64 starfsmenn SÁÁ undirrita vantraustsyfirlýsingu: „Staðan er mjög alvarleg“

Starfs­menn SÁÁ und­ir­rita van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur for­manni SÁÁ og fram­kvæmda­stjóra.

64 starfsmenn SÁÁ undirrita vantraustsyfirlýsingu: „Staðan er mjög alvarleg“
Höf­uð­stöðvar SÁÁ Mikill styr stendur nú um stjórn SÁÁ.

Rúmlega sex­tíu starfs­menn SÁÁ hafa und­ir­ritað van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur for­manni SÁÁ og fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna. Áður höfðu for­stjóri SÁÁ, Ragn­heiður Hulda Frið­riks­dóttir og Þóra Björk Ing­ólfs­dóttir, fag­stjóri með­ferð­ar­stöðv­ar­innar Víkur, sagt upp störfum í ágúst vegna óánægju með stjórn­ina og ásak­ana um að stjórnin væri að hafa óeðli­leg afskipti af fag­legu starfi SÁÁ.

„Staðan er bara mjög alvar­leg,“ segir Helga Katrín Jóns­dóttir, læknir hjá SÁÁ, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún und­ir­ritar van­trausts­yf­ir­lýs­ing­una, ásamt 64 starfs­mönnum SÁÁ.

RÚV greindi frá því í byrjun sept­em­ber að Val­gerður Rún­ars­dóttir, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ, gagn­rýndi stjórn SÁÁ fyrir afskipti af fag­legu heil­brigð­is­starfi sam­tak­anna, og sagði slíkt óvið­un­andi. Hún treysti sér ekki til að vinna fag­legt heil­brigð­is­starf undir nýjum utan­að­kom­andi for­stjóra og hafði einnig sagt upp störfum.

Í van­trausts­yf­ir­lýs­ing­unni segir: „Sú alvar­lega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðli­legar breyt­ingar í stjórnun eða ein­stök …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár