Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sár út í flokksfélaga og kallar eftir stuðningi við pálmatrén

„Þetta er ekki van­hugsað heldur er þetta útpælt,“ skrifar Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, á lok­uðu spjalli Sam­fylk­ing­ar­fólks um 140 millj­óna lista­verk í nýju íbúða­hverfi. „Þetta verður frá­bært.“

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sár út í flokksfélaga og kallar eftir stuðningi við pálmatrén

Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, kvartar undan gagn­rýni flokks­fé­laga sinna á áform borg­ar­innar um að gróð­ur­setja tvö pálma­tré í nýju íbúða­hverfi austan Sæbrautar. Kostn­að­ur­inn við lista­verkið og fram­kvæmd­irnar er alls 133 millj­ónir króna en þar af kosta pálma­trén vel á aðra milljón og gróð­ur­húsin 85,5 millj­ónir. 

Málið hefur vakið nokkra athygli und­an­farna daga en Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi og for­maður dóm­nefnd­ar­innar sem valdi lista­verkið, hefur sagt að pálma­trén verði „seg­ull og kenni­leiti fyrir þetta hverfi“. Áformin hafa hlotið harða gagn­rýni á lok­uðu spjalli Sam­fylk­ing­ar­fólks á Facebook þar sem Kristín Soffía finnur sig knúna til að bregð­ast við. 

„Ég verð að við­ur­kenna að umræð­urnar hérna inni eru farnar að særa mig. Mér finnst leið­in­legt að sjá her­ferð minni­hlut­ans gegn Sam­fylk­ing­unni og Degi sér­stak­lega vera að ná rótum hér,“ skrifar hún og bendir á að hvergi á land­inu hafi Sam­fylk­ingin náð eins við­var­andi árangri og í Reykja­vík.

„Í Reykja­vík er rekið jafn­að­ar­sam­fé­lag og það er Sam­fylk­ing­unni að þakka. Hér eru lægstu álögur á börn og barna­fólk, mest fram­boð af félags­legu hús­næði og sér­tækum búsetu­úr­ræðum. Við veitum hæstu fjár­hags­að­stoð­ina og hæstu sér­stöku húsa­leigu­bæt­urnar. Við erum eina sveit­ar­fé­lagið og bara eini aðil­inn sem sinnir mál­efnum heim­il­is­lausra og jað­ar­settra og í ár er sett for­dæma­laust mikið fjár­magn í mála­flokk­inn.“

Hún segir flokks­menn geta verið stolta af árangrinum. Þá víkur hún að pálmatrjá­a­lista­verk­inu í Voga­byggð og bendir á að inn­heimt hafi verið inn­viða­gjöld og aðeins litlum hluta þeirra verði varið til listar í almanna­rými. Þar hafi pálmatrjáa­verkið unnið alþjóð­lega sam­keppni. „Áður en þið hoppið á þann vagn að kalla okkur byrði, vit­leys­inga, hálf­vita, annað verra sem hefur fallið hérna inni þá skuluð þið endi­lega spá í það hvort það sé virki­lega það sem við sem störfum fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík eigum skilið.“ 

Þá bætir Kristín Soffía við: „Já við viljum list í öll hverfi, nei við viljum ekki byggja upp fátækra­hverfi. Kostn­að­ur­inn verður sirka 0,2% af íbúða­verði. Já þetta verður frá­bært. Nei þetta er ekki stóra málið í stóra sam­heng­inu en þetta er samt mik­il­vægt. Og nei þetta er ekki van­hugsað heldur er þetta útpælt. Við þurfum ykkar stuðn­ing, mér finnst við eiga hann skilið því við erum jafn­að­ar­menn og höfum verið leið­andi í að inn­leiða áherslur jafn­að­ar­manna í Reykja­vík og það sést.“ 

Ein Sam­fylk­ing­ar­konan sem leggur orð í belg segir að Bragga­málið hafi vakið mikla óánægju í sam­fé­lag­inu og þar hafi „stráin“ (höf­und­ar­rétt­ar­varin dönsk strá sem kost­uðu 757 þús­und krónur) aðeins verið topp­ur­inn á ísjak­anum. Nú sé svo komið að hlegið sé að Sam­fylk­ing­ar­fólki á vinnu­staðnum hennar. Kristín Soffía bregst við með þeim orðum að umræðan meðal Sam­fylk­ing­ar­fólks sé síður en svo vin­sam­leg eða upp­byggi­leg. „Hér eru gíf­ur­yrði og upp­hróp­anir og fyr­ir­gefðu mér en mér finnst vont að við eigum ekki meiri inn­eign hjá ykkur en svo eftir öll þessi ár.“ 

„Hér eru gíf­ur­yrði og upp­hróp­anir og fyr­ir­gefðu mér en mér finnst vont að við eigum ekki meiri inn­eign hjá ykkur en svo eftir öll þessi ár“

Konan  seg­ist ekki vilja særa neinn en biður þó um að hlustað sé á óánægju­raddir. „Hlusta á hvað? Eru skila­boðin hér sú að við viljum ekki fjár­festa í list? Eða bara öðru­vísi list? Eigum við ekki að virða nið­ur­stöður sam­keppn­innar eða eigum við bara að hafna list­sköpun yfir höfuð?“ svarar Kristín Soffía og segir að ein­ungis 0,3 pró­sentum af inn­viða­gjöld­unum hafi verið varið til list­sköp­unar í nýja íbúð­ar­hverf­inu. 

Jónína Rós Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, blandar sér í umræð­una og seg­ist telja að heppi­legra hefði verið að „bíða aðeins með að ræða þessi lista­verk, við erum aðeins ber­skjölduð fyrir gagn­rýni núna eftir stráin og bragg­ann“. 

„Við erum aðeins ber­skjölduð fyrir
gagn­rýni núna eftir stráin og bragg­ann“

Kristín Soffía segir að vissu­lega sé „óheppi­legt að tré hafi unnið [í hug­mynda­sam­keppni] eftir vand­ræða­leg strá“. Hins vegar finn­ist henni ómak­legt að „slátra“ borg­ar­full­trúum eftir þann góða árangur sem Sam­fylk­ingin hafi náð í rekstri  borg­ar­innar.

Sam­fylk­ing­ar­maður sem leggur orð í belg telur frá­leitt að láta eins og dóm­nefndin og nið­ur­staða hennar hafi ekk­ert með Sam­fylk­ing­una að gera. „Hjálmar var bein­línis for­maður nefnd­ar­innar (það eitt og sér orkar jafn­vel tví­mælis). Hvað er langt þangað til DV eða eitt­hvað annað blað fer og kemst að því hvað hann var með á tím­ann fyrir að starfa í þess­ari dóm­nefnd? Er það stóra málið? Nei. Mun það hafa slæm áhrif á Sam­fylk­ing­una? Já.“ 

„Hvað er langt þangað til DV eða eitt­hvað annað blað fer og kemst að því hvað hann var með á tím­ann fyrir að starfa í þess­ari dóm­nefnd?“

Ein þeirra sem taka þátt í umræð­unum veltir því upp hvort Sam­fylk­ingin þurfi ef til vill að beita „dýpri PR tækni við upp­lýs­inga­gjöf – án þess að vera að spinna“ og beinir þeim skila­boðum til Péturs Ólafs­sonar, aðstoð­ar­manns borg­ar­stjóra og Karenar Kjart­ans­dóttur, fram­kvæmda­stjóra þing­flokks.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg sem barst fjöl­miðlum dag kemur fram að sam­kvæmt áætl­unum muni  Reykja­vík­ur­borg fá tæpa sex millj­arða í bygg­ing­ar­réttar- og gatna­gerð­ar­gjöld vegna upp­bygg­ingar í Voga­byggð, hinu nýja íbúða­hverfi. „Verða þær tekjur not­aðar til að fjár­magna alla inn­viði hverf­is­ins eins og götur, lagnir, torg, lýs­ingu, gróður, skóla, leik­skóla – og lista­verk sem lóð­ar­hafar greiða að jöfnum hluta á móti Reykja­vík­ur­borg sam­kvæmt samn­ingum.“ 

Bent er á að í sam­þykktum samn­ings­mark­miðum borg­ar­innar á nýbygg­ing­ar­svæðum sé ákvæði um að list í almenn­ings­rýmum skuli fjár­mögnuð af lóð­ar­höfum. Er samið við hvern og einn lóð­ar­hafa hversu hátt hlut­fall þeir greiði til slíkra verka, aldrei minna en 50% og er fjár­magnið eyrna­merkt lista­verkum á svæð­inu. Í því sam­hengi var Lista­safni Reykja­víkur falið að halda alþjóð­lega sam­keppni um lista­verk í Voga­byggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár