Viðkvæm dómsmál í uppnámi: Réttaróvissan slæm fyrir börn og foreldra

„Það er mjög brýnt að eyða þeirri óvissu sem hefur skapast í kjölfar dóms Mann­réttinda­dómstóls Evrópu,“ segir Tómas Hrafn Sveinsson, formaður Barna­verndar­nefndar Reykja­víkur.

„Réttaróvissan er afar slæm fyrir alla aðila, börn, foreldra og fóstur­foreldra,“ segir Tómas Hrafn Sveinsson, formaður Barna­verndar­nefndar Reykja­víkur og hæstaréttar­lögmaður í samtali við Stundina. 

Fjöldi dóma í barna­verndar-, forsjár- og umgengnis­málum hefur verið kveðinn upp í Lands­rétti síðan milli­dómstigið tók til starfa í fyrra og mörg viðkvæm mál bíða úrlausnar. Fjór­menningarnir sem skipaðir voru landsréttar­dómarar með ólögmætum hætti og í trássi við mat hæfnis­nefndar hafa dæmt í tugum slíkra mála. Af dómi Mann­réttinda­dómstóls Evrópu í Lands­réttar­málinu má ráða að með dómunum, og jafnvel einnig dómum hinna ellefu dómaranna, hafi verið brotið gegn rétti dómþola til að fá úrlausn fyrir óhlutdrægum og sjálf­stæðum dómstól.

Tómas Hrafn Sveins­sonfor­maður Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­víkur og hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Tómas Hrafn bendir á að vegna eðlis barna­verndar­mála sé lögð sérstök áhersla á málshraða þegar þau eru fyrir dómi. Kæru- og áfrýjunar­frestir séu styttri en í öðrum málum, enda sé réttaróvissa sérstak­lega slæm í svo viðkvæmum málum. 

„Þess vegna er mjög brýnt að eyða þessari óvissu sem hefur skapast í kjölfar dóms Mann­réttinda­dómstóls Evrópu, bæði hvað varðar barnaverndarmál sem þegar hafa verið flutt í héraði og bíða fyrir Lands­rétti og svo ekki síst vegna þeirra mála sem þegar hafa hlotið endanlega afgreiðslu Lands­réttar,“ segir Tómas Hrafn. 

Stundin hefur rætt við lögmenn, lögfræðinga og málsaðila í dómsmálum eftir að dómur Mann­réttinda­dómstóls Evrópu var kveðinn upp. „Það er skelfilegt að vera settur í biðstöðu þegar málið var loksins komið á þetta stig, þegar maður hélt loksins að þetta væri að verða búið,“ sagði einn af viðmælendum Stundarinnar í gær, aðili að viðkvæmu dómsmáli sem var á dagskrá Lands­réttar í vikunni en hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma vegna dóms Mann­réttinda­dómstólsins.

RÚV og Vísir.is greindu frá því fyrir hádegi að Fangelsis­mála­stofnun hefðu borist beiðnir um að afplánun dæmdra manna yrði frestað vegna dóms Mann­réttinda­dómstólsins. Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttar­lögmaður tjáði sig um réttaróvissuna í Morgun­útvarpinu á Rás 2: „Þetta er fyrst og fremst óvissan sem er þá fyrir þá sem að eru búnir að fá dóma, kannski sitja í fangelsi eða eitthvað þess háttar og þá fyrir þá tugi og hundruð mála sem biða úrlausnar. Hvernig á að greiða út þessu? Á að taka bara einhvern veginn áhættuna af því að þetta blessist einhvern veginn eða þetta verði allt ónýtt eftir að við erum búin að halda áfram í einhvern tíma? Það er svona viðfangs­efni dagsins sem er mjög alvarlegt.“

Hvorki dómstólar né ríkis­stjórn Íslands hafa látið birta upplýsingar um hvaða þýðingu dómurinn hefur fyrir fólk sem dæmt hefur verið í Lands­rétti eða er aðilar að málum fyrir dómstólnum og með hvaða hætti verður brugðist við. Þá hafa engar aðgerðir verið boðaðar til að tryggja réttar­öryggi íslenskra borgara eftir að ljóst varð að mann­réttinda­brot voru framin gegn fjölda fólks í Lands­rétti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár