Fagnaði arfleifð R-listans í jómfrúarræðunni

Ragna Sig­urð­ar­dóttir lækna­nemi rakti hvernig hlut­fall barna með leik­skóla­pláss jókst úr 30 pró­sentum í 80 pró­sentum á tveimur kjör­tíma­bilum þegar R-list­inn var við völd í Reykja­vík.

Fagnaði arfleifð R-listans í jómfrúarræðunni

Ragna Sig­urð­ar­dóttir, vara­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, flutti jóm­frú­ar­ræðu sína á borg­ar­stjórn­ar­fundi í dag.

Í ræðu sinni rakti Ragna upp­bygg­ingu leik­skóla borg­ar­innar á und­an­förnum ára­tugum. „Árið 1994 voru 30 pró­sent barna á leik­skóla­aldri með leik­skóla­pláss í Reykja­vík. Á næstu tveimur kjör­tíma­bilum vann Reykja­vík­ur­list­inn, meðal ann­ars undir stjórn Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur, mark­visst að því að byggja upp leik­skól­ana í Reykja­vík og árið 2002 voru 80 pró­sent barna á leik­skóla­aldri í Reykja­vík komin með leik­skóla­pláss. Síðan þá hefur hlut­fallið auk­ist í yfir 90 pró­sent, sem er mun hærra hlut­fall en gengur og ger­ist í nágranna­löndum okkar,“ sagði Ragna og full­yrti að nú stæði til að gera enn betur með aðgerðum borg­ar­innar til að brúa bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Tillögur um slíkar aðgerðir voru sam­þykktar á fundi borg­ar­stjórnar í dag.

Ragna er 26 ára lækna­nemi og fyrr­ver­andi for­maður Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands. Hún tók við því hlut­verki í fyrra eftir að hafa leitt Röskvu, sam­tök félags­hyggju­fólks, til stærsta sig­urs sem hreyf­ingin hefur unnið í kosn­ingum til Stúd­enta­ráðs síðan 1994. Það vill svo til að þá var líka ungur lækna­nemi efsti maður á lista hreyf­ing­ar­innar, en sá hét Dagur B. Egg­erts­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár