Hæddust að #MeToo sögum og sögðu Albertínu hafa reynt að nauðga sér

Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist kjaft­stopp yfir orðum Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar um meintar #MeToo sögur þeirra af henni. Albertína segir Gunnar Braga hafa hringt í sig, beðist afsök­unar og sagt að þetta hafi ekki verið svona.

Hæddust að #MeToo sögum og sögðu Albertínu hafa reynt að nauðga sér
Gunnar Bragi, Bergþór og Albertína Mynd: Alþingi

Þingmenn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins hædd­ust að MeToo umræð­unni í hljóð­upp­töku sem Stundin hefur undir höndum. Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason sögð­ust hafa slíkar sögur af Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, og sögðu hana hafa áreitt sig hvorn í sínu til­vik­inu. Gönt­uð­ust við­staddir með alvar­leika slíkra atburða í fram­hald­inu.

Gunnar Bragi og Bergþór sögðu báðir að Albertína hafi gengið á þá með kyn­líf. Bergþór lýsir því að í hans til­viki hafi það gerst á herra­kvöldi íþrótta­fé­lags­ins Vestra en Gunnar Bragi segir sinn atburð hafa átt sér stað í sam­komu­hús­inu í Hnífsdal.

Þegar Stundin náði tali af Albertínu sagði hún Gunnar Braga hafa hringt í sig, beðist afsök­unar og sagt að ekk­ert af því sem fram hafi komið í sam­tal­inu hafi verið satt.

„Hann gaf mér leyfi til að segja ykkur að hann væri til­bú­inn til að bera þetta til baka og bað mig afsök­unar,“ segir Albertína í sam­tali við Stundina. „Það er hrika­legt að vera ásak­aður um eitt­hvað sem gerð­ist ekki.“

Aðspurð um við­burð­ina sem menn­irnir tala um seg­ist hún ekki kann­ast við atvikin. „Ég er eig­in­lega bara kjaft­stopp. Mér er rosa­lega illt í hjart­anu yfir öllum þessum sam­tölum sem þeir áttu þarna. Ég er hrein­lega orð­laus. Þetta er bara ekki rétt.“

„Take one for the team“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir voru á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og ræddu við Ólaf og Karl Gauta Hjalta­son, þing­menn Flokks fólks­ins, um að ganga í Mið­flokk­inn. Orða­skiptin voru mjög hávær, áttu sér stað í vitna við­ur­vist og náð­ust að hluta á upp­töku.

„Við eigum sem sagt MeToo sögu,“ sagði Bergþór á einum tíma­punkti í sam­tal­inu.

„Léstu þig hafa það“ spurði ein­hver í kjöl­farið

„Nei ég gerði það sem betur fer ekki,“ sagði Bergþór.

„Það voru ýmsir sem sögðu ‘take one for the team’ en Beggi var ekki til“ sagði Sig­mundur Davíð og upp­skar hlátur.

„Ég var orð­inn þreyttur á herra­kvöldi Vestra,“ sagði Bergþór.

„Hversu hart gekk hún fram?“ var spurt í kjöl­farið

„Hún var að tosa bux­urnar af hæl­unum á mér [...] Ég vakna úr nær­bux­unum.“

„Hvað, á ég að ríða henni?“

Í fram­hald­inu deildi Gunnar Bragi sinni sögu. „Það var svipað. Ég var nýlega orð­inn ráð­herra og þetta var í kringum kosn­ingar, 2009-10 ]…] Það er ein­hver hátíð í sam­komu­hús­inu í Hnífsdal. Ég mæti þarna sem fram­bjóð­andi ásamt fleirum. Ég er allt í einu far­inn að dansa við þessa stúlku […] Ég sagði bara nei […] en það var bara suðað. Þá var bara eins og ein­hver hefði verið líf­lát­inn. Hún var brjáluð, hún tryllt­ist, hún grenj­aði og öskr­aði. Ég bara hugs­aði, hvað, á ég að ríða henni? Það var algjör­lega kreisí.“

Við­staddir hlógu að lok­inni frá­sögn­inni.

„Þetta er sú þing­kona sem hélt lengstu MeToo ræð­una. Og við sátum bara „what the fuck is going on“,“ bætti Bergþór við.

„Þessir menn munu aldrei ná bata nema þeir opni sig, og það í opnu­við­tali.“ sagði Sig­mundur Davíð og upp­skar hlátur.

„Það getur vel verið að við ákveðnar aðstæður, ég ætla ekki að segja hvað aðstæður, að ég þurfi að labba að henni og segja: Ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér?“ sagði Gunnar Bragi og aftur var hlegið.

„Ég er bara búinn að sirkúlera út þau ein­tök sem mesta MeToo hættan er af og þetta ein­tak er á þeim lista.“

„Ég mun segja, ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér í alvöru?“ bætti Bergþór við. „Ég er búinn að sjá það að það er MeToo hætta af hálfu nokk­urra ein­stak­linga. Ég er bara búinn að sirkúlera út þau ein­tök sem mesta MeToo hættan er af og þetta ein­tak er á þeim lista.“

Áfengi og DV viðtal til að takast á við svona

Að lok­inni frá­sögn Bergþórs og Gunnars Braga kom afgreiðslu­kona með drykki og osta á borðið til þing­mann­anna. „Is this Icelandic cheese“ spurði Gunnar Bragi og þegar svarið reynd­ist vera nei­kvætt hróp­aði hann „No! Check!“. Í fram­hald­inu héldu umræð­urnar áfram.

Ólafur Ísleifs­son: „Þetta er rosa­leg lífs­reynsla, ha.“

Karl Gauti Hjalta­son: „Ég hef aldrei heyrt annað eins.“

Sig­mundur Davíð: „Þið sjáið það að þessir menn þurfa stuðn­ing, skiln­ing og stuðn­ing.“

Þá hlógu við­staddir.

Gunnar Bragi: „Fyrst og fremst áfengi!“

Sig­mundur Davíð: „Já ég meina það er oft besta leiðin til að takast á við svona.“

Anna Kolbrún: „Það þarf að opna sig, Bergþór.“

Sig­mundur Davíð: „Ef menn vilja vera með í nútím­anum þá fara þeir í við­tal á DV.“

Styðja femínisma og jafnréttisbaráttu opinberlega

Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi hafa báðir beitt sér í orði fyrir kynja­jafn­rétti. Árið 2015 var Sig­mundur Davíð útnefndur einn fremsti karl­femínisti heims af breska dag­blað­inu Financial Times. Hann var sagður kyndil­beri HeForShe átaks UN Women og þá vakti ræða hans á leið­toga­fundi aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna í síð­asta mán­uði athygli.

„Hún leggst nátt­úru­lega bara mjög vel í mig, ef við leggjum þann skiln­ing í orðið að þetta snú­ist um jafn­rétti," sagði Sig­mundur Davíð við Stöð 2 um nafn­bót­ina.

Í tíð sem utan­rík­is­ráð­herra beitti Gunnar Bragi sér fyrir He for She átak­inu um kynja­jafn­rétti. „Spurn­ingin sem ég legg til hér er nógu ein­föld: af hverju er íslenskum karl­mönnum annt um jafn­rétti?“ skrif­aði hann í grein í The Guardian, sem leik­konan Emma Watson vakti athygli á á alþjóða­vísu. Þá ávarp­aði hann alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna og fjall­aði sér­stak­lega um verk­efnið og jafn­rétt­is­mál almennt.

300 stjórnmálakonur deildu sögum sínum

Ríflega 300 íslenskar konur úr öllum flokkum sendu í fyrra frá sér áskorun til stjórn­mál­anna um að taka á kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni af festu, þar sem allir flokkar setji sér við­bragðs­reglur og lofi kon­unum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær fái stuðn­ing.

Samhliða því sendu stjórn­mála­kon­urnar níu reynslu­sögur ónafn­greinda kvenna, sem greindu frá áreitni sem þær hafa orðið fyrir. Ein sagði þar frá því að henni hafi verið hótað nauðgun vegna skoð­ana sinna og önnur sagði það þekkt á alþjóð­legum fundum hvaða stjórn­mála­menn séu mestu perr­arnir, því þær hafi margar lent í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár