Kaffibars-Spaði sýknaður af kröfu vegna hestaflutninga

Deilt um greiðslur vegna hesta­ferðar fasta­gesta Kaffi­bars­ins fyrir dóm­stólum. Enginn vill kann­ast við að þekkja Arnar sem átti að sjá um að greiða skuld í seðlum.

Kaffibars-Spaði sýknaður af kröfu vegna hestaflutninga
Arnar finnst hvergi Enginn virð­ist vita hver Kaffi­bars-Spaðinn Arnar er. Mynd: Shutterstock

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur sýknað Guðna Kára Gylfason af kröfum um greiðslu 255 þús­und króna vegna hest­a­flutn­inga sum­arið 2017 upp í Kerl­inga­fjöll og á Hvera­velli. Í mál­inu kom fram að ein­hver Arnar, sem hvorki stefn­andi né stefndi virt­ust vita nokkur skil á, hefði pantað hest­a­flutn­ing­inn og átt að sjá um að greiða eft­ir­stöðvar af skuld vegna hans. Sá Arnar virð­ist hafa gufað upp af yfir­borði jarðar. Var Guðni ekki tal­inn geta borið ábyrgð á við­skiptum hins týnda Arnars og var hann því sýkn­aður.

Máls­at­vik voru þau að í júlí 2017 fór Guðni ásamt á annan tug manna í hesta­ferð. Menn­irnir munu, eftir því sem fram kom við skýrslu­tökur í mál­inu, til­heyra félags­skap sem kallar sig Spað­arnir og þann félags­skap mynda einkum menn sem sækja Kaffi­bar­inn, vín­veit­inga­hús í Reykja­vík.

Stefn­andi í mál­inu, Guðríður Gunn­ars­dóttir, á fyr­ir­tækið Hest­a­flutn­inga og fram kom við með­ferð máls­ins að maður að nafni Arnar hefði sent eig­in­manni Guðríðar, Birni Ólafs­syni, skila­boð og æskt þess að Björn flytti hross fyrir hóp­inn á Hvera­velli og sækti þá í Kerl­ing­ar­fjöll fimm dögum síðar. Á þetta mun Björn hafa fall­ist með skila­boðum til téðs Arnars og sagt að fyrir það tæki hann 20 þús­und krónur á hest. Hest­arnir voru 22 tals­ins og sendi Björn títt­nefndum Arnari kröfu um greiðslu á 440 þús­und krónum fyrir vikið.

Guðni kemur til sögunnar

Björn mun síðan hafa sent Guðna eft­ir­far­andi skila­boð 18. júlí 2017: „Sæll Guðni. Ég flutti hest­ana f. ykkur. Þar sem ferð ykkar gekk brös­ug­lega og varð dýr­ari en við mátti búast gaf ég Arnari rúm­lega 100 þús kr afslátt á umsömdu verði ef staðið yrði við að greiða flutn­ing­inn í dag. Mér er sagt að þú sért pen­inga Spaðinn. Arnar er m ban­ka­upp­lýs­ingar.“

Guðni svar­aði skila­boðum Björns og greiddi honum síðan dag­inn eftir, 19. júlí, með milli­færslu 185 þús­und krónur. Guðni sendi Birni skila­boð þess efnis að umrædd upp­hæð hefði verið sú sem hann hefði fengið greidda frá þátt­takandum í ferð­inni inn á reikn­ing en aðrir hefðu greitt í reiðufé. Umræddur Arnar viti hins vegar af því að upp á vanti og sjái um „rest í seðlum.“ Björn setti sig þá í sam­band við Arnar og krafði hann um greiðslu eft­ir­stöðv­anna. Arnar hafi hins vegar í engu svarað því.

Hvar er Arnar?

Í ljósi þess að Arnar virt­ist horf­inn af yfir­borði jarðar var þá gef­inn út reikn­ingur af hálfu Hest­a­flutn­inga til Guðna og ítrekað reynt að inn­heimta hann. Þegar það gekk ekki var málið á hendur Guðna höfðað.

Guðni neit­aði því hins vegar að hann hefði gert nokkurn samn­ing um flutn­ing hest­anna og bæri því ekki ábyrgð á greiðslu fyrir þá þjón­ustu. Á það féllst hér­aðs­dómur í ljósi þess að Björn hefði sann­ar­lega samið við umræddan Arnar um flutn­ing hest­anna. Athygli vekur að hvorki Björn, Guðni né önnur vitni kváð­ust vita hvað umræddur Arnar héti fullu nafni og ekki hafi tek­ist að segja nán­ari deili á honum. Guðni var því sýkn­aður af kröfum um greiðslu umræ­drra 255 þús­und króna. Guðríður, í nafni Hest­a­flutn­inga, þarf hins vegar að greiða 600 þús­und krónur í máls­kostnað.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár