Leita leiða til að bjarga WOW

Viðræðum WOW air og Icelandair lauk í gær og mikil óvissa ríkir um fram­tíð WOW. Ráð­herrar fund­uðu um málið í gær, en efna­hags­leg áhrif falls WOW yrðu mikil.

Leita leiða til að bjarga WOW

Viðræðum WOW air og Icelandair lauk í gær án þess að samn­ingar næð­ust. Mikil óvissa ríkir um fram­tíð WOW air.

Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins vinnur Arctica Finance að því að safna and­virði 42 millj­óna doll­ara, 5 millj­örðum króna, til að tryggja rekstur félags­ins. Félagið skuldar íslenskum aðilum stórar upp­hæðir, þar á meðal Arion banka og Isavia, en for­svars­fólk WOW air hefur þrýst á að Isavia gefi eftir hluta skuld­ar­innar. Þátt­tak­endur í skulda­bréfa­út­boði WOW frá því í haust, sem lögðu þá til and­virði tæpra 8 millj­arða íslenskra króna, og aðrir kröfu­hafar fund­uðu um helg­ina.

Samkvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins var tap WOW air á síð­asta ári 22 millj­arðar króna. Þá muni lausa­fjár­staða félags­ins vera afar veik, nei­kvæð um 1,4 millj­arð króna, og eigið fé félags­ins nei­kvætt um sem nemur 11 millj­örðum króna. Tryggja þurfi 10 millj­arða króna inn­spýt­ingu til að rekst­ur­inn lifi út árið.

Þá hefur komið fram að mögu­legt fall WOW air gæti valdið miklum skakka­föllum fyrir íslenskt efna­hags­líf. Lands­fram­leiðsla gæti dreg­ist saman um allt að 3 pró­sent, sam­kvæmt ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Reykja­vík Economics. Slíkt hefði einnig í för með sér veik­ingu krón­unnar og þús­undir starfa mundu tap­ast.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar fund­uðu um málið í gær. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Þórdís Kolbrún Reykj­fjörð Gylfa­dóttir, ferða- og sam­göngu­mála­ráð­herra, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, ræddu saman, ásamt Michael Ridley frá JP Morgan fjár­fest­inga­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár