Karl Gauti og Ólafur ganga í Miðflokkinn - nú stærstur í stjórnarandstöðu

Þing­menn­irnir tveir, sem reknir voru úr Flokki fólks­ins í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins, hafa gengið í Mið­flokk­inn. Nú eru níu þing­menn í Mið­flokknum sem gera hann að stærsta flokki utan rík­is­stjórnar.

Karl Gauti og Ólafur ganga í Miðflokkinn - nú stærstur í stjórnarandstöðu

Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, sem reknir voru úr Flokki fólks­ins í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins, hafa gengið til liðs við Mið­flokk­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem þeir hafa sent frá sér. Mið­flokk­ur­inn er nú orð­inn stærsti flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu með níu þing­menn.

„Á vett­vangi Mið­flokks­ins teljum við okkur geta náð betri árangri í bar­áttu­málum okkar og styrkt mál­efna­stöðu flokks­ins. Við höfum sam­eig­in­lega sýn á sjálf­stæði og full­veldi þjóð­ar­innar, yfir­ráð hennar á auð­lindum sínum og mik­il­vægi vest­rænnar sam­vinnu,“ segir í til­kynn­ingu þing­mann­anna. „Við teljum að á vett­vangi Mið­flokks­ins styrkjum við stöðu okkar á Alþingi til að knýja á um fram­gang þeirra mál­efna, sem kjós­endur treystu okkur fyrir í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.“

Þing­menn­irnir segja áherslur sínar snúa að ein­dregnum stuðn­ingi við lág­launa­fólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku sam­fé­lagi og þar eigi þeir sam­leið með Mið­flokknum. „Við erum sam­mála um nauð­syn þess að leið­rétta kjör hinna lægst laun­uðu og skapa öldruðum og öryrkjum tæki­færi til að bæta hag sinn með auk­inni vinnu án skerð­ingar almanna­trygg­inga­bóta,“ segja þeir. „Við erum sam­mála um áherslur í mál­efnum hins sístækk­andi hóps aldr­aðra sem geti notið ævi­kvölds­ins á heim­ili sínu eins lengi og unnt er, með öruggu fram­boði hjúkr­un­ar­rýma þegar nauð­syn knýr á um slík úrræði.“

Voru beðnir að skipta í nóvember

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveins­son og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, hittu þing­menn­ina á Klaustri bar 20. nóv­em­ber 2018. Þau skjöll­uðu Ólaf og Karl Gauta og lögðu hart að þeim að skipta yfir í Mið­flokk­inn. Sam­skiptin náð­ust á hljóð­upp­töku.

Fóru þing­menn Mið­flokks­ins hörðum orðum um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins. Athygli vekur að Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti komu Ingu nær ekk­ert til varnar en hlust­uðu þöglir á þing­menn Mið­flokks­ins úthúða henni. „Hún vill vel,“ sagði Ólafur Ísleifs­son í eitt skiptið en að öðru leyti tók hann undir með Karli Gauta um að hún væri ófær um að gegna for­mennsku í Flokki fólks­ins.

„Hún getur þetta ekki. Hún getur talað um þetta, hún getur grenjað um þetta, en hún getur ekki stjórnað,“ sagði Karl.

Sögðu ekki á dagskrá að skipta um flokk 

Stundin hafði sam­band við Karl Gauta Hjalta­son og Ólaf Ísleifs­son. „Ég kem af fjöllum,“ sagði Karl þegar Stundin spurði hvort komið hefði til álita að hann og Ólafur skiptu um flokk. „Nei nei alls ekki, aldrei heyrt þetta.“

Ólafur Ísleifs­son sagði að aldrei hefði komið til álita að sam­eina Mið­flokk­inn og Flokk fólks­ins. Þegar Stundin spurði hvort hann hefði ein­hvern tím­ann rætt við full­trúa úr Mið­flokknum um að skipta yfir í þeirra þing­flokk, vildi Ólafur ekki neita því beint.

„Það er oft sagt við mann úr ýmsum flokkum hvort maður ætli ekki að koma yfir. Það er algengt í þing­inu. Við svörum alltaf því að svona til­boð séu gagn­kvæm. Við erum líka að reyna að fá mann­skap yfir til okkar. Þetta er oft í hálf­kær­ingi, þú heyrir það, svona komment fljúga.“

Aðspurður hvort hann yrði þá áfram í Flokki fólks­ins sagði hann að ekk­ert annað væri á dag­skrá. „Við erum með upp­brettar ermar og fullar hendur og ærin verk­efni fyrir það fólk sem sendi okkur þarna inn,“ segir hann. „Er ekki bara þannig að við ættum að bjóða Mið­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum að sam­ein­ast undir for­ystu Flokks fólks­ins? Þetta eru nú hinir svona borg­ara­lega sinn­uðu flokkar. Er þetta ekki málið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár