Halldór Auðar: Vægðarlaus gagnrýni talin dyggð hjá Pírötum

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata segir menn­ing­una innan flokks­ins óheil­brigða. Hegðun sem gangi út á tor­tryggni og hörku sé verð­launuð og henni hampað.

Halldór Auðar: Vægðarlaus gagnrýni talin dyggð hjá Pírötum
Sprakk í and­litið á Pírötum Óheil­brigð sam­skipti innan Pírata sköp­uðu spennu sem nú hefur sprungið í and­litið á flokks­mönnum, segir Halldór Auðar Svansson, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi flokks­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata segir að menn­ingin inn­nan flokks­ins gangi út á vægð­ar­lausa gagn­rýni, sem sé talin dyggð, og þar megi síst af öllum und­an­skilja flokks­fé­laga. Sú menn­ing sé óheil­brigð og nú hafi spennan sem slíkri hegðun óhjá­kvæmi­lega fylgi sprungið í and­litið á flokks­með­limum.

Halldór Auðar Svansson gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en hann hafði setið sem borg­ar­full­trúi Pírata á síð­asta kjör­tíma­bili. Halldór Auðar sagði sig úr fram­kvæmda­ráði Pírata í októ­ber vegna þeirra vær­inga sem hafa verið uppi innan flokks­ins. Uppi hafa verið ásak­anir um vald­níðslu, einkum vegna þeirrar nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar Pírata um að reka beri aðstoð­ar­mann fram­kvæmda­stjóra, Hans Benja­míns­son, úr starfi sökum þess að ekki hafi verið rétt staðið að ráðn­ingu hans.

„Hegðun sem gengur út á tor­tryggni og hörku er verð­launuð og henni hampað“

Halldór fer í færslu á Facebook yfir það sem hann telur að hafi valdið því hvernig nú er komið fyrir Pírötum. „Nið­ur­staðan er að rót vand­ans má rekja til þess að menn­ing flokks­ins gengur bein­línis út á að vægð­ar­laus gagn­rýni er dyggð, og að þar megi síst af öllum und­an­skilja flokks­fé­laga, þar sem við viljum jú ekki vera hræsnarar. Hegðun sem gengur út á tor­tryggni og hörku er verð­launuð og henni hampað - á meðan til­burðir til að draga heil­brigð mörk í sam­skiptum og byggja brýr eru skotnir niður.“

Halldór segir að eðli­lega upp­lifi margir sig sem þolendur í slíku umhverfi. Sumir verði meira fyrir barð­inu á því og klíkur mynd­ist. Á end­anum tapi hins vegar allir á ástandi sem þessu. „Nú er svo komið að þessi óheil­brigða menn­ing og spennan sem henni fylgir er sprungin í and­litið á fólki og þá er ekk­ert annað eftir en að kyngja smá stolti og við­ur­kenna vand­ann. Verk­efnið að mínu mati snýst um að finna jafn­vægi milli gagn­rýni og sam­stöðu, not­ast við þekktar aðferðir sem stjórn­un­ar­fræðin kenna okkur um hvernig má byggja upp traust innan hópa, og setja það í for­gang að festa í sessi kerfi sem tryggja jafn­vægi milli aðhalds og vinnu­friðar fólks sem vinnur fyrir flokk­inn.“

Halldór segir að hægt hefði verið að vinna að þessum mark­miðum í kyrr­þey en þó sé í raun allt í lagi að hluti upp­gjörs­ins fari fram á opin­berum vett­vangi. Í því felist ákveðin, nauð­syn­leg auð­mýk­ing og von­andi verði það lexía fyrir aðra til að læra af. Hann seg­ist ekki vera hættur í Pírötum en þurfi hins vegar að taka sér frí frá því að starfa fyrir flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár