Ekki aðhafst vegna aukastarfs dómara

„Verkefni því sem þú vísar til lauk áður en Davíð Þór Björg­vins­son dóm­ari hóf störf við rétt­inn“, segir í svari frá skrif­stofu­stjóra Lands­réttar. Nefnd um dóm­ara­störf telur hins vegar að reglur um auka­störf dóm­ara gildi allt frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti.

Ekki aðhafst vegna aukastarfs dómara
Sinnti hags­muna­gæslu fyrir ríkið Davíð Þór fékk 1,5 millj­ónir fyrir að „spjalla við rík­is­lög­mann um þetta erindi frá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum“ eins og hann lýsti því. Mynd: MBL / RAX

Forseti Lands­réttar skiptir sér ekki af því að dóm­ari við rétt­inn hafi sinnt laun­aðri hags­muna­gæslu fyrir íslenska ríkið án þess að greina nefnd um dóm­ara­störf frá því fyr­ir­fram. „Verkefni því sem þú vísar til lauk áður en Davíð Þór Björg­vins­son dóm­ari hóf störf við rétt­inn 1. októ­ber 2018“, segir Björn L. Bergsson, skrif­stofu­stjóri Lands­réttar, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Blaðið greindi frá því þann 22. mars síð­ast­lið­inn að Davíð Þór Björg­vins­son dóm­ari hefði fengið 1,5 millj­ónir fyrir lög­fræði­ráð­gjöf sem hann veitti rík­is­lög­manni við ritun grein­ar­gerðar til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna Lands­rétt­ar­máls­ins. Á þeim tíma hafði Davíð Þór þegar verið skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Samkvæmt 6. gr. reglna um auka­störf dóm­ara er dóm­urum óheim­ilt að taka að sér mál­flutn­ings­störf sem og önnur hefð­bundin lög­manns­störf ef end­ur­gjald kemur fyrir. Þá hefur nefnd um dóm­ara­störf túlkað dóm­stóla­lög með þeim hætti að „almennt verð[i] að telja að lög­fræði­leg ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi sé ekki heimil dóm­ara“. Þetta eigi við allt frá þeim tíma sem dóm­ari hefur verið skip­aður í emb­ætti. 

„Það er rétt að nefnd um dóm­ara­störf lítur svo á að 45. gr. dóm­stóla­laga nr. 50/2016 og reglur nr. 1165/2017 eigi almennt við frá því að dóm­ari er skip­aður í emb­ætti, til dæmis þó að hann eða hún sé í náms­leyfi,“ segir Hjördís Hákon­ar­dóttir, for­maður nefndar um dóm­ara­störf, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Þetta kann þó að vera túlk­un­ar­at­riði í hverju til­viki fyrir sig.“

Aðspurð hvort það sé æski­legt að skip­aðir dóm­arar sinni öðru laun­uðu starfi fyrir ríkið segir Hjördís að nefnd um dóm­ara­störf telji það almennt ekki æski­legt. „En við setn­ingu laga nr. 50/2016 mild­aði þingið afstöðu sína til þessa atriðis, frá því sem verið hafði í frum­varpi, og eru slík störf því heimil að vissu marki, t.d. vegna starfa við úrskurð­ar­nefndir. Dómarar hafa lengi gegnt ýmsum nefnd­ar­störfum á vegum fram­kvæmda­valds­ins og eru skoð­anir skiptar um ágæti þess. Nefndin lítur svo á að nú sé um nokk­urs konar milli­bils­á­stand að ræða, á meðan dóm­arar ljúka þeim störfum sem þeir höfðu skipun til og heim­ild til að sinna þegar hin nýju dóm­stóla­lög tóku gildi, en að sú heim­ild verði end­ur­skoðuð og túlkuð í ljósi lag­anna að þeim tíma liðnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár