Litla hafpulsan aflimuð í nótt: „Kannski var þetta bara of mikil ögrun“

Skemmd­ar­verk voru unnin á Litlu haf­puls­unni sem staðið hefur hnar­reist í tjörn­inni í Reykja­vík síð­ustu vikur. Steinunn Gunn­laugs­dóttir, lista­mað­ur­inn sem á heið­ur­inn að verk­inu, veltir því upp hvort verkið hafi mögu­lega ögrað ein­hverjum.

Litla hafpulsan aflimuð í nótt: „Kannski var þetta bara of mikil ögrun“

„Já, það er bara búið að aflima hana,“ segir Steinunn Gunn­laugs­dóttir, lista­mað­ur­inn sem á heið­ur­inn af Litlu haf­puls­unni, en skemmdir voru unnar á verk­inu í nótt. „Kannski var þetta bara of mikil ögrun eða of óþægi­legt fyrir ein­hvern,“ segir Steinunn sem hefur ekki hug­mynd um hver getur hafa verið þarna að verki en bendir á að þetta hafi gerst í nótt. „Ég var að skoða myndefni frá vef­mynda­þjón­ustu Mílu og þetta virð­ist hafa gerst mjög seint í nótt,“ segir Steinunn sem bendir á að upp­tök­urnar séu of dimmar til þess að hægt sé að greina hvað nákvæm­lega hafi gengið þarna á. 

Verkið var afhjúpað þann 26. októ­ber og er fram­lag Stein­unnar til Cycle lista­há­tíð­ar­innar og 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslend­inga. Það vakti gríð­ar­lega mikla athygli, og var meðal ann­ars fjallað um það í erlendum fjöl­miðlum. Steinunn hefur sagt að Litla haf­pulsan sé tákn­mynd full­veldis Íslands. Þá hefur hún áður unnið verk þar sem pulsa, þjóð­ar­réttur Íslend­inga, er notuð sem mynd­lík­ing við lýð­ræðið. Þannig hefur hún til að mynda sýnt mynd­bands­verkið Lýðræðið er Pulsa fyrir hverjar ein­ustu Alþing­is­kosn­ingar síðan árið 2009. Í sam­tali við Vísi í októ­ber, sagði Steinunn kosn­ingar sam­svara því þegar álegg eru valin á pulsu. Sinnep, remúlaði eða tómatsósa, allt sé þetta svipað og „cheap“.

Á sama tíma og pulsan var aflimuð í Reykja­vík­ur­tjörn var upp­ljóstr­ari Klaust­urs­upp­tak­anna að stíga fram í Stund­inni. Marvin heitir raun­veru­lega Bára Hall­dórs­dóttir og er fötluð hinsegin kona. Hún til­heyrir þannig öllum þremur hóp­unum sem urðu verst úti í sam­ræðum sex­menn­ing­anna á Klaustri bar, og lýsir því í við­tali við Stundina í dag hvernig hún hafi ekki trúað sínum eigin skiln­ing­ar­vitum þegar hún heyrði þing­menn­ina tala með þessum hætti um við­kvæma hópa sam­fé­lags­ins, og brugðið á það ráð að setja á upp­töku í sím­anum sínum. 

 „Það er bara eins og það sé búið að taka titt­ling­inn af karl­manni“

Erfitt er að líta fram hjá ýmsum teng­ingum sem vakna við þessa tvo atburði, það er aflimum haf­puls­unnar ann­ars vegar, og upp­ljóstrana Báru hins­vegar. Hvað les lista­mað­ur­inn sjálfur út úr þessu, ef eitt­hvað? „Ég geri alveg líka ein­hverjar teng­ingar þarna en ég átta mig ekki alveg heldur á því hvað þetta nákvæm­lega merkir,“ segir Steinunn sem notað þó orðið „aflimun“ um verkn­að­inn. „Það er búið að aflima hana. Það er bara eins og það sé búið að taka titt­ling­inn af karl­manni.“ Hún bendir á að pulsan sjálf hafi verið tekin niður á meðan neðri partur verks­ins, sá sem tákni hið kven­lega, sé ennþá heill. „Það má alveg lesa eitt­hvað í það,“ segir hún og hlær.  

Sem fyrr segir þá vakti verkið mikla athygli þegar það var afhjúpað, en á kommenta­kerfum fjöl­miðla mátti meðal ann­ars greina mikla reiði sumra sem furð­uðu sig á því að verkið fengi að standa í tjörn­inni. Steinunn segir það í raun­inni ekki koma sér á óvart að Litla haf­pulsan hafi verið skemmd með þessum hætti. „Ég bjóst ekk­ert endi­lega við að hún myndi lifa svona lengi og ég vissi eig­in­lega að um leið og það myndi frjósa þá hlyti eitt­hvað að koma fyrir. Engu að síður þá fannst mér mjög mjög leið­in­legt að sjá hana svona lágreista í morgun.“

Hún bendir á að pulsan hafi verið varin af ísköldu vatni tjarn­ar­innar þar til fór að frjósa. „Málið var að vatnið var ógeðs­lega kalt, þannig að þú hefðir þurft að vaða alveg upp í mitti, þannig að það var kannski svo­lítið hennar vörn. En um leið og hægt er að labba að henni þá þarf kannski ekki nema eitt mjög gott karatespark,“ segir Steinunn sem ætl­aði að láta taka verkið niður fyrir nokkrum dögum, en þá fraus aftur í tjörn­inni sem þýddi að það var of erfitt að athafna sig. „En kannski eru þetta bara örlög haf­puls­unnar,“ segir list­mað­ur­inn að lokum.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár