Ingibjörg Sólrún: Jón Baldvin beitir vopnum „hinnar eitruðu karlmennsku“

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir „skort á sóma­kennd“ ein­kenna alla fram­göngu Jóns Baldvins. Hann hafi brugð­ist ókvæða við þegar hún bað hann um að víkja af lista flokks­ins vegna klám­feng­inna bréfa.

Ingibjörg Sólrún: Jón Baldvin beitir vopnum „hinnar eitruðu karlmennsku“

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir Jón Baldvin Hanni­bals­son skorta sóma­kennd í fram­göngu sinni. Í færslu í Facebook hópnum #metoo Jón Baldvin Hanni­bals­son, lýsir hún því hvernig hún óskaði eftir því að Jón Baldvin viki af lista Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2007 þegar hún frétti af bréfa­skriftum hans til Guðrúnar Harð­ar­dóttur, frænku Bryn­dísar Schram, eig­in­konu hans, sem þá var á tán­ings­aldri.

Þegar Stundin hafði sam­band við Ingi­björgu Sólrúnu baðst hún undan við­tali en gaf leyfi fyrir birt­ingu færsl­unnar. „Í raun skamm­ast hann sín ekki vit­und fyrir hvernig hann braut gegn Guðrúnu eða öðrum konum og ég held að eft­ir­far­andi sé órækur vitn­is­burður um það,“ skrifar Ingi­björg Sólrún.

Lýsir hún því hvernig hún hafi farið á fund við Hörð, föður Guðrúnar, og fengið að lesa bréfin klám­fengu. „Þessi vit­neskja lagði mér ákveðnar skyldur á herðar en um leið var þetta vand­með­farið því ég hafði enga heim­ild til að gera þetta opin­bert – þetta var saga Guðrúnar og hennar að ákveða hvort og þá hvenær hún kysi að stíga fram og segja hana,“ skrifar Ingi­björg Sólrún.

Segist hún hafa viljað halda sig utan fjöl­miðlaum­fjöll­unar um málið þar sem Jón Baldvin hafi gjarnan ýjað að því að umfjöll­unin sé runnin undan hennar rifjum. Nú hafi hann dregið Sam­fylk­ing­una inn í málið og því vilji hún greina frá atburðum árs­ins 2007. „Þetta var óskemmti­legt sam­tal sem ég átti við JBH en það sýndi mér óþyrmi­lega hvaða mann hann hafði að geyma,“ skrifar hún. „Þessi maður hefur birst mér oft síðan, nú síð­ast í Silfri Egils í gær og grein­ar­skrifum í dag.“

Þá seg­ist Ingi­björg Sólrún hafa áður metið Jón Baldvin mik­ils en séð að hann væri „galla­gripur“ sem betra væri að hafa ekki of nálægt sér. „Ég tek ofan fyrir þeim konum sem hafa ákveðið að taka slag­inn við JBH og láta ekki undan síga þó að hann beiti öllum til­tækum vopnum sem finn­ast í vopna­búri hinnar eitr­uðu karl­mennsku,“ skrifar hún. „Sér­stak­lega vil ég segja við Aldísi og Guðrúnu – þið eruð meiri hetjur en ég held þið gerið ykkur grein fyrir.“

Færsla Ingibjargar Sólrúnar í heild sinni

„Í við­tölum og greinum um þær ásak­anir sem á hann eru bornar af fjölda kvenna hefur JBH við­ur­kennt að ein þeirra eigi við rök að styðj­ast. Hann hefur s.s við­ur­kennt að hafa skrifað klám­fengin bréf til Guðrúnar Harð­ar­dóttur þ.e.a.s hann hefur við­ur­kennt að hafa skrifað eitt slíkt bréf fullur og leiður á flug­stöð. Öll hin bréfin er hann búinn að hvít­þvo. Í þetta eins skipti hafi hann gerst sekur um „dóm­greind­ar­brest“ sem hann seg­ist marg­sinnis hafa beðist afsök­unar á án þess að vera virtur við­lits. En það þarf ekki að hlusta lengi á hann til að átta sig á að auð­vitað finnst honum sem þarna hafi verið gerður úlf­aldi úr mýflugu. Ekkisens bölv­aður „öfga­fem­in­ism­inn“ sem engu eirir. Í raun skamm­ast hann sín ekki vit­und fyrir hvernig hann braut gegn Guðrúnu eða öðrum konum og ég held að eft­ir­far­andi sé órækur vitn­is­burður um það.

Ég varð for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2005 og einn af þeim sem studdi mig í for­manns­fram­boði var JBH. Á þessum tíma mat ég hann mik­ils sem skarpan sam­fé­lags­rýni og öfl­ugan bar­daga­mann í póli­tík þó að mér væri líka vel ljóst að hann var galla­gripur sem betra var að hafa ekki alltof nálægt sér. Af og til gerð­ist það líka að konur hvísl­uðu því að mér að fara var­lega - hann væri ekki allur þar sem hann er séður. Aldrei vissi ég hvað það var sem þær voru að ýja að - eða kannski vildi ég bara ekki vita það. Þegar fór að líða nær kosn­ingum 2007 gerð­ist JBH sífellt fyr­ir­ferð­ar­meiri í hinni póli­tísku umræðu og sá orðrómur fór af stað að ef Sam­fylk­ingin yrði í rík­is­stjórn eftir kosn­ingar þá væri hann hugs­an­legt ráð­herra­efni. Um líkt leyti heyrði ég í fyrsta sinn ávæn­ing af því að hann hefði skrifað Guðrúnu Harð­ar­dóttur mjög tví­ræð bréf þegar hann var sendi­herra.

Í mínum póli­tísku önnum lét ég kyrrt liggja þar til í jan­úar 2007 þegar verið var að stilla upp á lista fyrir þing­kosn­ing­arnar það vor en þá komst ég að því að upp­still­ing­ar­nefndin hafði boðið JBH heið­urs­sætið á öðrum list­anum. Ég átt­aði mig á því að ég yrði að kom­ast til botns í þessu máli – sjálfrar mín vegna og Sam­fylk­ing­ar­innar vegna. Ég myndi aldrei fyr­ir­gefa sjálfri mér að kom­ast síðar að því að JBH hefði valdið Guðrúnu dóttur Möllu vin­konu minnar miska og ég hefði kosið að snúa blinda aug­anu að því. Guðrún var í Berlín þegar þetta var og ég hafði sam­band við Hörð pabba hennar og bað hann að hitta mig. Hann sagði mér alla sól­ar­sög­una, lét mig hafa afrit af öllum bréfum JBH til Guðrúnar og sagði mér jafn­framt að málið hefði verið kært til lög­reglu. Þessi vit­neskja lagði mér ákveðnar skyldur á herðar en um leið var þetta vand­með­farið því ég hafði enga heim­ild til að gera þetta opin­bert – þetta var saga Guðrúnar og hennar að ákveða hvort og þá hvenær hún kysi að stíga fram og segja hana. Ég ákvað engu að síður að boða JBH á minn fund, greina honum frá vit­neskju minni og óska eftir því við hann dragi sig til baka af fram­boðs­list­anum.

Ég vissi að ég yrði að hafa vitni að þessu sam­tali og fékk Dag B. Egg­erts­son til að vera við­staddan. Er skemmst frá því að segja að JBH brást ókvæða við, sagði að það væru engin sak­ar­efni og að sak­sókn­ari myndi að öllum lík­indum vísa mál­inu frá. Ég sagði honum þá að það breytti í sjálfu sér engu, söm væri gjörðin. Ég hefði lesið bréfin, þekkti inni­hald þeirra og fram­koma hans væri þess eðlis að ég vildi ekki hafa hann á lista Sam­fylk­ing­ar­innar. Ég hefði hins vegar ekk­ert leyfi til að gera þessa vit­neskju mína opin­bera og hann yrði því sjálfur að hafa sam­band við upp­still­inga­nefnd­ina og taka sig af list­anum. JBH fór í fússi en mun þann sama dag hafa tekið sig af list­anum. Þetta var á föstu­degi. Á sunnu­degi var ég heima hjá mér að horfa á Silfur Egils og hver var þá mættur þar til að básúna póli­tískan ágrein­ing sinn við for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar sem varð til þess að honum hafi verið bolað úr heið­urs­sæti á lista fyrir kosn­ing­arnar? Auðvitað JBH sem ákvað að fara í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir ef ske kynni að fjöl­miðlar fengju pata af mál­inu. Hann vissi líka sem var að ég gat ekki með nokkru móti varið mig því þá hefði ég þurft að gera mál Guðrúnar, og hana þar með, að fjöl­miðla­mat sem ég átti ekk­ert með að gera. Ég átti því ekki annan kost en að þegja þunnu hljóði meðan JBH geis­aði.

Ástæðan fyrir því að ég segi þessa sögu núna er sú að hún varpar ljósi á þann algera skort á sóma­kennd sem ein­kennir alla fram­göngu JBH. Honum finnst sjálf­sagt að grípa til allra til­tækra með­ala til að verja sjálfan sig. Allt frá því mál Guðrúnar kom inn á borð sak­sókn­ara hefur JBH rakið það til ,,fjöl­skyldu­harm­leiks­ins” og síðan hefur hann klappað þann stein í sífellu jafn­vel þó að þar með sé hann að skrum­skæla líf dóttur sinnar og dótt­ur­dóttur og gera það að fjöl­miðla­efni. Annað vopn sem hann grípur gjarnan til er að atlagan að honum sé runnin undan rifjum þess fyrr­ver­andi for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar sem hér skrifar. Til að leggja honum það vopn ekki upp í hendur ákvað ég að koma ekki nálægt umfjöllun fjöl­miðla þó að eftir því hafi verið leitað. Nú hefur JBH hins vegar sjálfur kosið að draga Sam­fylk­ing­una inn í málið þannig að það er eins gott að allir viti hvernig hans mál blöstu við mér í árs­byrjun 2007. Þetta var óskemmti­legt sam­tal sem ég átti við JBH en það sýndi mér óþyrmi­lega hvaða mann hann hafði að geyma. Þessi maður hefur birst mér oft síðan, nú síð­ast í Silfri Egils í gær og grein­ar­skrifum í dag.

Ég tek ofan fyrir þeim konum sem hafa ákveðið að taka slag­inn við JBH og láta ekki undan síga þó að hann beiti öllum til­tækum vopnum sem finn­ast í vopna­búri hinnar eitr­uðu karl­mennsku. Sér­stak­lega vil ég segja við Aldísi og Guðrúnu – þið eruð meiri hetjur en ég held þið gerið ykkur grein fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár