Kæru ráðherrar og alþingismenn Vinstri grænna.
Enn eru hvalveiðimál á dagskrá, gegn væntingum, þar sem menn töldu að langreyðaveiðunum hefði lokið fyrir fullt og allt í fyrra haust þegar veiðiheimildir sem Sigurður Ingi gaf út 2013 runnu út. Réttlætti forsætisráðherra nýjar langreyðaveiðar í fyrra sumar með því að illt væri að rugla stjórnsýsluna með breytingum á reglugerðum sem í gildi væru. Þótti sumum það yfirborðskennd skýring.
Nú er orðrómur á kreiki um það að ríkisstjórnin ætli að gefa út ný langreyðaveiðileyfi til Hvals hf. Vekur þetta furðu undirritaðs og annarra sem af þessu hafa heyrt. Trúa menn vart sínum eigin eyrum. Er helzta vonin að þetta sé, eins og margt, marklaust slúður. Vil ég trúa því, þar til annað kemur á daginn.
Ekki þarf að minna ykkur á ykkar eigin samþykktir frá 2015 í þessu máli en meðal annars voruð þið kjörin á þing út á þessa stefnu; friðun hvala. Fyrir eitthvað verður „grænt“ líka að standa. Nýlega var haft eftir forsætisráðherra að hún hefði aðallega gengið í VG af umhverfisástæðum. Túlkar einhver „umhverfi“ bara sem loft? Fyrir undirrituðum er „umhverfisvernd“ og „grænt“ dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Verður þar eitt ekki greint frá öðru. Vonandi geta allir verið sammála um það.
„Því miður hefur samt engin breyting orðið í þessum málum undir ykkar forsæti og stjórn, nema síður sé“
Í stjórnarsáttmála er ljómandi ákvæði um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Gladdi það margan manninn. Því miður hefur samt engin breyting orðið í þessum málum undir ykkar forsæti og stjórn, nema síður sé.
Langreyðaveiðar hófust að nýju í fullum stíl, fleiri hreindýr voru drepin í fyrrahaust en nokkru sinni fyrr og mest allt kýr frá 8 vikna kálfum þeirra, ekkert bólar á verndun sela þó að þeir hafi lengi verið í bráðri útrýmingarhættu. Pólarrefurinn er hundeltur og ofsóttur og til þess varið 100 milljónum árlega af almannafé þó að enginn skaði liggi fyrir af hans völdum síðustu áratugi. Þá heldur stórfellt og stjórnlaust dráp á villtum fuglum áfram, þó að fimm helztu dýra- og vistfræðingar landins hafi gert og birt skýrslu í apríl 2016 um að 11 fuglategundir, þar á meðal lundi, hrafn og kjói, væru í bráðri útrýmingarhættu og að veiðiálag á 6 tegundum villtra fugla væri of mikið og ógnaði tilveru þeirra, þar á meðal grágæs, langvía, álka og rjúpa.
100 milljónum veitt til að styrkja dýraníð
Nýlega hlutaðist ríkisstjórnin líka til um það að 100 milljónum var veitt af fjármunum almennings til þess að styðja taprekstur 12 loðdýrabænda, sem reyndar fara fram á 200 milljónir í vibót, en þessi „búgrein“ er eitthvert það heiftarlegasta dýraníð sem sögur fara af og er búið að banna hana í flestum siðmenntuðum löndum. Hér er hún hins vegar styrkt í stórum stíl með almannafé af þessari ríkisstjórn. Er grænt orðið grátt eða svart?
Átak í loftlagsmálum upp á 6,8 milljarða á næstu árum er þakkarvert og ykkur til sóma en það er því miður það eina sem þið getið státað af í „grænum málum“. Og ef fjárhæðin er skoðuð í vissu samhengi, til að mynda því að á nákvæmlega sama tíma á að verja 120 milljörðum, nánast tuttugufaldri upphæðinni, til uppbyggingar flugstöðvarinnar í Keflavík, sem þó er líka gott mál, þá fer glansinn nokkuð af 1,34 milljörðum á ári í loftslagsvernd.
Innhald hvalveiðiskýrslu sýndarmennska
Aftur að hvalveiðimálum. Nýlega gaf Háskóli Íslands út skýrslu um hvalveiðimál. Jafn illt og það er, þar sem Háskólinn ætti auðvitað að leggja áherzlu á vönduð, hlutlæg og akademísk vinnubrögð, þá er innihald þessarar skýrslu hrein sýndarmennska og út í hött. Útskýri ég það nánar í grein á Vísi, „Datt rektor HI á höfuðið...“
Í millitíðinni staðfesti Háskóli Íslands við okkur, að hann hefði unnið „þróunarverkefni“ fyrir Hval hf. frá hausti 2017 fram til vors 2018 og fengið sex milljónir króna fyrir. Í beinu framhaldi af því fól sjávarútvegsráðherra Háskóla Íslands, í nafni ríkisstjórnarinnar, að kanna fýsileika starfsemi Hvals hf. Góð og vönduð vinnubrögð það.
Hér má líka nefna að við höfum með góðri hjálp lögfræðinga okkar, Ragnars Aðalsteinssonar og hans félaga, kært Hval hf. fyrir margvísleg meint laga- og reglugerðabrot sem í okkar augum eru augljós og skýr og er málið nú hjá ríkissaksóknara. Vonumst við til að hann muni gefa út ákæru á hendur Hval hf. innan fárra mánaða.
„Ef Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn vilja slíta stjórnarsamstarfi vegna hvalveiða þá má sú skömm fylgja þeim og fara með þeim hætti inn í sögubækurnar“
Ef orðrómur um nýjar langreyðaveiðar á við rök að styðjast, er það erindi þessa opna bréfs að hvetja ykkur til þess að standa eins og veggur gegn slíkri leyfisveitingu. Standa við samþykktir ykkar og stefnu, án frekari eftirgjafar. Ef Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn vilja slíta stjórnarsamstarfi vegna hvalveiða þá má sú skömm fylgja þeim og fara með þeim hætti inn í sögubækurnar.
Stefna skal standa, eins og forsætisráðherra sagði í þingræði 2. maí síðastliðinn og það er betra og líka uppbyggilegra til frambúðar að falla með sóma fyrir málstaðinn heldur en að standa með skömm og vanvirðu. Ekki væri það gott, að minnast 20 ára afmælis Vinstri grænna með grundvallar svikum við sjálfa sig og fylgjendur sína.
Að lokum þetta:
Sumir vilja reyna að gera hvalveiðar að fullveldismáli. Þessir menn verða að átta sig á því að við lifum á tímum alþjóðasamfélagsins, þar sem menn verða að virða frjáls tjáskipti og skoðun annarra þjóða, og, þar sem réttur til athugasemda og skoðanaskipta hlýtur að ná yfir landamæri og höf. Var íslenzka ríkisstjórnin ekki að enda við að hafa afskipti af málefnum Venesúela!? Auk þess eru hvalir flökkudý, sem fæðast mest við Vestur-Afríku, og flakka svo um heimshöfin. Þeir eru á engan hátt íslenzk séreign, hvað þá íslenzk auðlind, ef frjáls spendýr geta flokkast undir auðlindir.
Athugasemdir