Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs

Reykja­vík­ur­borg og fyr­ir­tæki henn­ar töp­uðu 5,5 millj­örð­um króna á fyrri helm­ingi árs­ins, þótt áætl­un gerði ráð fyr­ir 6,7 millj­arða af­gangi. Verð­bólga og hærri fjár­magns­gjöld höfðu nei­kvæð áhrif. Dag­leg­ur rekst­ur gekk þó bet­ur.

Reykjavík í mínus og 12 milljörðum frá áætlun á fyrri helmingi árs

Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar skiluðu 5,5 milljarða króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Í fjárhagsáætlun hafði hins vegar verið gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi og er niðurstaðan því um 12,2 milljörðum lakari en áætlað var.

Þetta kemur fram í árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir janúar til júní, sem afgreiddur var í borgarráði í dag. Í tilkynningu frá borginni er haft eftir Hildi Björnsdóttur að niðurstöðurnar sýni glöggt hve mikilvægt sé að ná stjórn á rekstri borgarinnar.

„Enda er ekkert sem ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. Við höldum áfram vinnunni í hagræðingarhóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,“ er haft eftir borgarstjóranum.

Niðurstaðan á fyrri hluta árs er jafnframt mun verri en á sama tímabili í fyrra. Rekstrarniðurstaða samstæðu borgarinnar, A- og B-hluta, var 10,6 milljörðum króna lakari en á fyrri helmingi ársins 2025.

Daglegur rekstur gekk þó betur. Rekstrarafkoma fyrir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár