Þegar Marvin skrapp á mótmæli

Des­em­ber­mán­uður byrj­aði sér­kenni­lega hjá Báru Hall­dórs­dóttur. Hún vapp­aði um Alþingi og leit við á mót­mæla­fund­inum á Aust­ur­velli án þess að nokkurn grun­aði að hún væri hinn alræmdi Marvin.

Marvin reyndist Bára
Marvin reynd­ist Bára Marvin steig fram í við­tali við Stundina á föstu­dag undir sínu rétta nafni, Bára Hall­dórs­dóttir. Mynd: Elín Edda Þorsteinsdóttir

B

ára Hall­dórs­dóttir, konan sem sat skammt frá sex þing­mönnum á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og hljóð­rit­aði sam­skipti þeirra, lét sig ekki vanta á mót­mæla­fund­inn 1. des­em­ber þar sem kallað var eftir afsögn þing­mann­anna. 

Fyrst leit hún við í Alþing­is­hús­inu sem var opið gestum og gang­andi í til­efni 100 ára full­veld­is­af­mælis. 

„Ég gekk þar um og hugs­aði með mér: Jahá, hér er þetta fólk í vinnu og hér stend ég, sem var fluga á vegg,“ sagði Bára þegar hún kom fram undir sínu rétta nafni í við­tali við Stundina á föstu­dag. „Ég er þessi Marvin sem rugg­aði bátnum.“ 

„Hér er ég, Marvin“Það var opið hús á Alþingi og Bára leit við.

Þegar Báru varð litið yfir mót­mæla­fund­inn á Aust­ur­velli varð hún meyr og fann sig knúna til að festa atburð­ina og upp­lifun sína á filmu. Stundin fékk leyfi Báru til að birta mynd­skeiðið:

„Það var ynd­is­leg til­finn­ing að standa á Aust­ur­velli,“ sagði Bára í við­tal­inu við Stundina fyrir helgi. „Ég sett­ist á bekk og við hlið­ina á mér sat kona sem var með dóttur sína með sér, litla ofboðs­lega sæta þriggja ára stelpu. Og ég hugs­aði með mér: Í dag erum við saman að vinna að því að þegar þú verður orðin full­orðin kona, þá verði ekki talað svona um þig. Kannski fer þessi litla stelpa ein­hvern tím­ann á þing, og við skulum sjá til þess saman að þá verði ekki lengur talað svona um konur á þingi.“ 

Hér má lesa við­tal Stund­ar­innar við Báru Hall­dórs­dóttur í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár