­inn sæta ábyrgð sam­kvæmt siða­reglum fyrir að hafa sent inn erindið um að akst­urs­greiðslur þing­manna yrðu rann­sak­aðar. Var þess­ari frá­sögn ekki mót­mælt af þing­mönnum sem tóku þátt í umræð­unni.

Forseti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, varði ákvörðun for­sætis­nefndar af hörku og sagð­ist vona að mál­inu væri lokið fyrir fullt og allt. Akst­urs­greiðslu­málið öðl­að­ist hins vegar fram­halds­líf þegar Ásmundur Frið­riks­son sak­aði Björn Leví og Þórhildi Sunnu um siða­reglu­brot og erindi hans var vísað til siða­nefndar, ólíkt öllum þeim erindum sem nefnd hafa verið hér að ofan.

Það sem Þórhildur Sunna mátti ekki segja

Hér að neðan má sjá ummælin sem Þór­hildur Sunna lét falla í Silfrinu og talin eru hafa stang­ast á við siða­regl­urnar.

Eftir þátt­inn birti Þór­hildur Sunna stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hún sagði meðal ann­ars að það væri „full­kom­lega eðli­legt að skoða grun­sam­legt akst­urs­bók­hald Ásmundar Frið­riks­sonar“ í ljósi ákvæða almennra hegn­ing­ar­laga. „Það er full­kom­lega eðli­legt í rétt­ar­ríki að hann sæti rann­sókn vegna þessa, rétt eins og hver annar sem upp­vís verður að vafa­samri fjár­söfnun úr vösum skatt­greið­enda.“

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýndu hana harð­lega á Alþingi nokkrum dögum síðar og sögðu hana hafa farið út fyrir vel­sæm­is­mörk með því að væna þing­menn um refsi­verðan verknað. Bentu Birgir Ármanns­son og Brynjar Níelsson á að orða­sam­bandið rök­studdur grunur hefði sér­staka merk­ingu í saka­mála­rétt­ar­fari. 

Þór­hildur Sunna svar­aði meðal ann­ars á þá leið að þótt orða­sam­bandið rök­studdur grunur væri notað í lög­fræði hefði lög­fræðin engan einka­rétt á notkun orð­anna. „Það er almenn skyn­semi að tala um að það sé rök­studdur grunur fyrir því að hin ýmsu brot hafi átt sér stað hérna. Ég er ekki lög­reglan, ég er ekki að tala fyrir hönd lög­reglu þegar ég segi að það sé rök­studdur grunur til að hefja rann­sókn á lög­brotum,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár