Segir af sér sem varaþingmaður Pírata

Snæbjörn Brynjars­son hefur ákveðið af segja af sér vara­þing­mennsku eftir að hafa orðið sér til minn­kunnar í sam­skiptum við Ernu Ýr Öldu­dóttur.

Segir af sér sem varaþingmaður Pírata
Segir af sér Snæbjörn hyggst segja af sér sem vara­þing­maður og láta jafn­framt af öllum trún­að­ar­störfum fyrir Pírata. Mynd:

Snæbjörn Brynjars­son rit­höf­undur og blaða­maður hefur ákveðið að segja af vara­þing­mennsku eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu og úthúðað Ernu Ýr Öldu­dóttur blaða­manni. Atkvikið átti sér stað á skemmti­stað í Reykja­vík aðfar­arnótt síð­ast­lið­ins laug­ar­dags.

Í færslu á Facebook síðu sinni segir Snæbjörn að hegðun hans hafi verið með öllu óvið­eig­andi og ekki sæm­andi kjörnum full­trúa. Í sam­tali við Stundina stað­festir Snæbjörn að hann hafi lýst skoðun sinni á störfum og per­sónu Ernu með orð­færi sem sé óboð­legt, án þess að vilja fara í frek­ari útlegg­ingar á því sem þar kom fram. Hann og Ernu greini á um hvað hafi verið sagt en Erna lýsti því í sam­tali við Frétta­blaðið að Snæbjörn hefði hótað að berja hana. Snæbjörn segir það ekki rétt en hann hafi hins vegar sagst fyr­ir­líta hana fyrir að vinna hjá Birni Inga Hrafn­syni en hann rekur frétta­mið­il­inn Viljann þar sem Erna vinnur.

„Af virð­ingu fyrir því umboði sem allt þetta fólk veitti mér hef ég ákveðið að segja af mér taf­ar­laust sem vara­þing­maður Pírata“

„Í ljósi atburða lið­innar helgar hef ég því ákveðið að segja af mér sem vara­þing­maður Pírata, frekar en að láta þessa hegðun kasta rýrð á sam­starfs­fé­laga mína og Alþingi. Mér er annt um virð­ingu Alþingis, traust fólks á kjörnum full­trúum, en sér í lagi er mér annt um þau þús­undir manna sem kusu Pírata og öll þau hund­ruð sem lögðu á sig þrot­lausa sjálf­boða­vinnu til að tryggja mér kjör. Af virð­ingu fyrir því umboði sem allt þetta fólk veitti mér hef ég ákveðið að segja af mér taf­ar­laust sem vara­þing­maður Pírata fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og víkja úr öllum ábyrgð­ar­stöðum sem Píratar hafa falið mér,“ skrifar Snæbjörn og biðst jafn­framt afsök­unar á hegðun sinni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár