Jón Baldvin kærir: „Sögur spunnar í sömu leiksmiðjunni“

Aldís Schram skrif­aði hand­rit byggt á eigin lífi og sýndi meðal ann­ars Elísa­betu Ron­alds­dóttur kvik­mynda­gerð­ar­konu. Elísabet segir Bryndísi Schram hafa hringt í sig í kjöl­farið og sagt að barn­ung Aldís hafi „reynt við“ föður sinn. Jón Baldvin Hanni­bals­son segir að handitið sé upp­sprettan að sögum 23 kvenna sem saka hann um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Jón Baldvin kærir: „Sögur spunnar í sömu leiksmiðjunni“
Aldís og Jón Baldvin Elísabet Ron­alds­dóttir seg­ist hafa fengið sím­tal eftir að hafa lesið hand­rit Aldísar.

Jón Baldvin Hanni­bals­son spyr hvort sögur 23 kvenna sem sakað hafað hann um kyn­ferð­is­lega áreitni séu allar sprottnar upp úr hand­riti sem dóttir hans, Aldís Schram, skrif­aði fyrir rúmum ára­tug. Hann segir mála­ferli vænt­an­leg og að hann hafi kært „slúð­ur­bera í fjöl­miðlum fyrir til­hæfu­lausar sak­ar­giftir, rang­hermi og gróf meið­yrði“.

Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag, sem ber tit­il­inn „Leik­hús­smiðjan ehf?“ seg­ist Jón Baldvin hafa séð hand­ritið, sem fjall­aði um valda­mann, sem í skjóli nætur og ölv­unar níð­ist á konum og börnum, árið 2006.

„Sögu­þráð­ur­inn er sá sami og í sögum #metoo-kvenn­anna,“ skrifar Jón Baldvin. –„Sömu sögu­per­sónur. Sama kyn­lífs­þrá­hyggjan. Sama heilagsanda upp­hafn­ingin. Meira að segja keim­líkar verkn­að­ar­lýs­ingar. Er þetta allt saman hrein til­viljun? Eða eru allar þessar sögur spunnar í sömu leiksmiðj­unni? Mér láð­ist að geta þess áðan, að þegar nánar er að gáð reyn­ist höf­und­ar­nafnið – Júrí Khri­stovski – vera skálda­nafn. Höf­und­ur­inn, sem leyn­ist þar að baki, er Aldís Bald­vins­dóttir, nú þekkt­ari undir nafn­inu Aldís Schram.“

Í sam­tali við Stundina í jan­úar greindi Elísabet Ron­alds­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona frá því að hún hafi hitt Aldísi á fundi og lesið hand­rit um per­sónu­lega reynslu hennar af Jóni Baldvini. Í hand­rit­inu var fjallað um meint kyn­ferð­is­of­beldi hans, sem byggði á upp­lif­unum Aldísar sjálfrar og öðrum frá­sögnum sem henni höfðu borist.

Barnið „reyndi svo mikið“ við Jón Baldvin

Elísabet sagði fund­inn og atburð­ina í kringum hann hafa verið slá­andi. „Ég þekkti Aldísi ekki fyrr og ég þekkti ekki þetta fólk nema að Bryndís var fram­kvæmda­stjóri Kvik­mynda­sjóðs og ég var í ein­hverjum sam­skiptum við hana,“ sagði hún. „Við Aldís mæltum okkur mót og í milli­tíð­inni, áður en ég hitti hana, þá labb­aði ég fram á Bryndísi og Jón Baldvin þar sem þau voru á kaffi­húsi.

Ég heils­aði kump­án­lega og sagði að þetta væri skemmti­legt þar sem ég væri að fara að hitta Aldísi. Ég vissi ekk­ert, algjör­lega blá­eyg og hafði ekki grænan grun um hvað væri í gangi. Sagði þeim að hún væri að fara að sýna mér hand­rit. Þá kom ein­hver und­ar­leg dauða­þögn á hóp­inn en eng­inn sagði neitt. Ég var hvort sem er að fara á fund þannig að ég kvaddi og fór bara.“

Elísabet tal­aði við Aldísi og las hand­ritið. Málið hafi komið henni í opna skjöldu. Hún hafi ekk­ert vitað af þessum sögum af Jóni Baldvini. Nokkrum dögum síðar, nálægt mið­nætti, hafi hún óvænt fengið sím­tal frá Bryndísi Schram.

„Bryndís fór að tala um hvað þetta væri allt erfitt með Aldísi og að hún væri ekki heil á geði,“ segir Elísabet. „Ég sagði henni að í hand­rit­inu væri talað um kyn­ferð­is­of­beldi og þá bara allt í einu fór Bryndís að útskýra hvernig Aldís hafi sem barn verið að reyna svo mikið við Jón Baldvin og þetta væri allt henni að kenna. Hún hefði verið þannig barn að hún hafi ekki getað látið hann í friði. Þetta var mjög slá­andi og óþægi­legt sím­tal og síðan þá hef ég ekki talað við Bryndísi. Ég sagði henni að mér fynd­ist ekki hægt að tala svona um börn, þau bæru ekki ábyrgð, og end­aði þetta sím­tal.“

Í sam­tali við Stundina hafn­aði Bryndís því að hafa sagt þetta við Elísa­betu. „Guð minn góður, þetta get ég ekki hafa sagt,“ segir Bryndís. „Hand­ritið er upp­spuni frá rótum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár