Setur upp jólaseríur með yfir 100 þúsund perum

Grímur Óli Geirsson vinnur við að koma skauta­svell­inu á Ing­ólfs­torgi í stand fyrir aðvent­una.

Ég er að vinna fyrir Luxor, við erum að setja upp skauta­svellið á Ing­ólfs­torgi, sem verður opnað 1. des­em­ber. Það er ansi umfangs­mikið verk­efni, við erum svona í um það bil viku að setja það upp. Það eru ríf­lega 100 þús­und ljósa­perur í ljósa­ser­í­unum sem verða hérna og álgrind­urnar sem bera jóla­ser­í­urnar, greni, grýlu­kerti og annað jóla­skraut, eru 350 metrar.

Desember finnst mér mjög skemmti­legur mán­uður, hann er eig­in­lega upp­á­halds­mán­uð­ur­inn minn, enda er ég mikið jóla­barn, og ég hlakka mjög til mán­aða­mót­anna. Þetta verk­efni, að setja upp skauta­svellið, er því mjög skemmti­legt fyrir jóla­mann eins og mig.

Ég fer kannski ekki mikið sjálfur á skauta en ég gerði það stundum sem krakki og leidd­ist það nú aldeilis ekki. Ég held að það verði mjög jóla­legt og gaman fyrir fólk að kíkja hingað niður á Ing­ólfs­torg og skella sér á skauta á aðvent­unni. Það er eitt­hvað sem öll fjöl­skyldan getur gert saman til að lyfta sér upp í skamm­deg­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár