Róbert greiddi rúmar 170 milljónir upp í 2,8 milljarða skuldir við Landsbankann

Fjár­festirinn Róbert Wessman gerði skulda­uppgjör við Lands­banka Íslands árið 2014. Greiddi rúmlega 6 prósent skulda eignarhalds­félags síns við bankann með peningum. Róbert hefur efnast á liðnum árum og keypti sér meðal annars 3 milljarða króna íbúð í New York fyrir tveimur árum.

Gerði annan samning við Landsbankann
Gerði annan samn­ing við Lands­bank­ann Róbert Wessman fjár­festir gerði samn­ing við Lands­banka Íslands sem fól í sér greiðslu rúm­lega 170 mlljóna króna upp í 2.8 millj­arða skuld eign­ar­halds­fé­lags í hans eigu.

Fjár­festirinn Róbert Wessmann, forstjóri samheita­lyfja­fyrir­tækisins Alvogen, greiddi skila­nefnd Lands­banka Íslands rúmlega 170 milljónir íslenskra króna til að kaupa til baka tæplega 2,8 milljarða króna skuldir eignarhalds­félags sem hann átti. Þetta gerðist í maí árið 2014 og kemur fram í undir­rituðum samningi á milli eignarhalds­félags í lágskatta­ríkinu Möltu, Alvogen Trading Limited, og skila­nefndar Lands­banka Íslands. Lands­banki Íslands leysti einnig til sín eitthvað af eignum félagsins, samkvæmt svari frá talsmanni Róberts, en það stundaði fasteigna­viðskipti á Spáni, Brasilíu og í Litháen. 

Þetta þýðir að Róbert greiddi Lands­banka Íslands einungis rúmlega 6 prósent af upphaflegri láns­fjárhæð í peningum. Eftir­stöðvar krafna, þegar búið var að gera ráð fyrir peninga­greiðslunni og virði yfirtekna eigna, á hendur félagi Róberts voru svo afskrifaðar í bókum Lands­banka Íslands þar sem fullt verð fékkst ekki fyrir þær. Með samningnum við Lands­banka Íslands fylgir yfir­lýsing, undir­rituð af Róberti Wessman, þar sem hann segist ekki eiga aðrar eignir en þær …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár