Ætlar ekki að láta misnotkun og líkfundarmálið stýra lífi sínu

Sigríður Ása Sig­urð­ar­dóttir stendur frammi fyrir því að missa íbúð­ina sína í kjöl­far ítrek­aðra áfalla. Hún vill ekki sætta sig við að afleið­ingar kyn­ferð­is­brota og ofbeldis valdi því að fram­tíð hennar og sona hennar sé í upp­námi.

Ætlar ekki að láta misnotkun og líkfundarmálið stýra lífi sínu
Berst fyrir betri fram­tíð Sigríður Ása er að sækja sér menntun til að búa sér og drengj­unum sínum örugga fram­tíð. Áföllin sem hún hefur orðið fyrir vill hún ekki að skil­greini sig en ótt­ast samt að nú muni þau valda því að hún missi hús­næði sitt og setji þar með fram­tíð­ina í laust loft. Mynd: Heiða Helgadóttir

Afleið­ingar áfalla geta komið fram löngu eftir að umrædd áföll riðu yfir, og stundum er eins og til­hneig­ingin sé að þegar fólk er að kom­ast á beinu braut­ina komi eitt­hvað úr for­tíð­inni og snúi til­veru þess á hvolf. Í til­felli Sigríðar Ásu Sig­urð­ar­dóttur er það sann­ar­lega þannig. Sigríður Ása hefur und­an­farna tvo ára­tugi gengið í gegnum meira en margur á allri ævinni en stendur nú upp­rétt og á góðum stað í líf­inu.

Áður en lengra er haldið vill Stundin vara við því að í frá­sögn Sigríðar Ásu koma fram atriði sem kunna að valda þolendum ofbeldis eða við­kvæmum ein­stak­lingum van­líðan eða óþæg­indum.

Sigríður Ása hefur þurft að vinna gríð­ar­lega í sinni and­legu líðan á síð­ustu árum. Hún er haldin áfallastreituröskun eftir að hafa orðið fyrir hæn­ingu og verið tæld og mis­notuð sem ung­lings­stúlka af full­orðnum lands­liðs­manni í íþróttum. Hún hefur glímt við afleið­ingar þess að hafa verið í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár